29.03.1943
Sameinað þing: 34. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í D-deild Alþingistíðinda. (3732)
150. mál, jarðeignarmál kaupstaða, kauptúna og sjávarþorpa
Jón Pálmason:
Hv. 1. flm. er ekki viðstaddur, en ég vil geta þess út af ræðu hv. frsm., þar sem hann sagði, að hér væri ekki mikið rannsóknarefni, að við flm. lítum öðrum augum á það, því að eitt helzta deilumálið hér á þingum undanfarin ár hefur verið, hvernig ætti að fullnægja landþörf kaupstaða og kauptúna. Það er svo mikið stórmál að undirbúa löggjöf um það efni, að það er nokkurn veginn víst, að það verður ekki gert, nema þar fari fyrst fram nákvæm athugun.
Ég skal ekki leggja mikla áherzlu á, hvort brtt. allshn. verður samþ. eða ekki, en ég tel það ekki til neinna bóta, sem er aðalbreyt. hjá n., að n. sé skipuð af stj. í stað þess að Alþ. kjósi hana.