04.01.1943
Sameinað þing: 12. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í D-deild Alþingistíðinda. (3904)
20. mál, kjarnafóður og síldarmjöl
Ólafur Thors:
Það hafa sumir af helztu stjórnmálaleiðtogum þjóðarinnar notað helgidagana undanfarið til að semja erindi fyrir þjóð sína. Ég sé nú, að hv. 2. þm. N.-M. hefur viljað vera einn í þeirra hópi.
Ég tel ræðu hans þó bezt svarað með því að virða hann ekki beint svars í einstökum atriðum, heldur leggja hér fram skýrslu mína um málið, er ég sagðist mundu flytja hér.
Það getur verið, að hv. þm. meini gott með því, sem hann sagði vera aðalatriðið í málinu fyrir sér, en ég hef nú átt bágt með að skilja, hvað fyrir honum vakir, og eins mun um fleiri þm.
Ég vil þá leyfa mér að víkja að málefninu og þá fyrst í tilefni af þeirri þáltill., er flutt var um það í sumar að tilhlutun stj., og lesa síðan upp með leyfi hv. ráðh. samandregna alla skýrslu ráðuneytisins um þetta mál.
Till. hljóðaði svo:
„Alþ. ályktar, að Síldarverksmiðjur ríkisins skuli selja síldarmjöl til notkunar innanlands á árinu 1942 með sama verði og síðastliðið ár, enda greiði ríkissjóður síldarverksmiðjunum mismuninn á þessu verði og almennu markaðsverði erlendis.“
Framangreind till. var samþ. á Alþ. 20. ágúst 1942.
Ég vil aðeins á þessu stigi málsins minna á það, sem hv. þm. sagði, að vanrækt hefði verið að leita tillagna Búnaðarfélagsins, að það virðist svo, er það var beðið um að áætla þarfir manna, að það miði við, hvað skepnurnar geti torgað yfir haustmánuðina. En Búnaðarfélagið var að spurt, áður en nokkuð var selt burtu. Þetta er aðeins eitt dæmið um málflutning hv. þm. og undrar þetta mig mjög. (PZ: Hvenær var bréf Búnaðarfélagsins dagsett?) Þá les ég bréf Búnaðarfélagsins:
„5. ágúst 1942
Vér leyfum oss að vekja athygli hins háa ráðuneytis á því, að óvenjumikil þörf verður fyrir fóðurbæti til skepnufóðurs á komandi vetri. Stafar það af ástæðum, sem öllum eru kunnar, það er skorti á fólki til framleiðslustarfa í sveitum. Í sambandi við þetta mál viljum vér taka eftirfarandi fram: Síldarmjöl hefur undanfarin ár nær eingöngu verið notað til skepnufóðurs sem kraftfóður. Ef þarf að gefa mikið kraftfóður, er það allt of einhæft, og þarf þá að blanda það maís. Eins og nú horfir með möguleika til heyöflunar, er tvímælalaust hin mesta þörf á að flytja inn allmikið af maís. Á því getur oltið, hvort bændur þurfa að stórfækka mjólkurkúm sínum í haust eða ekki. Teljum vér vonlaust með öllu, að hægt verði að halda nautpeningsstofni vorum lítt skertum, nema allmikill maísinnflutningur verði leyfður.
Vér höfum reynt að reikna út væntanlega fóðurbætisþörf á komandi vetri. Þær áætlanir benda til þess, að vér munum þurfa að nota ca. 6500 tonn af síldarmjöli alls handa öllum skepnum og 1500–1800 tonn af maís handa nautgripum. Er þá gert ráð fyrir, að síldarmjöl verði blandað til helminga maís handa mjólkurkúm. Auk þess þarf venjulegan innflutning af kraftfóðri handa öðrum skepnum (hænsnum, svínum o.fl.)
Um síldarmjölið viljum vér taka eftirfarandi fram: Vér höfum veitt því athygli, að ríkisstj. ætlar að leggja fyrir Alþ. nú till. um, að ríkisverksmiðjurnar selji bændum síldarmjöl fyrir kr. 32.00 pr. 100 kg fob. Verð þetta er mjög hagstætt og hlýtur að auka síldarmjölsnotkun geysilega. En þess ber jafnframt að gæta, að bændur munu nú eiga allmikið af síldarmjöli, sem þeir hafa keypt af framleiðslu ár sins 1941, og þess vegna má ekki miða við það eitt, hvað selt var á innlendum markaði af framleiðslu síðasta árs. Höfum vér haft þetta allt til hliðsjónar, þegar vér áætluðum síldarmjölsþörfina.
