05.04.1943
Sameinað þing: 38. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í D-deild Alþingistíðinda. (3784)

161. mál, síldarmjöl til fóðurbætis

Finnur Jónsson:

Þessu máli hefur áður verið frestað vegna þess, að hæstv. atvmrh. var ekki viðstaddur. Nú er enn eins ástatt, en þar sem þetta er mál, er varðar þau efni, sem hæstv. atvmrh. hefur með höndum, væri æskilegast, að hann væri viðstaddur, er málið er afgreitt. Vil ég því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann fresti málinu.