29.03.1943
Sameinað þing: 34. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í D-deild Alþingistíðinda. (3733)

150. mál, jarðeignarmál kaupstaða, kauptúna og sjávarþorpa

Pétur Ottesen:

Það er vafalaust full ástæða til að greiða götu þess, að þeir menn, sem í kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum búa, sem lifa kannske að langmestu leyti á sjávarútvegi, iðnaði og annarri atvinnu, sem um er að ræða á þessum stöðum, fái aðstöðu til þess að geta einnig stuðzt við nokkur jarðarafnot. Það hefur viða reynzt hagkvæmt og til fjárhagslegs öryggis, auk þess sem það hefur í för með sér holl uppeldisáhrif barna og unglinga að eiga þess kost að alast upp við þau skilyrði. Hitt er atriði út af fyrir sig, hvernig þessi aðstaða verður bezt tryggð.

Alþ. hefur engan veginn látið þetta mál afskiptalaust. Hefur oft verið sinnt beiðnum, sem fram hafa komið frá bæjarstjórum, hreppstjórum og öðrum stjórnarvöldum þessara staða. Þeim hefur verið sinnt með þeim hætti, t.d. þar, sem ríkið hefur átt landið í kaupstöðunum eða nærri þeim, að það hefur selt viðkomandi kaupstað eða kauptúni landið, til þess að það yrði notað í þessu skyni. Einnig hefur í öðrum tilfellum verið greidd gata þess, að kaupstaðir og kauptún hafi getað fengið bætta aðstöðu sina að þessu leyti með því, að þau hafa getað fengið keyptar eignir einstakra manna, sem stundum hafa verið lagðar undir lögsagnarumdæmi viðkomandi staða. Mætti rekja nokkur dæmi þess, að greitt hefur verið fyrir þessu á þennan veg. Einnig voru samþykkt l. 1941, þar sem ríkinu er heimilað að kaupa jarðir, lóðir og lönd í kaupstöðum og sjávarþorpum og í grennd við þau, eftir því sem þörf er á, samkvæmt þeim fyrirmælum, sem í lögum þessum greinir. Þar er svo gert ráð fyrir, að þetta verði gert í þeim tilfellum, þar sem hreppurinn eða bæjarfélagið sjálft er þess ekki megnugt að kaupa slík lönd, sem svo á að nota í þessu skyni. Þegar svo ríkissjóður hefur með þessum hætti keypt þessi lönd eða lagt til lönd, sem ríkið á sjálft eða keypt þau af öðrum, og ef kaupin hafa ekki getað gengið með venjulegum hætti, þá hefur verið veitt heimild til að beita eignarnámi til að fá þessi lönd keypt. Svo er gert ráð fyrir, að ríkið smám saman selji þessum bæjar- og sveitarfélögum löndin, og þegar um stór lönd er að ræða og þau hafa tök á að nota þau, geta þau fengið löndin keypt með sérstökum ákvæðum. Með þessum hætti hefur verið gengið alllangt í að greiða fyrir þeirri aðstöðu, sem ég í upphafi ræðu minnar lýsti. Það eru að vísu til nokkrar skorður fyrir því, að gengið sé úr hófi fram á rétt þeirra sveitarfélaga, sem liggja nærri kaupstöðum og kauptúnum, þannig að þessi útfærsla atvinnuskilyrða kaupstaðanna verði ekki í verulegum mæli til þess, að niður leggist búskapur og búrekstur í sömu hlutföllum í þeim hreppum, sem þar liggja að, og að um of sé skert sjálfstæði þeirra.

Ég skil því ekki í sjálfu sér, að hér sé svo ákaflega brýn þörf út frá þessu sjónarmiði að fara nú að hleypa af stokkunum mþn. til að rannsaka þetta, meðan ekki hefur reynt meira en orðið er á þá framkvæmdamöguleika, sem kaupstaðir og kauptún geta fengið samkv. l. frá 1941, og að því leyti get ég tekið undir það, sem kom fram hjá hv. frsm., að það, sem þætti ástæða til að gera til viðbótar við það, sem flestir telja fyrirsjáanlegt, að gert muni samkv. gildandi l., það gæti þá orðið athugun, sem stj. léti framkvæma í þessu sambandi án nefndarskipunar. (Út frá þessu sjónarmiði sé ég ekki, að nein þörf sé á slíkri nefndarskipun.