Þá viljum vér leggja mjög ríka áherzlu á það, að einungis 1. fl. síldarmjöl verði selt til bænda. Á þessu hefur oft viljað verða allmikill misbrestur. Árlega berast kvartanir frá bændum um skemmt síldarmjöl. Virðist mat það, sem framkvæmt er í síldarverksmiðjunum, ekki jafnöruggt og þyrfti að vera. Hefur Alþ. þó hert á matsákvæðum oftar en einu sinni. Síldarmjöl, sem unnið er úr skemmdri síld og síðan hálfbrennt við vinnsluna, er lítils virði sem fóður. Þess vegna viljum vér vænta þess, að hið háa ráðuneyti leggi fyrir verksmiðjurnar að afgreiða aðeins gott, óskemmt 1. fl. síldarmjöl til sölu á innlendum markaði.
Þá viljum vér vekja athygli ríkisstj. á því, að nauðsynlegt er, að bændur geti fengið síldarmjöl keypt frá öllum verksmiðjunum, hvort sem þær eru ríkiseign eða einstakra manna. Það sparar geysilega flutningskostnað fyrir þá, sem kaupa síldarmjölið, og í öðru lagi sparar það mjög skipsrúm í strandsiglingum hér við land. Vér viljum því beina þeim tilmælum til ríkisstj., að hún komi þeirri skipan á þetta, að allar síldarverksmiðjur afhendi síldarmjöl til sölu innan lands við því verði, sem ríkisstj. og Alþingi ákveða, að það skuli selt til bænda.
Um maís til skepnufóðurs viljum vér benda á, að nauðsynlegt mun vera, að ríkisstj. hlutist til um, að gerðar verði sérstakar ráðstafanir til þess, að nægilegt skipsrúm verði fyrir hendi til þessara flutninga.
Virðingarfyllst.“
Í þessu bréfi áætlar Búnaðarfélagið, að þurfa muni ca. 6500 smál. af síldarmjöli handa öllum búpeningi landsmanna, og segist það við þessa áætlun hafa haft hliðsjón af hinu hagstæða verði s síldarmjölinu, kr. 32.00 fyrir hver 100 kg.
Með símskeyti dags. 11. sept. þ. á. tilkynna síldarverksmiðjur ríkísins, að allt síldarmjölið, sem ætlað var til innlandsnotkunar, sé upp pantað. Út af þessu hélt ríkisstj. fund hinn 15. sept. með stjórn síldarverksmiðjanna. Á þessum fundi var ákveðið, að síldarverksmiðjurnar skyldu auglýsa, að frestur til kaupa á síldarmjöli væri ekki útrunninn fyrr en 1. okt., sbr. 12. gr. l. nr. 1 1938, um síldarverksmiðjur ríkisins. Þá var rætt um að taka upp skömmtun á síldarmjölinu, en endanleg ákvörðun var ekki tekin um það, þótti rétt að leita tillagna Búnaðarfélags Íslands um það mál. Á þessum fundi var lögð fram skýrsla um síldarmjölsbirgðir í landinu, og var hún byggð á skýrslu viðskiptanefndarinnar dags. 15. sept. og símskeyti frá síldarverksmiðjum ríkisins dags. 11. sept.
Skýrsla þessi er svo hljóðandi: „Síldarmjölsframleiðslan 1942 pr. 15. sept.:
Framl. Magn, Afskipað Birgðir;selt, Innanl. Heildarframl.
Verksmiðjur tími tonn tonn óafskipað sala verksm.
