06.02.1943
Efri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (386)

119. mál, verðlag

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Herra forseti. — Hæstv. viðskmrh. er hér ekki víðstaddur, og leyfi ég mér því fyrir hans hönd að mælast til þess, að frv. þessu, sem hefur verið athugað í n. hjá Nd. og hv. Nd. hefur rætt mjög ýtarlega, verði vísað til 2. umr. En hvort hv. d. sýnist ástæða til að vísa því til n. einnig hér í hv. þd., það segir hv. d. til um. Það var í fjhn. í hv. Nd.