21.01.1943
Neðri deild: 39. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (370)

119. mál, verðlag

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. — Varðandi rökin fyrir því, að 3. gr. sé nauðsynleg, eins og hún er, vil ég segja, að það, sem hæstv. ráðh. tilkynnti fjhn., var, að hann hefði hugsað sér. Að fimm menn væru í ráðinu, en síðar tilkynnti hann, að hann hefði breytt þessu, nefnilega svo, að tveir menn skyldu ekki sitja í því, þegar um verðlagsákvæði væri að r æða, sem sé mennirnir frá S.Í.S. og verzlunarráðinu. Hann sér, að það er óheppilegt. En Alþ. gerir þá ákvörðun, að það skuli engir vera í ráðinu, sem hafi hagsmuna að gæta, þ.e. mennirnir frá S.Í.S. og verzlunarráðinu eiga alls ekki að vera þarna. Þar fellur burt röksemdin, sem fékk hæstv. ráðh. til að tilkynna fjhn., að þessir tveir menn skyldu ekki hafa atkv.- rétt um verðlagsmál. 3. gr. er því óþörf, og það er aðeins eitt, sem getur komið henni í rökrétt samband við málsmeðferðina, sem sé,:a ríkisstj. hafi farið í kringum 1. gr. l. um gjaldeyrismeðferð.