12.04.1943
Neðri deild: 97. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í D-deild Alþingistíðinda. (3855)
178. mál, útgáfa á Njálssögu
Eysteinn Jónsson:
Forseti hefur óskað þess. að við takmörkuðum okkur við 5 mín., en á 5 mín. er ekki mikið hægt að segja. Fyrst vil ég benda á, að þegar það fréttist, að tiltekinn rithöfundur ætlaði að fara að gefa út Íslendingasögurnar með nútímastafsetningu, þá var það ekki vegna þess fyrst og fremst, að breyta ætti stafsetningunni, að menn risu öndverðir gegn þessari nýbreytni, heldur vegna þess að menn þóttust vita, að þegar óhlutvandir menn færu að fara með útgáfu fornritanna, mundu þeir gera meira en að breyta stafsetningunni. Tiltekinn maður sór þetta af sér með yfirlýsingu, sem hann hefur svo í öllum aðalatriðum brotið. En þeir, sem ekki treystu honum, þeir reyndust sannspáir, og svo almenn var hneykslunin, að jafnvel þeir, sem ekki höfðu áður viljað láta Alþ. skipta sér af þessu máli, snerust nú á þá skoðun, að til þyrfti að vera löggjöf, er tryggði, að slíkt gæti ekki endurtekið sig. En hvað skeður þá? Þá tekur hæstv. menntmrh. sig til og öllum til mikillar furðu veitir sama manni, er hneykslinu hafði valdið með útgáfu Laxdælu, leyfi til að halda skemmdarverkinu áfram með útgáfu Njálu. Þetta verður að vita af þinginu. Stafsetningin ein kemur ekki þessu máli við. Það sýnir ekkert nema ofstopa, að hv. 8. þm. Reykv. skuli flytja málið enn á þeim grundvelli, að hér sé aðeins verið að ræða um stafsetningu. Það sýnir aðeins, að hvort sem mönnum er það ljúft eða leitt, þá verður að athuga þetta mál aftur frá rótum. Og það höfðu verið gerðar ráðstafanir til þess, að málið væri tekið til meðferðar í ró og næði, en þá kastar hæstv. ráðh. þessari bombu, og var þó nægur hiti um málið fyrir. Þetta tel ég alveg misráðið af hæstv. ráðh. Því hefur verið skotið fram, að þáltill. sé óþörf og tæplega viðeigandi, en ég álít alveg öfugt. Ég hygg, að hún sé hvort tveggja, þörf og viðeigandi. Það er ekki hægt að keppa við þennan ósóma öðruvísi en gefa út Njálu til þess að keppa við útgáfu Kiljans, því að að óreyndu verður maður að ætla, að það sé ekkert meira að marka, þegar sagt er, að ekki eigi að breyta öðru en stafsetningunni, heldur en það var, sem hann sagði um Laxdælu. Það skiptir engu máli, þó að menntamálaráðið hafi áður hugsað sér að gefa Njálu út, og það er ekkert að því, að fólk fái að vita, að það eigi að fá betri og vandaðri útgáfu en þá, sem fyrir er. Hv. 8. þm. Reykv., sem orðinn er málsvari laxnesskunnar hér í hv. d., sagði, að það væri undarleg samkeppni við Sigurð Kristjánsson af menntamálaráði að fara nú að gefa út Njálu, þar sem nóg sé til af henni. En hvað var það, sem rak hæstv. ráðh. til að leyfa Halldóri Kiljan Laxness að fara af stað með sína útgáfu? Ég sé ekki betur en þetta séu einmitt frekari rök fyrir málstað þeirra, sem vilja herða á þeirri útgáfu, sem um er rætt. Það átti allra sízt að fara af stað með útgáfu H. K. L. núna, þegar málið átti að athugast rólega í mþn., því að það er sýnt, að l. frá 1941 voru ekki nægilega hugsuð. Þau voru skyndilög og þurftu lagfæringar við. Þess vegna átti að bíða með að veita þetta leyfi, á meðan verið var að athuga l. En hæstv. ráðh. hafði ekki vit á að bíða, og fyrst svo fór, þá á Alþ. að ýta undir, að góð útgáfa af Njálu komist út.