06.04.1943
Sameinað þing: 39. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í D-deild Alþingistíðinda. (3792)
161. mál, síldarmjöl til fóðurbætis
Forseti (HG):
Hv. 2. þm. N.-M. skaut því til mín sem forseta, hvort ég teldi ekki rétt að úrskurða brtt. hv. þm. Ísaf. sem bann á að fylgja gildandi l., að mér skilst. Ég veit ekki, hvort hv. þm. heldur við þessa ósk sína, en ég tel það fjarri öllum sanni. Það segir sig sjálft, að l. halda sér þrátt fyrir þáltill., og ætla ég, að þetta muni nægja, en ef þm. óskar úrskurðar, get ég kveðið hann upp.