16.03.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í D-deild Alþingistíðinda. (3710)

157. mál, strandferðabátur fyrir Austurland

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Það hefur lengi verið ljóst þeim, sem kunnir eru málavöxtum, að mikil þörf er á að fá bættar samgöngur á sjó við Austurland. Að vísu batnaði ástandið talsvert um skeið, þegar nýja Esja kom, en þó var fljótt ljóst, að ekki einu sinni sú ráðstöfun ein var við unandi til frambúðar. Hefur einkum verið áberandi, að stöðugt er skortur á nægilega fullkomnum samgöngum heima fyrir milli fjarða.

Nú þegar farið er að rannsaka, hvernig bezt sé að rannsaka samgöngumálin innan fjarða, hefur komið greinilega í ljós, að það er ekki hægt að slíta innanfjarðasamgöngurnar fullkomlega frá heildarsamgöngunum, þ.e.a.s. samgöngunum við aðra landshluta. Eftir því sem samgöngurnar þar heima fyrir eru ófullkomnari, hljóta kröfurnar að verða meiri um, að stóru strandferðaskipin komi á allar hafnir, hvort sem þær eru stórar eða smáar og hvort sem þar er mikið eða lítið að gera. Við athugun hefur komið í ljós, að hægt er, ef samgöngurnar innan fjarða eru nægilega fullkomnar, að létta mjög starfsemi stóru strandferðaskipanna, þó auðvitað með því móti, að flutningum sé hagað á skipulegan hátt.

Þess vegna er það, að hér er lagt til, að samgöngumál Austurlands verði leyst nokkuð með öðrum hætti en áður hefur verið rætt um, sem sé með því móti, að ríkið eignist stóran strandferðabát, sem tæki að sér að ferðast innan fjarða, og ferðir hans síðan settar nákvæmlega í samræmi við ferðir annarra strandferðaskipa, og þá væntanlega sparaðist þeim talsverður tími og kostnaður frá því, sem annars hefði þurft að vera. Að vísu hefur það verið svo, að smærri hafnirnar hafa verið út undan, vegna þess hve stóru skipin hafa haft mikið að gera. Ég segi, að það mætti spara mikinn kostnað við stóru skipin frá því, sem þyrfti að vera, ef málunum er komið í þetta horf.

Okkur er ljóst, að hér er um nýjung að ræða að því leyti, að við förum fram á, að ríkið eignist og reki slíkan strandferðabát. Og með því móti ætti að vera hægt að hafa kerfið fullkomnast, bæði ódýrara og hentugra, þegar á heildina er litið, og eins hentugra fyrir þá, sem eiga að hafa not af því.