S. R. Siglufirði til 3. ágúst 4667.2 4667.2 engar " "
eftir - - 3294.3 " " 3294.3 7961.5
S. R. Raufarhöfn til 3. ágúst 1587.9 1314.0 273.9 " "
eftir - - 2049.8 " " 2049.8 3637.7
S. R. Sólbakka ........ .............. 151.6 " " 151.6 151.6
Hjalteyri .............. til 24. ágúst 3969.0 3969.0 engar " "
eftir - - 300.0 " " 300.0 4269.0
Rauðka ............... til - - 658.0 550.0 108.0 " "
eftir - - 52.0 " " 52.0 710.0
Grána ................ til - - 244.0 200.0 44.0 " "
eftir - - 52.0 " " 52.0 296.0
Dagverðareyri ........ til - - 1120.0 1120.0 engar " "
eftir - - 45.7 " " 45.7 1165.7
Djúpavík ............. til15. - 2427.1 2192.7 234.4 " "
eftir - - 610.4 " " 610.4 3037.5
Seyðisfjörður ......... .............. 100.0 100.0 engar " "
240.0 " " 240.0 340.0
Samtals tonn 21569.0 14112.9 660.3 6795.8 21569.0
Samkvæmt þessari skýrslu og upplýsingum síldarverksmiðja ríkisins er til í landinu eftirgreint síldarmjölsmagn til notkunar næsta vetur:
1.Innanlandssala.6795.8 tonn
2. Óútskipaðar birgðir, sem viðskiptanefndin hefur verið beðin að rifta sölu á ............. 660.3 –
3. Birgðir hjá ríkisverksmiðjunum frá 1941 .......................................................... 330.0 –
4. Afgreitt frá ríkisverksmiðjunum eftir 1. júní 1942 (birgðir frá 1941) ..................... 438.0 –
Samtals 8224.1 tonn
Samkvæmt þessu voru þá til í landinu 8224 tonn af síldarmjöli. Næsta dag voru allar síldarverksmiðjur í landinu beðnar að senda ráðuneytinu skýrslur um pantanir af síldarmjöli. Skýrslur þessar átti að senda Búnaðarfélaginu, til þess að það reyndi að ganga úr skugga um, hvort einstakir kaupendur hefðu keypt síldarmjöl umfram þarfir. Hinn 16. september ritaði ráðuneytið eftirfarandi bréf, þar sem n. er beðin að afturkalla sölu á óútskipuðum síldarmjölsbirgðum.
Bréfið er svo hljóðandi:
„16. sept. 1942. Ráðuneytið hefur móttekið bréf viðskiptanefndarinnar, dags. 15. þ. m., ásamt skýrslu um framleiðslu á síldarmjöli á þessu ári. Þar sem nú hefur komið í ljós, að pantanir á síldarmjöli til skepnufóðurs innan lands hafa verið miklu meiri en ráð var fyrir gert, eða um 10000 smál., eru það tilmæli ráðuneytisins, að sala á síldarmjöli, sem enn er óútskipað, verði afturkölluð og þessar mjölbirgðir verði seldar sem fóðurbætir hér innan lands.
Ólafur Thors.
Gunnl. E. Briem.
Til viðskiptanefndarinnar.“
Sama dag, 16. sept., fór fulltrúi Gunnlaugur E. Briem á fund búnaðarmálastjórans og skýrði honum frá fundinum í stjórnarráðinu daginn áður, og var honum afhent framangreind skýrsla um síldarmjölsbirgðirnar. Búnaðarmálastjórinn taldi mjög ólíklegt, að ekki væru til nægilegar síldarmjölsbirgðir í landinu, og vildi hann ekki leggja til, að skömmtun yrði tekin upp að svo stöddu. Hann sagðist mundu kynna sér málið nánar og væri Búnaðarfélag Íslands reiðubúið til þess að vinna úr skýrslu síldarverksmiðjanna um mjölpantanir. Ráðuneytið hafði tal af Einari Péturssyni, framkvæmdastjóra h.f. Fiskimjöls, og bað hann um upplýsingar varðandi fiskimjölsbirgðirnar í landinu. Einar Pétursson taldi fiskimjölsbirgðirnar vera um 2500 smál. Vegna orðróms um skort á síldarmjöli gaf ráðuneytið hinn 21. sept. út eftirgreinda tilkynningu:
„Tilkynning frá landbrn. um síldarmjöt til fóðurbætis næsta vetur.
