01.04.1943
Sameinað þing: 37. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í D-deild Alþingistíðinda. (3763)

104. mál, aukauppbót á styrki til skálda, rithöfunda, vísindamanna og listamanna

Barði Guðmundsson:

Herra forseti. — Hv. 2. landsk. þm. kvað því hafa verið haldið fram í fjvn. af einhverjum nm., að ekki hafi verið greidd aukauppbótin á styrki þá, er standa á 18. gr. fjárl. Nú vil ég beina þeirri fyrirspurn til form. fjvn., hvaða hv. nm. hefur leyft sér að hafa slík ummæli. Í nál. menntmn. Nd. er skýrt tekið fram, að þetta hafi verið gert, og það er gersamlega óafsakanlegt að halda hinu gagnstæða fram, þegar hið sanna í málinu er upplýst.

Þá var hv. þm. S.-Þ. að tala fyrir hönd meiri hl. fjvn. í þessu máli. Í nál. þess meiri hl. hef ég verið að leita eftir einhverjum rökum gegn till. hv. menntmn., og maður skyldi nú ætla, að þar væri einhver rök að finna, en svo var ekki. Þess vegna bjóst ég við, að þau ættu að koma í ræðu hv. þm. S.-Þ., en þau komu ekki heldur þar, eins og reyndar mátti búast við, því að málstaður meiri hl. hv. fjvn. er þannig, að hann er gersamlega óverjandi Þá var hv. þm. að tala um það sem einhvern stórávinning fyrir þá listamenn, sem voru á 15. gr. fjárl., að þeir hefðu notið dýrtíðaruppbótar og að sú uppbót væri einhverjar kjarabætur fyrir þá. Hvað sýnist nú hv. þm. um þetta ? Hvernig er hægt að kalla dýrtíðaruppbót kjarabót? Ég held mér sé óhætt að segja, að dýrtíðaruppbótin verður ekki til þess að gera listamennina okkar feitari en þeir voru áður en dýrtíðarflóðið skall á. Það er annars furðuleg fjarstæða, sem ekki er svaraverð, að dýrtíðaruppbót sé kjarabót.

Hv. þm. S.-Þ. var einnig að tala um það, að nú væri góðæri fyrir listamennina í landinu, og vitnaði m.a. í það, að Kjarval hefði selt málverk fyrir 50 þús. kr. á seinustu sýningu sinni hér í Rvík. Það kann vel að vera, að Kjarval hafi selt vel í þetta sinn, en af því eina dæmi verður lítið ráðið um góðæri hjá listamönnum yfirleitt. Við vitum, að hið gagnstæða á sér stað, og á það jafnt við um alla flokka listamanna, þótt einstaka maður meðal þeirra kunni að hafa bætt hag sinn nokkuð. Og að sjálfsögðu verður hér að miða aðgerðir í fjárveitingum við heildina, en ekki einsdæmin. Hefur hv. þm. S.-Þ. talað af ókunnugleika um kjör íslenzkra listamanna nú og áreiðanlega dregið meir en hæpnar ályktanir út af sögunni um myndasölu Kjarvals.