12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (3574)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Jakob Möller:

Ég kvaddi mér hljóðs sérstaklega út af því, að mér skildist það felast í orðum hv. 2. þm. Reykv., að Sjálfstfl. væri sérstaklega flokkur atvinnurekenda eða jafnvel stóratvinnurekenda, og hann gerði fyrirspurn um það, hvort hv. þm. Barð. hefði verið í ræðu sinni að lýsa stefnu flokksins í þessum málum. Nú er það hvort tveggja, eins og hv. þm. Barð. tók fram í ræðu sinni, að hann var ekki að lýsa yfir neinni stefnu, hvorki sinni né neins flokks, en hann gerði aðeins grein fyrir, hverju hann byggist við út frá sinni persónulegu þekkingu á ástandinu, eins og það væri í landinu. En hitt liggur í hlutarins eðli, að það hefur á engan hátt komið til mála, að Sjálfstfl. taki upp neina herferð á hendur launastéttunum eða verkalýðnum í landinu. Og sá flokkur er jafnt flokkur atvinnurekenda sem launþega og verkalýðs, — það er alkunnugt —, og ber fyrir brjósti hagsmuni þeirra. (EOl: Var formaður flokksins að bera verkalýðinn fyrir brjósti, þegar hann talaði um grunnkaupslækkanir í útvarpið hér á dögunum?) Það voru sömuleiðis hugleiðingar út af ástandinu, eins og það er, og búast má við, að það sé í aðsigi, áður en langir tímar líða.

Hv. 2. þm. Reykv. lét svo um mælt, að flutningur þessa máls væri í raun og veru óþarfur, vegna þess að fjvn. hefði þegar samþykkt, að þessar uppbætur skyldu greiddar. En sama hv. þm. hefur láðst að lesa framhaldsnál. fjvn. á þskj. 390, þar sem segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Eftir ósk ríkisstj. hefur n. tekið upp í 19. gr. 1750000 kr. hækkun á fjárveitingu til greiðslu grunnlaunauppbótar og verðlagsuppbótar á hana til embættis- og starfsmanna ríkisins á síðari hluta ársins, og hefur ríkisstj. tjáð n., að hún muni leita samþykkis Alþ. um framlengingu fyrir allt árið á heimild þál. frá 28. ágúst 1942, sem þessi upphæð er greidd eftir.“

Það, að n. tók upp þessa fjárveitingu í till. sínar, var beinlínis því skilyrði bundið, að ríkisstj. legði fram þessa þáltill., og hún varð þess vegna að gera það, áður en fjárl. fengju endanlega afgreiðslu. Og þetta hefur hv. þm. V.-Húnv. einnig yfirsézt, þegar hann spyr svo: „Hvað liggur þessu máli á nú meira en dýrtíðarmálunum? Hæstv. ríkisstj. veit, að Alþ. er að ganga frá fjárl., og hún vill, að fyrir fyrirsjáanlegum greiðslum sé gert ráð í útgjaldabálki fjárl. eða þeim greiðslum, sem búast má við, að hún verði að inna af hendi. Og hún beitti sér þess vegna fyrir því, að hv. fjvn. tæki upp þennan lið. Hv. fjvn. setur svo þetta að skilyrði, sem ríkisstj. er nú að fullnægja með flutningi þessa frv. Þess vegna lít ég svo á, að ríkisstj. sé hér ekkert annað að gera en að skila þessu máli í hendur Alþ. Alþ. hefur gert ákvarðandi samþ. um þetta mál með samþ. þál. á síðasta sumri, og það er sjálfsagt og eðlilegt að fá það fram hjá Alþ., hvort það ætlast til, að þeim greiðslum sé haldið áfram.

Það má segja, að það hefði verið eðlilegra að hafa þessa þáltill. í beinu heimildarformi heldur en eins og hún er orðuð, að ríkisstj. skuli greiða þessa upphæð, og þannig halda við því formi, sem Alþ. hafði á þessu máli á s.l. sumri. En það skiptir þó ekki ákaflega miklu máli, enda er á valdi þingsins að koma þáltill. í það form, því að það liggur ekki fyrir að afgreiða þessa þáltill. á þessum fundi, hún er nú hér til fyrri umr., og hún á eftir að ganga til n. og fær að sjálfsögðu sína þinglegu meðferð. Ég persónulega tel eðlilegt, eins og komið er a.m.k., að þessi till. kæmi fram.

Ég skal aðeins geta þess, að þó að ekki væri gert ráð fyrir þessum útgjöldum í fjárlagafrv. fyrrv. ríkisstj., þá var viðhorfið allt annað þá, þegar það frv. var lagt fram á síðasta hausti. Það var gert ráð fyrir því þá, að það Alþ., sem þá átti að koma saman, léti það verða sitt fyrsta verk að taka dýrtíðarmálin til athugunar og gera ráðstafanir í sambandi við þau, og þá hefði átt að athuga þetta mál í sambandi við þær ráðstafanir. En nú hefur þetta dregizt svo lengi sem orðið er, og verður ekki séð enn, hvernig fram úr því máli verður ráðið. Og þá tel ég sjálfsagt, að mál þetta, sem hér liggur fyrir, fái þá meðferð, sem hæstv. ríkisstj. hefur nú haft á því.