13.04.1943
Neðri deild: 100. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í D-deild Alþingistíðinda. (3877)

178. mál, útgáfa á Njálssögu

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. — Enda þótt ég átelji harðlega og telji, að vita beri þá ráðstöfun hæstv. dómsmrh. að veita það leyfi og þá undanþágu, sem rætt hefur verið um hér viðvíkjandi útgáfu Njálu, sé ég ekki ástæðu til þess að samþ. þessa þáltill., þar sem upplýst er, að til er vönduð og ódýr heimilisútgáfa af Njálu. Ég hefði talið rétt, að flm. þessarar þáltill., sem hér liggur fyrir, hefðu flutt till. til þál. um að vita hæstv. dómsmrh. fyrir að gera þá ráðstöfun, sem hann hefur gert í þessu efni. Af þeim ástæðum, sem ég hef greint, og enn fremur af þeim ástæðum, að ég tel, að fornritaútgáfan eigi að annast þessa útgáfu, segi ég nei.