10.03.1943
Sameinað þing: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (3598)
135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins
Einar Olgeirsson:
Það hefur komið greinilega fram hjá þeim, sem hér hafa talað á móti till., að þeir ætla að fela hv. Alþ. að hefja herferðina til launalækkunar í landinu.
Eftir að ríkið samþ. grundvallarhækkun á launum starfsmanna sinna, þá fylgdu heildsalar og aðrir atvinnurekendur því fordæmi. Afleiðingin af því, ef ríkið felldi launabætur starfsmanna sinna niður, yrði því sú, að slíkar stofnanir mundu lækka kaup starfsmanna sinna. Alþ. væri því bókstaflega að gefa atvinnurekendastéttum landsins merki um, að nú væri kominn tími til að hefja herferð þessa. Þess vegna er sú till., sem hér er um að ræða, raunverulega um það, hvort lækka eigi kaup verkalýðsins eða ekki. Þetta eru nokkurs konar forskærur. Það er því nauðsynlegt að gera sér ljóst, að þetta mál er til þess fallið að skapa öngþveiti í landinu. Ég vil benda hv. þm. V.-Húnv. á það, hvernig framkoman var í garð verkafólksins, þegar markaðurinn lokaðist fyrir fiskinn. Hvað var þá ráðið, sem nauðað var á af Framsfl.? Var það að bæta verkalýðnum upp kauptapið? Nei, eina ráðið til að bjarga útgerðinni var að lækka laun verkalýðsins. Þá var réttlætistilfinningin önnur en nú. En þegar markaðurinn lokast fyrir
aðrar afurðir, þá á að bæta þeim framleiðendum það upp. Ég held því ekki fram, að það sé óréttmætt, en ég held því fram, að það eigi þá að ganga jafnt yfir alla: launamenn, fiskimanninn og bóndann. Það dugar ekki að taka eina stétt út úr og tryggja hana, á meðan allir aðrir eru ótryggðir.
Hv. þm. V.-Húnv. taldi sjálfsagt, að bændur fengju þá uppbót, sem þeir hafa fengið, ef kringumstæður breyttust ekki. En hann er þar að tala um allt annað mál. Það kemur þessu máli ekkert við. Þegar verið er að greiða uppbætur til bænda, þá er ekki verið að tryggja þeim lágmarkslaun og ekki réttarbætur. Það þýðir, að fátæki bóndinn, sem vinnur meira en ríki bóndinn og á að fá eins mikið fyrir sina vinnu, fær minna en ríki bóndinn. Sá, sem slátrar 50 kindum, fær verðlagsuppbót, sem nemur, segjum 2500 kr., en sá, sem slátrar 500 kindum, fær 25000 kr. Ef á að ræða um að tryggja bændur sem v innandi stétt, þá á að ræða um að gefa þeim lágmarkslaun, þannig að hinn fátæki bóndi beri úr býtum fyrir vinnu sína eitthvað ákveðið. Með því vöruverði, sem nú er, geri ég ráð fyrir, að stórbóndinn hafi meira en slík lágmarkslaun mundu vera. En ef hv. þm. V.-Húnv. og aðrir vilja taka bændur í þjónustu ríkisins og greiða þeim laun og uppbætur og tryggja þeim lágmarkslaun, þá hljóta þeir líka að viðurkenna, að ríkið eigi að ráða vinnuafli þeirra. Ef ríkið kaupir vinnu þeirra, þá á það líka að ráða, hvað og hvernig þeir vinna. Það er ekkert vit í því að segja við alla Íslendinga: Vinnið þið nú bara, hver þar, sem hann vill, ég skal launa öllum, borga öllum. Þið eigið allir að fá lágmarkslaun. — Þá hlýtur ríkið að segja um leið: þú átt að vinna þetta, og þú átt að vinna þetta. Ef haldið er áfram eins og þessi till. gerir ráð fyrir og verði hún samþ., þá hlýtur að reka að því, samkvæmt rökfærslu hv. þm. V.-Húnv., að Framsfl. komi fram með kröfu um að tryggja öllum landsmönnum ákveðin lágmarkslaun. Þá fer flokkur inn að hugsa sig um það, ef til vill, hvort ekki yrði að skipuleggja framleiðsluna. Það gleddi mig, ef það kæmi að því. Þá kæmust þeir vitaskuld um leið að þeirri niðurstöðu, að meta ber verðugleika hvers manns eftir vinnu hans í þágu þjóðfélagsins, en ekki eftir því, hve ríkur hann er, hve marga togara eða hve margar jarðir eða fiskibáta hann á.
Hv. þm. V.-Húnv. spurði mig, hvernig ég ætlaðist til, að þjóðfélaginu væri háttað, og hvort ég teldi rétt, að embættismönnum væru tryggð laun, en öðrum ekki. Ég skal segja honum það. Ég álít það óréttlátt, en alveg eðlilegt í þessu braskaraþjóðfélagi, þar sem atvinna er rekin og afurðir framleiddar fyrir óvissan markað. Ef slíku þjóðfélagi er haldið uppi, þá hlýtur svo og svo stór stétt manna, sem telja sig atvinnurekendur, að haldast uppi til að græða, — það verður brask. Meðan þjóðfélagið er þannig skipulagt, þá er eðlilegt, að rær þúsundir, sem selja vinnu sina, vilji fá nóg. En hlutfallslega er það miklu minna, sem þeir græða, en atvinnurekendurnir, sem græða við að nota þeirra vinnuafl. En ef skapa á réttlæti í þjóðfélaginu, þá verður að útiloka brask, en skipuleggja vinnu manna og útrýma því, að einstakir menn, sem kaupa vinnu til að græða á henni, geti braskað þannig með vinnuaflið. En til þess þarf að breyta þjóðfélagsskipulaginu mikið frá því, sem nú er. Þegar það hefur verið gert, þá er kominn tími til að fara að ræða um réttlát vinnulaun allra manna. En ef þetta mál eða framkoma þessarar till. mætti verða til þess, að Framsfl. stigi þetta spor, þá væri það síður en svo til einskis, að till. sem þessi næði samþykki. Annars er það ekki nema eðlilegt, að mál slík sem þessi komi fram. Það stafar af því öryggisleysi, sem vínnandi menn eiga við að búa í þjóðfélagsskipulagi slíku sem við búum við. En það verður ekki tryggt með verðlagsuppbótum, heldur með breytingu á þjóðfélagsskipulaginu.