Vegna orðróms um skort á síldarmjöli vill ráðuneytið gefa eftirfarandi upplýsingar: Í síðast liðnum ágústmánuði áætlaði Búnaðarfélag Íslands væntanlega fóðurbætisþörf á komandi vetri um 6500 smál. af síldarmjöli alls handa öllum búpeningi. Þar sem síldarmjölsbirgðir eru nú í landinu rúmlega 8000 smál. og auk þess um 2500 smál. af fiskimjöli, eða um helmingi meiri en notað hefur verið undanfarin ár, er engin ástæða til að óttast, að skortur verði á nægilegum fóðurbæti næsta vetur. Vegna hins hagstæða verðs til bænda á síldarmjölinu, hafa verið gerðar meiri pantanir en ráð var fyrir gert, og þess vegna verður fyrst um sinn hafður hemill á afhendingu mjölsins. Enn fremur getur orðið nauðsynlegt að hafa hönd í bagga með úthlutun mjölsins, og ef til þess kemur, verða ráðstafanir í því augnamiði gerðar í samráði við Búnaðarfélag Íslands. Jafnframt skal bent á það, að ekki er ástæða til þess að óttast, að flutningur á síldarmjölinu til hafna úti um land verði bundinn frekari örðugleikum en undanfarin ár.
Landbúnaðar ráðuneytið, 21. sept. 1942.“ Ráðuneytið hafði sent Búnaðarfélagi Íslands pöntunarlista frá síldarverksmiðjunum, jafnóðum og þeir bárust, og um leið og síðustu pöntunarlistarnir voru sendir, skrifaði ráðuneytið Búnaðarfélaginu bréf, dags. 5. okt., svo hljóðandi:
„5. okt. 1942. Hér með sendast Búnaðarfélaginu viðbótarskýrslur frá Síldarverksmiðjum ríkisins um pantanir á síldarmjöli, sem gerðar hafa verið til 1. þ. m. Með skírskotun til samtals við búnaðarmálastjórann er hér með ítrekuð beiðni ráðuneytisins um, að Búnaðarfélagið athugi skýrslur síldarverksmiðjanna um sölu og pantanir á síldarmjölinu með það fyrir augum að reyna að fá úr því skorið, hvort pantanirnar séu í samræmi við þörf pantendanna. Jafnframt er Búnaðarfélagið beðið að láta ráðuneytinu í té hið allra fyrsta álit sitt um nauðsyn þess að taka upp skömmtun á síldarmjölinu, og ef Búnaðarfélagið teldi það rétt, mun ráðuneytið gera nauðsynlegar ráðstafanir í því efni þegar í stað. Þá óskar ráðuneytið umsagnar Búnaðarfélagsins um það, hvort það telur nauðsynlegt, að fiskimjölsbirgðir þær, sem til eru í landinu, 2000–2500 smál., verði notaðar innan lands til fóðurbætis. Ólafur Thors.
Gunnl. E. Briem. Til Búnaðarfélags Íslands.“
Hinn 9. okt. gaf ráðuneytið út eftirfarandi tilkynningu um afgreiðslu á síldarmjöli miðaða við 1. okt.:
„Tilkynning frá landbrn. um afgreiðslu á síldarmjöli til fóðurbætis.
Í framhaldi af tilkynningu ráðuneytisins frá 21. sept. s.I. um síldarmjöl til fóðurbætis næsta vetur vill ráðuneytið gefa eftirfarandi upplýsingar um afgreiðslu á síldarmjöli á undanförnum árum og þessu ári miðað við 1. okt. ár hvert.
I. Síldarverksmiðjur ríkisins hafa afgreitt síldarmjöl til 1. okt. sem hér segir:
Árið 1939 ...... 382 smál.
– - 1940 ...... 1317 —
— 1941 ...... 2765 —
— 1942 ...... 2564 —
II. Einkaverksmiðjurnar höfðu afgreitt síldarmjöl til 1. okt. 1941 samtals 418 smál. og til 1. okt. 1942 samtals 767 smál.
III. Árið 1941 hafa því verið afgreiddar samtals frá ríkisverksmiðjunum og einkaverksmiðjunum fram til 1. okt. 3183 smál. og 1942 til 1. okt. 3331 smál. Hefur því verið afgreitt meira síldarmjöl þetta ár frá síldarverksmiðjunum í landinu heldur en nokkurn tíma áður á sama árstíma.
Landbúnaðarráðuneytið, 9. okt. 1942.“ Þessi tilkynning byggðist á munnlegum upplýsingum frá einkaverksmiðjunum og á eftirfárandi þremur símskeytum frá Síldarverksmiðjum ríkisins.
