16.03.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í D-deild Alþingistíðinda. (3638)
128. mál, þjóðleikhúsið
Flm. (Kristinn Andrésson):
Herra forseti. — Á þskj. 291 flyt ég ásamt nokkrum öðrum till. um að fá þjóðleikhúsið rýmt hið allra fyrsta. Það þarf í rauninni ekki að fara um það mörgum orðum, því að öllum er ljóst, hvílík nauðsyn er á, að það fáist rýmt sem fyrst. Það er orðið þjóðinni til smánar, hve lengi hefur dregizt að ljúka smíði þess, fyrst hún á annað borð réðst í svo stóra framkvæmd. Það er búið að standa þannig í 12 ár. Nú síðustu árin hefur það verið vörugeymsla erlends setuliðs, og er óverjandi, að svo verði áfram.
Einnig ber að líta á þá aðstöðu, sem leikfélagið býr við. Hún er óhæf, því að félagið hefur engan stað til æfinga. Hús það, sem félagið hefur notazt við, er ónothæft, en leigan er svo há, að starfsemin ber sig því aðeins, að húsið sé troðfullt hvert kvöld. Veit ég, að ekki eru skiptar skoðanir þm. á nauðsyn þess, að málið nái fram að ganga. Spurningin er aðeins sú, hvort möguleiki sé á að fá húsið rýmt þegar í stað. En húsið er mjög lítið notað, og trúi ég ekki öðru en að hægt sé að færa nógu sterk rök að því, hver nauðsyn er á, að við fáum það í okkar hendur hið fyrsta. Tilraunir í þessa átt hafa ekki borið árangur enn. Flm. þessarar till. eru þm. úr öllum flokkum, og munum við ýta undir ríkisstj., að hún láti til skarar skríða. Tel ég ótrúlegt, ef ekki er hægt að sannfæra setuliðsstj, um, að leikfélagið þurfi á húsnæðinu að halda, og álít ég það varla samboðið heiðri brezka heimsveldisins, að setuliðið skuli hafa þjóðleikhús okkar Íslendinga fyrir vörugeymslu. Hef ég engar till. um að vísa málinu til n., en ástæðulaust að vísa því aftur til fjvn.