10.03.1943
Sameinað þing: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í D-deild Alþingistíðinda. (3604)
135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins
Jakob Möller:
Það er aðeins út af orðum, sem féllu hjá hv. 2. þm. S.-M. og hv. þm. Str. Þeir telja sjálfsagt, að uppbætur, sem hafa verið greiddar af stj. til einstakra launastétta, án þess að fyrir því hafi verið lagaheimild, hafi átt að falla niður, þegar samþ. voru aukauppbætur á laun embættismanna á sumarþ. Ég vil út af þessu aðeins leggja fyrir þessa hv. þm. eitt dæmi. Á sínum tíma samþ. stj. að greiða héraðslæknum uppbætur á þann hátt, sem kunnugt er, að greiða þeim verðlagsuppbót á laun, sem þeir ekki fengu. En til þess að bæta þeim þá launaskerðingu, sem þeir urðu fyrir, í samanburði við dýrtíðina, við það, að taxti þeirra fyrir unnin læknisverk var ekkert hækkaður, féllst stj. á að greiða þessar uppbætur heldur en að hækka læknataxtann. raunar í þeirri meiningu, að þeirri greiðslu til þeirra fyrir unnin læknisverk yrði hætt síðar. Nú segja þessir tveir þm., að þessar uppbætur séu ekkert annað en dýrtíðaruppbætur og að læknataxtinn hefði átt að falla niður, um leið og læknarnir fengu sams konar uppbót og aðrir starfsmenn ríkisins. Ég skil ekki þessa röksemdafærslu. Ef réttlátt var nokkru sinni að bæta laun lækna með þessum hætti, þá var það auðvitað jafnréttlátt eftir almennum uppbótum á laun annarra starfsmanna ríkisins, því að læknar fengu ekkert annað en það, sem aðrir starfsmenn ríkisins fengu. Auðvitað áttu þá þessar uppbætur á taxtana að hækka jöfnum höndum. Þetta var þess vegna misskilningur. Ég þykist sjá, af hvaða ástæðum þessir hv. þm. halda því fram nú, að um leið og 25–30% uppbæturnar voru samþ. á laun embættismanna, hefðu fyrri launauppbæturnar samhliða átt að falla niður. Þetta er auðvitað af því, að þeir voru þá farnir úr stj. og telja það nú henta að ganga frá því, sem áður var gert, eftir sem áður alveg sömu rökin fyrir þeim uppbótum eins og í upphafi. Ég vil þá mótmæla þeirri staðhæfingu hv. 2. landsk., að dýrtíðarvísitalan sé fölsuð. Hún er reiknuð út af hlutlausri ríkisstofnun eftir þeim aðferðum, sem hægt er að finna réttastar. Ég ska1 taka það fram, að verkalýðsfélögin fengu aðstöðu til þess að fylgjast með því, hvernig þetta er gert, og hefðu því trúnaðarmenn þeirra átt að vita um það, ef uppbótin væri rangt reiknuð út, enda er þetta fjarstæða ein, sem ekki hefur við rök að styðjast.