Afrit af símskeyti frá „Síld“ Siglufirði, dags. 5. okt. 1942:
,.Síldarmjöl afgreitt til 1. sept. er á undanförnum árum: 1939 381.6 tonn, 1940 1317.4, 1941 2664.9, 1942 1734. Afgreiðsla á mjöli fyrir 1. okt. óvenju mikil 1941, vegna þess verð var 30 kr. per tonn lægra fyrir mjöl, sem var keypt og afhent fyrir 1. sept. þ. á.“
Afrit af símskeyti til atvmrn. frá ritsímanum á Siglufirði, dags. 7. okt. 1942:
„Í símskeyti til yðar frá Siglufirði, nr. 25/217 5/10 gerið svo vel lesa: Síldarmjöl afgreitt til fyrsta október á undanförnum árum. Síðast í skeytinu les enn fremur: Afhent fyrir fyrsta október það ár.“
Afrit af símskeyti til atvmrn. frá „Síld“ Siglufirði, dags. 6. okt. 1942:
„Í framhaldi gærsímskeytis voru viðbótarafgreiðsla síldarmjöli 1942 fyrir fyrsta okt. frá Sólbakka 151.6 tonn, frá Seyðisfirði fyrir vora milligöngu 240, alls þá afgreitt í ár 2125.6 tonn til 1/10 stop þar að auki fyrra árs mjöl eftir 1/6 438 tonn stop 1941 var sala á framleiðslu 1940 eftir 1/6 92.7 tonn síldarmjöl, 7.5 fiskimjöl.
Með bréfi dags. 9. okt. svarar Búnaðarfélag Íslands bréfi ráðuneytisins frá 5. sama mán., og er bréfið svo hljóðandi:
„Búnaðarfélag Íslands.
Reykjavík, 9/10 1942. Búnaðarfélag Íslands móttók bréf hæstv. ríkisstj. frá 5. þ. m. hinn 6. sama mánaðar. Fékk það þá þegar tvo menn til að vinna úr skýrslum þeim, er ríkisstj. hafði áður sent félaginu yfir . síldarmjölspantanir á yfirstandandi hausti. Tvo undanfarna daga hefur stj. Búnaðarfélags Íslands athugað gögn þessi og reynt að gera sér grein fyrir málinu, eins og það horfir við nú. Í sambandi við þetta vill stj. Búnaðarfélags Íslands taka fram: Þegar stjórn Búnaðarfélagsins eftir ósk landbrh. fyrr í sumar gerði áætlun um síldarmjölsþörf landbúnaðarins til skepnufóðurs á næsta vetri, hafði stjórnin til hliðsjónar síldarmjölsnotkun bænda á undanförnum árum, eftir því sem skýrslur lágu fyrir um, en tók þó tillit til væntanlega aukinnar fóðurþarfar á næsta vetri sökum fólkseklu við heyöflun í sumar. Nú hefur reynslan sýnt, að síldarmjölspantanir hafa farið langt fram úr þeirri áætlun, og geta orsakir þess verið margháttaðar, svo sem minni fóðuröflun en gert var ráð fyrir, vegna óhagstæðrar veðráttu seinni hluta sumars samhliða fólkseklunni, og haustveðrátta bendir til, að vetur leggist nú fyrr að en undanfarið og enn fremur ótti við, að öflun erlends fóðurbætis verði erfiðari nú en áður, og munu enn fleiri ástæður geta komið hér til greina.
Miðað við jafnmikla fóðurbætiseftirspurn og pantanirnar bera með sér, hefði ekki verið óeðlilegt að setja í upphafi reglur um úthlutun síldarmjölsins, og mundi stj. hafa gert tillögur þar að lútandi til ríkisstj., ef hún hefði ekki vitað um hina miklu eftirspurn og verðbreytingar þær, sem ættu sér stað, eftir að ákvörðun var tekin um sölu síldarmjölsins.
Samkvæmt skýrslum þeim frá síldarmjölsverksmiðjunum, sem fyrir liggja, nema samanlagðar síldarmjölspantanir sumarsins og haustsins 10676 smál. Frá þessu virðist þó mega draga 190 smál., sem eru pantaðar af fyrra árs framleiðslu, sem ekki hafði verið gengið eftir á fyrirfram tilsettum tíma, þ.e. 1. júlí þ. á., svo að ætla má, að pantendur hafi verið orðnir þeim afhuga, enda hafa þegar glatað rétti sínum til þeirra. Nema því pantanir alls 10486 smál. Samkvæmt grg. ríkisstj. eru fyrir hendi upp í pantanir þessar 8200 smál. af síldarmjöli. Vantar þá ca. 2300 smál. til þess að unnt sé að fullnægja öllum fyrirliggjandi pöntunum.
