12.04.1943
Sameinað þing: 41. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í D-deild Alþingistíðinda. (3841)
167. mál, skipasmíðastöðvar í Reykjavík og strandferðir
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. — Mér var það vel kunnugt, að þetta heyrði undir atvmrh., en hv. þm. G.-K. er nú ekki hér viðstaddur, og gat ég því ekki beint fyrirspurn minni til hans. En ég hafði álitið, að þar sem hv. 2. þm. S.-M. var samstarfsmaður hans í ríkisstj., þá mundi honum vera það kunnugt, hvort nokkuð hefur ver ið gert í þessu máli eða hvað það hefur verið. Þar sem honum er það þó ekki kunnugt, verður helzt að álíta, að ekkert hafi verið gert. Ég harma það mjög, ef svo hefur verið, að ekkert hefur verið gert í byrjun stríðsins, því að þá hefði verið mun heppilegra að litast um eftir efni en mun verða nú á næstunni.
Ég vil lýsa yfir því, að þótt þessi þáltill. fjalli um tvö óskyld efni, þá er ég henni samþykkur og mun greiða atkv. með henni.