10.03.1943
Sameinað þing: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (3585)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Skúli Guðmundsson:

Þetta mál var mikið rætt við fyrri umr., og eins og mönnum er kunnugt, felur þáltill. í sér að ákveða að greiða þær sérstöku launauppbætur, sem ríkisstarfsmenn hafa fengið, einnig seinni helming þessa árs.

Það hefur verið á það minnzt að undanförnu. að mikil þörf væri á að setja ný launalög til að koma meira samræmi á þessar greiðslur og til þess að slíkar sérstakar uppbótagreiðslur geti niður fallið.

Á þessu þ. hefur hæstv. fjmrh. lýst yfir því, að núverandi stj. muni láta fram fara undirbúning að því að setja ný launalög, ef hún verði áfram við völd, og þykir mér ánægjulegt að heyra, að stj. skuli ætla að hefja slíkan undir.. búning og þá væntanlega skila till. eða frv. til nýrra launalaga svo fljótt sem unnt er. Það hefur verið stækkandi hópur manna, sem hefur störf hjá ríkinu, og þess er mikil þörf, að ný l. verði sett um launagreiðslur til þeirra, þar sem gildandi launal. eru meira en 20 ára gömul. En ég vildi vekja athygli á því, að þegar sett verða ný launal., þarf að setja í þau ákvæði um, að laun starfsmanna ríkisins taki breyt. til hækkunar eða lækkunar eftir því, sem heildartekjur þjóðarinnar breytast á hverjum tíma, þar sem greiðslugeta ríkissjóðs hlýtur alltaf að miðast við afkomu aðalatvinnuveganna í landinu. Það er nauðsynlegt að finna grundvöll fyrir vísitölu, sem mætti miða við breyt. á launum opinberra starfsmanna. Þetta ætti að vera framkvæmanlegt, en hitt sé ég ekki, að geti gengið til lengdar, að miða launagreiðslur og launauppbætur aðeins við framfærslukostnaðinn, því að það er ekki víst, að tekjur þjóðarinnar í heild og þar með gjaldgetan, breytist í sama hlutfalli og framfærslukostnaðurinn.

Við fyrri umr. beindi ég fyrirspurnum til hæstv. fjmrh. Hann var ekki viðbúinn að svara þeim þá, en þar sem nú er liðinn mánuður síðan, vænti ég að fá svör hans, og vil endurtaka fyrirspurnir mínar.

Fyrsta spurningin og aðalspurningin var um það, hvort stj. teldi ekki jafnsjálfsagt að tryggja, að aðrar stéttir þjóðfél. héldu óbreyttum tekjum sínum. Í öðru lagi spurði ég, hvort stj. hefði í hyggju að bera fram till. um, að ríkissjóður greiði verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir, ef með þarf, til að tryggja þeim mönnum svipaðar tekjur, sem við landbúnað fást, í hlutfalli við aðrar stéttir. Nú eru komnar till. stj. í dýrtíðarmálunum, en þar er engin till. um verðuppbætur á útfluttar vörur, þó að útlit sé fyrir, að þeirra verði þörf.