12.04.1943
Neðri deild: 98. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í D-deild Alþingistíðinda. (3872)
178. mál, útgáfa á Njálssögu
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. — Mér þykir komið í heldur óvænt efni fyrir hv. flm. þessarar þáltill. Hv. 1. þm. Rang. var að sleppa orðinu nú um það, að hann sagði, að það væri engin deila um það að gefa Íslendingasögur út með nútímastafsetningu (HelgJ: Ekki frá minni hlið.) Nú ætla ég, með leyfi hæstv. forseta, að lesa byrjunina á grg. fyrir þessari þáltill., sem verið er hér að ræða um, með tilliti til þess, að maður sjái, hvernig flm. hefur byrjað í samanburði við það, hvernig hann endar. Hann endaði nú með því að segja, að það væri allt í lagi að hans áliti að gefa Njálu út á nútímastafsetningu. En grg. fyrir þessari fádæma þáltill. byrjar svo:
„Þegar það var hljóðbært árið 1941, að í ráði væri að gefa út Laxdælu með nútímastafsetningu, eins og það var orðað, risu um það háværar deilur í blöðum og manna á milli. Flestir fordæmdu þetta tiltæki ....“ Þessir hv. þm., sem byrja með því að lýsa yfir, að það hafi komið fram þessi ódæma tilhneiging til þess að gefa út Íslendingasögur með nútímastafsetningu og slíkt hafi valdið háværum deilum í blöðum og manna á milli, — það er skemmtilegt, að þeir lykta nú með þeirri yfirlýsingu, að það nái ekki nokkurri átt að deila um það, þó að þessar sögur komi út á nútímastafsetningu. Mér finnst afar ánægjulegt, að hv. 1. þm. Rang. tali sem allra oftast í þessu máli héðan af.
En hann gleymdi alveg að geta um það, sem hann var spurður um viðvíkjandi stafsetningunni að öðru leyti, svo sem hvers vegna ekki bæri að gefa Passíusálmana út með hollenzkri stafsetningu. En um það er kannske einskis að sakna, því að hann er búinn að fara gersamlega kringum sjálfan sig í þessu stafsetningaratriði.
Ég vona, að hv. flm. greiði atkv. með till. frá mér um að gefa út vandaða útgáfu af Njálu.