12.04.1943
Sameinað þing: 41. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í D-deild Alþingistíðinda. (3829)

171. mál, læknislaus héruð

Flm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. — Ég hef ásamt hv. þm. Barð. leyft mér að flytja till. til þál. um áskorun til hæstv. ríkisstj. þess efnis að gera einhverjar ráðstafanir til úrbóta, þar sem svo er ástatt, að sum héruð í landinu eru alveg læknislaus. Get ég vísað í þessu sambandi til grg., þar sem talin eru upp 4 héruð, sem eru nú læknislaus, en þau eru: Reykhólahérað, Flateyjarhérað, Reykjarfjarðarhérað, Hróarstunguhérað. Þarf ekki að eyða orðum að því, hve erfitt er fyrir það fólk, er þarna býr, að leita sér læknis, enda er með öllu óviðunandi, að slíkt sé látið viðgangast, án þess að nokkuð sé að gert. — Það kemur iðulega fyrir, eins og hv. þm. er kunnugt, að líf liggur við, að hægt sé að ná til læknis nógu fljótt, þegar um alvarleg veikindi eða slys er að ræða. Einnig verða héruð oft læknislaus um langan tíma vegna veikindaforfalla lækna. — Þannig hefur t.d. læknirinn í Ólafsvík verið veikur frá því um miðjan vetur, og hefur læknirinn í Stykkishólmi orðið að gegna þar læknisstörfum lengst af síðan, en auk þess hefur hann haft á hendi Flateyjarhérað, sem er læknislaust. Þannig hefur læknirinn í Stykkishólmi orðið að gegna þremur læknishéruðum í einu, sem eðlilega er allt of mikið starf fyrir einn mann, þó að hlut eigi að máli jafnötull og ágætur læknir og nú er í Stykkishólmi.

Þetta ástand er lítt skiljanlegt, þar sem nú munu vera í landinu um 500 læknar, en læknahéruðin ekki nema 200 eða þar um. En orsakir til þessa eru m. a. þær, að nú leggja margir læknanemar stund á sérfræðinám og vilja heldur setjast að í bæjunum af þeim sökum. Nú skyldi maður kannske ætla, að þetta ástand stafaði af því, hve læknishéruðin úti á landi væru illa launuð, en eftir þeim upplýsingum, sem landlæknir gefur, er því ekki til að dreifa, því að þau eru að sögn hans prýðilega launuð. — Ég ætla mér annars ekki að fjölyrða meira um þetta, en vil leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa nokkur orð úr skýrslu landlæknis um einmitt þetta atriði. Þar segir svo:

„Hins vegar er ungum læknum vandræðalega óljúft að taka að sér hin fámennari og afskekktari héruð, og virðist það miklu fremur vera af ótta við strjálbýlið og fyrirsjáanlegt athafnaleysi þar en vegna þess, að fjárhagsleg kjör lækna í þessum héruðum séu fráfælandi, enda þola þau nú orðið samanburð við kjör flestra lækna í Rvík og öðru þéttbýli, þegar tillit er tekið til mismunandi rekstrar- og framfærslukostnaðar. Efalaust yrði auðveldast að ráða bót á þessu með því, að embættaveitingum væri jafnan hagað eftir nokkurn veginn föstum, sjálfum sér samkvæmum reglum og þannig, að læknar, sem taka að sér hin afskekktu héruð og reynast þar vel, þyrftu ekki að kvíða því að grafast þar og gleymast, heldur mættu reiða sig á að eiga þess kost að flytjast í eftirsóknarverðari embætti innan hæfilegs tíma. Eru slíkar reglur ekki vandfundnar. Eins og það liggur í augum uppi, þegar læknisembætti krefst ákveðinnar sérþekkingar eða hæfileika, að þá gangi þeir fyrir, sem slíkt hafa til að bera og embættisaldur komi þá ekki til greina, nema gera eigi upp á milli jafnoka, eins virðist það sjálfsagt, þegar um héraðslæknisembætti er að ræða, sem ekki krefst annars en venjulegrar, almennrar læknisþekkingar, að embættisaldur góðra og gildra héraðslækna ráði þar mestu, enda sé þá jafnframt hið fyllsta tillit tekið til þjónustu í afskekktum og lítið eftirsóttum héruðum. Hefur hin síðustu ár öll viðleitni verið höfð við að fá veitingu læknisembætta hagað samkvæmt þessu og oftast tekizt. En fyrir hefur komið, að út af þessu hefur brugðið, og það vakið þá tortryggni lækna, sem aukið hafa á erfiðleikana að skipa hin afskekktari héruð.“

Landlæknir bendir hér á eitt atriði til þess að fá lækna á hina afskekktari staði, að láta embættaveitingar fara eftir föstum reglum, þannig að læknar, sem fara í hin afskekktari héruð. gleymist þar ekki með öllu, heldur verði látnir sitja fyrir öðrum betri héruðum, þegar þau losna. Hefur og landlæknir fylgt þessar í reglu að mestu leyti, en það hefur eðlilega vakið tortryggni lækna, er út af hefur brugðið. Væri æskilegt, að föst regla væri í gildi um þessar embættaveitingar, sem ekki yrði svo vikið frá í neinu tilfelli. Á síðasta ári var stungið upp á, að ekki væri hægt að veita umsækjanda embætti fyrr en hann hefði verið aðstoðarlæknir áður í 6 mánuði að loknu embættisprófi sínu. E.t.v. mætti nota einhverja slíka aðferð til þess að bæta úr þessu slæma ástandi, en það eitt vakir fyrir okkur, hv. þm. Barð. og mér, að hafizt verði handa um að koma lagfæringu hér á, því að það ástand, sem nú ríkir í hinum læknislausu héruðum, er óviðunandi og mikill ábyrgðarhluti að láta við svo búið sitja.

Ég ætla svo ekki að hafa orð þessi fleiri. Þessi þáltill. er flutt með það fyrir augum að ýta undir hæstv. ríkisstj. að gera eitthvað, er megi verða til úrbóta í þessu máli.