En mér virðist, að það sé annað, sem fram kemur í þessari þáltill., sem sé í raun og veru nokkurt nýmæli. Mér virðist, að verið sé að fitja upp á að koma inn í löggjöfina sérstökum skilningi á eignarréttarhugmyndinni í landinu. Í þessari till. er lögð megináherzla á það og sérstaklega undirstrikað í grg., að það sé sérstakt rannsóknarefni og sérstakt verkefni fyrir þá n., sem hér á að skipa, að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir óréttmæta verðhækkun, eins og það er orðað. Og svo er nánar útskýrt, hver þessi óréttmæta verðhækkun sé, en það er sú verðhækkun, sem kann beint eða óbeint að stafa af framkvæmdum frá því opinbera, því að slík verðhækkun eigi að vera almennings eign. Mér skilst þess vegna, að þegar miðað er við það, sem Alþ. hefur gert til þess að greiða fyrir kaupstöðum og kauptúnum með þeirri löggjöf, sem um það var sett 1941, þá sé það ef til vill megintilgangur þessarar till. að koma inn í löggjöfina þessari skilgreiningu á eignarrétti og gera ráðstafanir gegn því, sem þar er kallað óréttmætur eignarréttur. Mér virðist svo mikil áherzla lögð á þetta atriði í till., að þar sé í raun og veru meginástæðan til þess, að hún er fram komin, og það eigi að vera aðalverk n. að draga línu á milli þess, sem sé réttmætur og óréttmætur eignarréttur. Það er að vísu ekki gengið lengra í þessari þáltill en að þetta skuli taka til kaupstaða og kauptúna og þar skuli gera þennan greinarmun. En þar sem grundvöllurinn undir þessu er sá, að þessi óréttmæta verðhækkun, sem svo er nefnd, skapast í þessum kaupstöðum og kauptúnum vegna þess, að hið opinbera hefur veitt þar fé til ýmissa framkvæmda, þá leiðir af sjálfu sér, að sama máli gegnir um þær framkvæmdir, sem gerðar eru úti í dreifbýlinu, sem að meira eða minna leyti styðjast við fjárframlög og atbeina hins opinbera. Og þegar búið er að lögfesta slíkt gagnvart þéttbýlinu, þá getur verið, að þess verði ekki langt að bíða, að lengra verði gengið og þetta verði látið taka smátt og smátt til slíkra aðstæðna, hver sem er á landinu.

Mér skilst, að ef það væri einungis tilgangurinn með þessari till. að greiða fyrir því, að kaupstaðir og kauptún ættu þess kost að kaupa land til þeirra nota, sem ég gat um áðan, þá væri það bezt gert með breyt. á l. frá 1941, þar sem væri enn betur greitt fyrir því, að kaupstaðir og kauptún gætu eignazt land eftir þörfum. Ég vil þess vegna gera fyrirspurn um það til hv. flm. till., hvernig þeir í raun og veru hugsi sér, að þessi greinarmunur verði gerður, og hvort afleiðingin af því hljóti ekki að vera sú, að þetta komi til með að taka til allrar þeirrar verðhækkunar á landeignum, sem á einhvern hátt hefur átt sér stað fyrir aðgerðir hins opinbera, hvar sem þessar jarðeignir eru, því að það er alveg rétt, að hafnargerðir og aðrar framkvæmdir, sem skapa aukin lífsskilyrði í kaupstöðum og kauptúnum, hafa það í för með sér, að þangað streymir fólk, og þau skilyrði, sem þarna skapast, verða þá einnig til þess, að þarna þykir eftirsóknarvert að vera, og það leiðir til þess, að þau verðmæti, sem þarna eru og geta nú staðið undir meiri framleiðslu, þau hækka í verði. Sama máli gegnir um vegagerðir og símalagningar úti um sveitir landsins, því að þær greiða götu aukinna viðskipta. Þetta allt saman verður þess valdandi, að meira er upp úr framleiðslunni að hafa en áður á þessum stöðum, og það verður til að gera það land, senn hún byggist á, verðmætara en áður, meðan ekki var hægt að koma framleiðslunni á markað nema endrum og eins, en það stóð í vegi fyrir, að hægt væri að reka þar nema einhæfan búskap. Ég tala ekki um, þegar sá draumur rætist, sem okkur alla dreymir um og hugir okkar stefna að, að geti orðið að veruleika, að rafmagn komist út um byggðir landsins, sem kaupstaðir og kauptún njóta nú góðs af. Þegar þetta er komið í kring, þá verður það til að lyfta sveitunum meira en við í fljótu bragði gerum okkur í hugarlund, og þá má einnig líta svo á, að þarna megi gera sams konar greinarmun og gert er ráð fyrir í þessari till. á réttmætri og óréttmætri verðhækkun.

Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu hér, af því að þetta kemur svo greinilega fram bæði hjá hv. flm. og einnig hjá n., sem hefur tekið undir þetta með því að setja inn í þáltill. eins og hún vill orða hana svipað orðalag og þetta, þó að þar sé að vísu ekki alveg eins fast að orði kveðið og gert er í sjálfri tillgr. hjá flm. og ekki jafnákveðnum orðum farið um þetta í ræðu hv. frsm. og gert var í grg.

Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta, en vil mjög vekja athygli á þessu atriði, sem svo greinilega skýtur hér upp höfðinu og kemur einnig fram í hinni umorðuðu till., sem allshn. leggur til, að verði,samþ. um þetta atriði. Mér þykir því meiri ástæða til að gera þetta nú, þar sem að því er virðist, hefur dregið úr þeirri hugmynd, sem kom fram fyrir nokkrum árum í sambandi við jarðræktarlögin, þar sem gengið var inn á þessa sömu braut með 17. gr. þeirra laga. Það var viðurkennt þá í upphafi a.m.k. af sumum, sem að þeim ákvæðum stóðu, að mjög væri eðlilegt, að sá styrkur, sem veittur væri samkv. jarðræktarlögunum, rynni ekki óskorað eða kæmi ekki fram sem óskoruð eign viðkomandi manna, sem að framkvæmdunum stæðu og fengju styrkinn, heldur yrði sá hluti jarðarinnar, sem styrknum næmi, greinilega aðgreindur frá þeirri raunvegulegu eign eiganda jarðarinnar. Að vísu var einnig haldið fram af öðrum, sem að þessu stóðu, að auk þess hefði þetta ákvæði þýðingu í þá átt að halda niðri jarðaverði. Og eftir þá miklu andúð og þær deilur, sem urðu í landinu um þetta atriði, þá urðu í raun og veru flestir, ef ekki allir, sem að því stóðu að taka upp þetta ákvæði, tiltölulega fljótt hraktir út af þeim grundvelli, að þetta væri í því augnamiði gert að aðskilja þannig og láta þannig koma fram tvenns konar eignarrétt í öðru augnamiði en því að halda niðri jarðaverðinu, þó að hitt væri hugsunin upprunalega, a.m.k. hjá sumum ,sem að þessu stóðu, að með þessu móti eignaðist ríkið hluta í þessum jarðeignum, eins og það líka gerir. Mér finnst þess vegna, að þar sem þær deilur, sem af þessu risu upp í landinu, hafa að mestu horfið, svo að eftir er aðeins herzlumunurinn, að samkomulag verði um að nema þetta ákvæði alveg burt úr jarðræktarlögunum, — það er aðeins herzlumururinn, sem vantar, til þess að það verði gert með góðu samkomulagi a.m.k. allra fulltrúa bænda, — þá sé það einkennilegt, að samtímis því skuli þessi ákvæði nú skjóta upp höfðinu svo greinílega sem raun ber vitni í þessari þáltill. og þar skuli vera hafin aftur sams konar herferð á eignarréttinn í landinu með því að gera greinarmun á réttmætri og óréttmætri verðhækkun.

Ég skal svo ekki fara lengra út í þetta að svo stöddu. Ég vil aðeins óska eftir, að hv. flm. skýri frá, hvernig þeir vilja draga fram markalínuna milli réttmætrar og óréttmætrar verðhækkunar, ekki aðeins í kaupstöðum og kauptúnum, heldur í landinu í heild.