16.03.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í D-deild Alþingistíðinda. (3621)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Forseti (HG):

Ég vil svara fyrirspurn hv. þm. N.-Þ., að því er snertir það, hvort brtt. hans, sem synjað var um afbrigði fyrir á fundi fyrir nokkrum dögum, gæti komið til atkv., á þá leið, að samkv. þingsköpum er það ekki hægt. Það er ekki hægt að taka til atkv. till., sem ekki hefur verið kostur að ræða. Afbrigða var synjað fyrir þessari till., og sé ég mér ekki fært að láta hana koma undir atkv.

Að því er snertir þau orð, sem hann beindi til mín í sambandi við ræðu hv. 10. landsk., þá vil ég benda á, að ég ætla, að ég hafi tekið fram í fyrir hv. 10. landsk. og bent honum á, að þessi till. væri ekki til umr. Mér skildist, að aðfinnslur hans væru þær, að samkvæmt þingsköpum mætti till. ekki komast að, vegna þess að hún færi í bág við l., og lét ég því það óátalið, sem hann sagði, því að mér skildist, að það væru þingsköp, sem hann ræddi um.