12.04.1943
Neðri deild: 97. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (3857)

178. mál, útgáfa á Njálssögu

Sveinbjörn Högnason:

Hv. síðasti ræðumaður sagði, að við, sem þessa þáltill. flytjum, séum að ráðast á Halldór Kiljan, og einnig taldi hann, að þetta væri ofsókn á hendur Sósfl. Er það þá Sósfl., sem stendur á bak við þessa útgáfu? Svo virðist vera eftir ummælum þessa hv. þm. að dæma, en mér hafði nú ekki dottið þetta í hug. Mig fer nú að gruna, að það sé í áróðursskyni fyrir Sósfl., að Halldór Kiljan ætlar að gefa þessa bók út. Hann sagði, að við værum hér að ráðast á Kiljan og Sósfl. Ekkert slíkt vakti fyrir okkur, heldur það að koma í veg fyrir, að fornritin væru gefin út af einhverjum og einhverjum fúskara. Halldór Kiljan hefur orðið ber að því að umturna þessum ritum, ekki einu sinni, heldur tvisvar. Við viljum fyrirbyggja það, að víssir menn geri sér þetta að féþúfu, og stuðla að því, að fornritin séu gefin út af mönnum, sem eru færir um það. Enginn getur á móti því mælt, að þessum verðmætum þjóðar okkar er bezt borgið í höndum þeirra manna, sem hæfastir eru og beztir í íslenzku máli.

Þessi till. okkar fer fram á, að svo verði, og mig skiptir engu máli, hvort Halldór Kiljan tapar nokkrum krónum eða Sósfl. telur sig bíða hnekki af þessari þáltill.