05.04.1943
Sameinað þing: 38. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í D-deild Alþingistíðinda. (3685)

163. mál, kaup gistihúsið Valhöll

Þorsteinn Þorsteinsson:

Út af fyrirvara, sem ég hef á undirskrift minni undir nál. á þskj. 625, vil ég geta þess, að ég tel, að undirbúningur þessa máls sé þannig, að ekki verði séð, hvað fram undan verður. Ríkisstj. á að kaupa gistihúsið, en ekkert er sagt um það, hvað gera eigi við það, hvort leigja eigi það eða reka á annan hátt. Ég tel, að búa megi við það ástand, sem nú er, og þykir mér vafasamt, að skipt yrði um til batnaðar með því að kaupa gistihúsið. Ég er eftir athugun nokkra á þessu máli því fylgjandi, að ekki sé hraðað kaupum á því, er þáltill. fer fram á, og get því ekki óskorað fylgt þessu máli eins og það er. Væri réttara að bíða með þetta eitt ár eða svo, því að í þessu atriði veit maður, hverju maður sleppir, en ekki, hvað maður hreppir.