16.12.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í D-deild Alþingistíðinda. (3889)
3. mál, útvarpsfréttir
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. — Ég þarf ekki að hafa um þetta mál mörg orð nú. N. var alveg sammála um að afgreiða mál þetta með rökstuddri dagskrá, eins og fram kemur á þskj. 65. Það var einhuga horfið að þessu ráði, er n. hafði kynnt sér bréf útvarpsstjóra og séð, að hann tjáði sig fúsan til þess að taka þetta mál til íhugunar. Ef um vanefndir kynni að verða að ræða af hendi þeirra, er lofað hafa að sjá þessu máli farborða, þá munu sjómennirnir kvarta og gera aðvart.
Allshn. hefur því, eins og ég gat um, orðið sammála um að afgreiða þetta mál með rökstuddri dagskrá.