10.03.1943
Sameinað þing: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í D-deild Alþingistíðinda. (3603)
135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins
Þóroddur Guðmundsson:
Ég vil taka undir með þeim þm., sem vilja, að þetta mál verði afgr. nú. Það er alveg þýðingarlaust að fresta því, þar sem menn munu ekkert skipta um skoðun á till., þó að svo yrði gert. Hér er aðeins um það að ræða, hvort starfsmenn ríkisins skuli halda kaupi sínu óbreyttu. Það vita allir, að vísitalan er of lágt útreiknuð, og þess vegna væri um kauplækkun að ræða, frá því fyrir stríð, ef ekki kæmu þessar sérstöku uppbætur á laun embættis- og starfsmanna ríkisins. Þetta urðu verkalýðsfélögin vör við á síðast liðnu ári og gerðu því samninga við atvinnurekendur um töluverða grunnkaupshækkun til þess að bæta úr því óréttlæti, sem stafaði af hinni fölsuðu vísitölu. Þetta var almennt viðurkennt, og ríkisstj. og þingið viðurkenndu þetta með því að samþ. þessa grunnkaupshækkun til starfsmanna ríkisins. Það er því ekki nema sjálfsagt mál, að framlengja þessa launauppbót. Hv. þm. Str. sagði, að hann væri á móti því að samþ. þessa greiðslu, vegna þess, að ríkið gæti ekki staðið undir þessum greiðslum, en hann færði engin rök fyrir þessu. Hins vegar vitum við það, að það er búið að afgr. fjárl., og við vitum það einnig, að miklar líkur benda til þess, að tekjurnar verði miklu meiri en þær eru áætlaðar í fjárl., jafnvel að þær fari miljónatugi fram úr áætlun, svo að það virðist einkennilegur spádómur að koma fram með það nú, að ríkið muni ekki geta staðið undir þessum greiðslum. Þá er það hv. þm. V.-Húnv. Honum fórust þannig orð, að ekki væri rétt að samþ. þessa till., nema að um leið væri öðrum stéttum þjóðfélagsins tryggðar sams konar tekjur fyrir yfirstandandi ár. Það dylst engum, hvað hann átti við, þegar hann kom með fyrirspurn til hæstv. fjmrh. um þetta. Hann átti auðvitað við verðuppbætur á framleiðsluvörur bænda. Það er alltaf sami tónninn hjá þm. Framsfl., þegar rætt er um slík mál hér í þinginu nú orðið. Það er eins og þeir reikni með því, að bændur verði alltaf dæmdir til þess að verða styrkþegar og hljóti að lifa á öðrum stéttum. En það, að vera alltaf með þennan sultartón, gæti hæglega orðið til þess að æsa aðrar stéttir upp á móti bændunum. Við sjáum glöggt dæmi um þennan tón í rafmagnsmálunum. Einn kaupstaður má ekki koma upp hjá sér rafstöð nema sveitabændur fái einnig rafmagn, og svona mætti lengi telja. Ég gat ekki skilið það hjá hv. þm. Str., þegar hann var að tala um það, að ríkið hefði gert bændum ómögulegt að framleiða og uppbæturnar á framleiðslu þeirra væru ekki annað en réttlátar skaðabætur fyrir það tjón, sem ríkið hefði unnið. Ríkið hefur undanfarið verið Framsfl., og hvar er þá þetta tjón, sem Framsfl. hefur unnið bændum, það væri fróðlegt, ef hv. þm. Str. vildi upplýsa þm. um það. Hjá hv. þm. Barð. kom fram sjónarmið atvinnurekandans, það að fá ríkið til þess að brjóta ísinn fyrir atvinnurekendur og hjálpa þeim til þess að koma á almennri kauplækkun í landinu. Hins vegar mun meiri hl. hv-. þm. ekki vilja láta ríkið blanda sér í þau mál. og treysti ég því þess vegna, að þessi till. verði samþ., hún er ekki annað en sjálfsagt mál.