06.04.1943
Sameinað þing: 39. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (3699)

149. mál, síldarbræðsluverksmiðjan Ægir í Krossanesi

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Herra forseti. Út af þeirri þáltill., sem hér liggur fyrir um Krossanesverksmiðjuna, vil ég upplýsa: Í fyrsta lagi, að það er rétt, sem hv. þm. Ísaf. (FJ) tók fram, að það hafa verið gerðar að undanförnu nokkrar tilraunir til að fá þessa verksmiðju keypta handa Síldarverksmiðjum ríkisins. En þetta mál stendur þannig nú, að ég geri ekki ráð fyrir því, að vert sé að reikna með því, að af þessum kaupum geti orðið, eins og nú standa sakir.

Um hitt atriðið, sem hv. þm. spurði um, hvort von væri til þess, að hægt væri að losna við lýsið, sem geymt er í verksmiðjunni, þá get ég ekkert fullyrt um það. En ég geri mér töluvert miklar vonir um það, að úr því máli muni rætast, þannig að lýsið geti orðið farið úr geymum verksmiðjunnar, áður en síldarvertíð byrjar í sumar. Eins og það mál stendur nú, þá finnst mér vera ástæða til að gera sér von um þetta.

Um það atriði, hvort hægt muni vera að fá verksmiðjuna leigða með frjálsum samningum, get ég ekki fullyrt heldur. En mér þykir það mjög líklegt, þar sem hér á landi eru taldir vera umboðsmenn fyrir eigendur verksmiðjunnar. Þetta umboð notuðu þeir fyrir tveimur árum síðan. Og eftir viðræðum við þessa menn fyrir nokkru síðan, vírðist mér ekki rétt að gera ráð fyrir því, að samningar muni ekki takast um þetta. Hins vegar, ef tími væri til þess að fá afgr. gegnum þingið leigunámslög um þessa verksmiðju, þá má segja, að allur sé varinn góður og það gæti styrkt aðstöðuna í samningunum um leigu verksmiðjunnar. En eins og ég sagði áðan, virðast mér líkur til þess, að frjálsir leigusamningar muni geta tekizt.