Nú mætti í fljótu bragði virðast mega skjóta því fram, að með þessu móti vær í verið að binda ríkinu miklu meiri bagga í sambandi við strandferðirnar en áður hefur verið. En í því sambandi vil ég sérstaklega benda á, að undanfarið hefur það verið svo, að ríkið hefur látið mjög ríflega stofnstyrki til flóabáta. Og reyndin hefur orðið sú, að ríkið hefur greitt nærri allan rekstrarhalla, sem orðið hefur á útgerð slíkra flóabáta úti um land. Það hefur því í raun og veru verið ríkisábyrgð á þessum rekstri, en stofnfjárframlagið heiman að frá. Nú þætti mér ekki ólíklegt, ef þessi samgöngumál væru tekin í eina heild, þá mætti spara verulega og það kæmi þá á móti stofnfjárframlaginu frá einstökum héruðum, þegar ráðizt hefur verið í að kaupa bát til þessara ferða. Ég dreg þess vegna mjög í efa, að það verði kostnaðarauki fyrir ríkissjóð, að þessi nýja stefna verði tekin upp í strandferðamálunum. Hins vegar verður auðvitað að setja um það reglur, þannig að það verða að vera takmarkanir fyrir því, hvað ríkið hefur með höndum af þessum ferðum og hvað hin einstöku héruð. En það ætti að liggja í augum uppi hverjum kunnu,um manni, ef út á þá braut er farið, sem ég legg hér til, að ríkið annist slíkar ferðir innan fjórðunganna, þá liggur fyrst fyrir, að ríkið taki að sér slíkar ferðir fyrir Austurlandi, og þá sjálfsagt nokkuð jöfnum höndum á Vestfjörðum. Ég held, að undanfarið hafi menn of mikið bundið sig við það, að ríkið ætti ekki að eiga önnur skip en þau, sem væru svo öflug, að þau gætu gengið alveg umhverfis landið. En ég held, að það sé alveg fullkomlega tímabært að endurskoða þessa stefnu og að þingið athugi það, hvort það geti ekki fallizt á þessa till. okkar flm. í þessu efni, sem sé, að ríkið byggi eða kaupi um 100 smátesta strandferðabát, sem hafi með höndum ferðir innan Austfirðingafjórðungs, og áætlun hans verði í nánu samræmi við áætlun stærri skipa ríkisins og reynt verði að koma þessum samgöngum á sem ha,ganlegastan hátt fyrir með tilliti til heildarrekstrarins. Og ég dreg mjög í efa, að af þessu verði í framkvæmdinni aukinn rekstrarkostnáður. Ég vil einnig benda á í þessu samhandi, að ef þetta vær í algerlega aðskilið, þ.e. samgöngurnar innan fjórðungsins annars vegar og hins vegar milli hans og annarra landshluta, eins og víðast hvar er, þá eru þau vandkvæði á því, að þessar innanfjórðungsferðir mundu yfirleitt bera sig lakar heldur en lengri ferðirnar, og þannig mundi annar aðilinn sitja uppi með la~ari ferðir, en hinn aðilinn, sem er Skipaútgerð ríkisins, hefði betri kostinn. Og frá þessu sjónarmiði er einnig tvímælalaust rétt að hafa þetta saman. Það verður líka þannig, að verði hald?ð áfram með þá sömu stefnu í þessu, sem verið hefur, þá verður enn sem að undanförnu mjög mikill metingur milli þessara aðila, sem annast ferðirnar, um það, hvaða hlutverk hvor þeirra um sig hefur með höndum. Það reynir hvor u:n sig að ýta viðkomum á höfnum sem mest á hinn aðilann, og það fæst aldrei sú heildarskipun á þessu máli, sem fullkomnust megi teljast frá almennu sjónarmiði, meðan svo er.

Nú er okkur flm. mikið áhugamál, að hæstv. Alþ. vildi fallast á þessa till. okkar og sá vitji þingsins gæti komið fram nú á þessu þingi. Ég mun þess vegna reyna að flýta fyrir málinu með því að hafa ekki þessi framsöguorð fleiri. En ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir, að hv. þm. muni vísa þessari þáltill. til hv. fjvn. að lokinni þessari. umr.

Þetta mál hefur fengið nokkurn undirbúning. Það hefur verið lagt fyrir samvn. samgöngumála hér í þinginu til athugunar. Og samvn. samgöngumála í deildunum hefur fengið umsögn forstjóra Skipaútgerðar ríkisins um þetta mál og þá stefnu, sem hér er stungið upp á í samgöngumálum. Og forstjóri skipaútgerðarinnar hefur alveg eindregið mælt með því, að gengið sé inn á þessa braut. Hins vegar höfum við ekki enn fengið álit samvn. samgöngumála beggja d. En ég veit, að við flm. munum telja eðlilegt, að hv. fjvn. afli sér upplýsinga frá samvn. samgöngumála í þessu máli. Og væntum við flm. stuðnings þeirrar n. í málinu, eftir að hún hefur kynnt sér alla málavexti. En samvn. samgöngumála er kunnugust öllu, sem að þessu máli lýtur, og þess vegna er eðlilegt, að álits hennar verði leitað. Við flm. vonumst til þess, þó að þessi háttur verði hafður á að leita álits samvn. samgöngumála, þá verði svo á þessu máli haldið, að það þurfi ekki að valda óeðlilegri töf, þar sem líka talsvert langt er síðan við sendum samvn. samgöngumála álitsgerðir og till. um málið, sem okkur tillögumönnum höfðu verið sendar af sýslumönnum og bæjarstjórum á Austurlandi, sem allt er greint í grg. þáltill. þessarar.

Eins og ég hef tekið fram, legg ég til, að þáltill. verði að lokinni umr. vísað til hv. fjvn.