Stj. Búnaðarfélagsins hefur reynt að gera sér nokkra grein fyrir því, hvernig pantanir þessar skiptast niður á einstaka landshluta, og er þó slíkt nokkrum erfiðleikum bundið nema með langri og allýtarlegri rannsókn, sökum þess að ýmsum pöntunum og þó einkum kaupum er þannig háttað, að ekki er unnt að gera sér fulla grein fyrir ákvörðunarstað varanna eða hinum raunverulegu kaupendum nema að krefjast skýrslna frá hverjum pantanda fyrir sig, en í þeim flokki eru allmargir einstakir menn, sem ekki er vitað, að séu við búskap riðnir. Svo hafa og Síldarverksmiðjurnar afgreitt mjöl á nafn ýmissa mótorbáta víðs vegar á landinu, sem á síldveiðum voru og ekki liggja skýrslur fyrir um, hvert hafa flutt farma sína. Þó virðist við fljótlega athugun, að Reykjavík og umhverfi hennar dragi að sér meira síldarmjöl en búast mætti við að notað yrði í aðliggjandi héruðum, en nokkur hluti þess kann að vera fyrirhugaður fjarliggjandi stöðum. Sama mætti segja um nokkra fleiri staði, t.d. N.-Þingeyjarsýslu. Þá virðast kaup og pantanir frá einstökum kaupstöðum og kauptúnum óeðlilega mikil. En um það verður ekki fullyrt nema eftir ýtarlega rannsókn, hve mikið af þessum pöntunum er ættað nærliggjandi sveitum. Um raunverulega þörf einstakra kaupenda fyrir síldarmjöl til skepnufóðurs, er pantanir hafa gert í gegnum kaupfélög, fóðurbirgðafélög eða einstaka menn, verður því ekki heldur hægt að fullyrða nema með því að fá lista yfir pantanir hvers einstaks og athuga jafnframt bústofn viðkomandi manns.
Af framansögðu verður það ljóst, að þess er enginn kostur að gera sér ljósa grein þess, hvort raunveruleg þörf fóðurmjöls er að baki allra pantana nema með umfangsmikilli rannsókn, sem hlyti að seinka endanlegri úthlutun mjölsins um ófyrirsjáanlegan tíma. Af framansögðu teljum vér ókleift á þessu stigi málsins að taka upp skömmtun, byggða á hinni raunverulegu þörf pantenda síldarmjölsins. Hins vegar virðist oss einsætt, að skammta verði síldarmjölið á þann hátt að skera niður pantanir manna um þann hluta mjölsins, sem ekki er unnt að afgreiða, og sjáum vér ekki að til þess sé nema ein leið, þ.e. að skera hlutfallslega jafnt niður hjá öllum. Þó er við þetta að athuga, að sumir kaupendur eru búnir að fá allar sínar pantanir afgreiddar og mun ókleift að endurheimta af þeim vöru þá, sem þeir hafa móttekið og greitt. Eftir því sem næst verður komizt, eru það um 1300 smál., sem þannig eru afgreiddar. Yrði þá hinn umræddi niðurskurður, ca. 2300 smál., að koma á afganginn, þ.e. þær pantanir, sem enn eru aðeins að nokkru eða engu afgreiddar, en það eru alls ca. 9200 smál. Upp í þær væri þá hægt að svara 6900 smál., sem er rétt 75% af heildarpöntununum. Til þess svo að bæta þeim þessi 25%, sem á vantar, teljum vér rétt að gefa þeim kost á jafnmiklu af fiskimjöli, en af því er til í landinu magn einmitt samsvarandi því, sem vantar upp á síldarmjölspantanirnar, samkvæmt skýrslu þar um frá ríkisstj., og væri þannig hægt að fullnægja að magni til öllum pöntunum. Fiskimjöl er samkvæmt innlendum fóðurrannsóknum talið hafa ca. 20% minna fóðurgildi en 1. fl. síldarmjöl, en hefur þó að ýmsu leyti kosti fram yfir síldarmjölið til skepnufóðurs, einkum handa sauðfé, og virðist því vel við unandi að gefa það ásamt síldarmjöli að 1/4 hluta. Komið gæti til mála að lækka það í verði nokkuð niður fyrir síldarmjölsverðið, og ætti sú niðurfærsla ekki að verða ríkissjóði kostnaðarmeiri en verðlækkun síldarmjölsins, með því að markaðsverð á fiskimjöli mun verða nokkru lægra. Tillögur vorar eru því þessar:
1. Ríkisstjórnin tryggi sér þær fiskimjölsbirgðir, sem til eru í landinu, 2000–2500 smál.
2. Þeir pantendur síldarmjöls, sem ekki hafa þegar fengið uppfylltar pantanir sínar af síldarmjöli, verði afgreiddir með 75% af hinni upphaflegu pöntun.
3. Sömu mönnum verði gefinn kostur á að fá fiskimjöl upp í þau 25%, sem á vantar.
4. Ríkissjóður standi straum af verðfellingu fiskimjölsins á svipaðan hátt og síldarmjölsins, þannig að verð þess verði nokkru lægra en verð á síldarmjölinu.
Virðingarfyllst
Bjarni Ásgeirsson.
Pétur Ottesen.
Jón Hannesson.
Til atvinnu- og samgöngumálaráðuneytisins.“
Eftir að ráðuneytið hafði fengið nánari upplýsingar frá ríkisverksmiðjunum í svohljóðandi símskeyti hinn 9. okt.:
„Síldarmjölspantanir til vor nú samtals 10056 tonn að meðtöldum pöntunum símtilkynntum í dag stop þar af fullafgreiddar pantanir 1019.5 tonn og er þá eftir að úthluta 9036.5 tonnum, en
upp í það höfðu ríkisverksmiðjurnar aðeins 5825 tonn að viðbættum 273.9 tonnum haldið eftir á Raufarhöfn eða samtals 6098.9 tonn. Þar frá dragast 1019.5 tonn fullafgreiddar pantanir, og áætlað fyrir rýrnun 60 tonn, og koma þá til úthlutunar aðeins 5019 tonn eða 551/2% miðað við allar pantanir væru teknar til greina plus því síldarmjöli, sem kynni að vera óráðstafað hjá öðrum verksmiðjum.“
Enn fremur munnlegar upplýsingar frá einkaverksmiðjunum, ritaði ráðuneytið Búnaðarfélagi Íslands bréf dags. 16. okt. svohljóðandi:
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 16. okt. 1942.
Ráðuneytið hefur móttekið bréf Búnaðarfélagsins dags. 9. þ. m., þar sem það gerir eftirfarandi tillögur um ráðstöfun á því síldarmjöli, sem til er í landinu:
1. Ríkisstj. tryggi sér þær fiskimjölsbirgðir, sem til eru í landinu, 2000–2500 smál.
2. Þeir pantendur síldarmjöls, sem ekki hafa þegar fengið uppfylltar pantanir sínar af síldarmjöli, verði afgreiddir með 75% af hinni upphaflegu pöntun.
3. Sömu mönnum verði gefinn kostur á að fá fiskimjöl upp í þau 25%, sem á vantar.
4. Ríkissjóður standi straum af verðfellingu fiskimjölsins á svipaðan hátt og síldarmjölsins, þannig að verð þess verði nokkru lægra en verð á síldarmjölinu.
Samkvæmt skýrslum um síldarmjölspantanir, sem ráðuneytið hefur sent Búnaðarfélagi Íslands, námu pantanirnar til 1. okt. 10466 smál. Hér við bætast pantanir hjá Hjalteyrarverksmiðjunni, 300 smál., og hjá Síldarverksmiðjum ríkisins eftir 1. okt., 92 smál. Pantanirnar nema því samtals 10858 smál.
Frá þessum pöntunum verður að draga þær pantanir, sem afgreiddar eru að fullu, og telur Búnaðarfélagið þessar pantanir nema 1300 smálestum. Samkvæmt upplýsingum, sem ráðuneytið hefur aflað sér hjá ríkisverksmiðjunum og öðrum síldarverksmiðjum, nema fullafgreiddar pantanir um 1750 smál. Síldarmjölspantanir, sem ekki hafa verið afgreiddar að fullu, nema því samtals um 9100 smál.
Samkvæmt skýrslu, sem ráðuneytið afhenti Búnaðarfélagi Íslands í síðast liðnum mánuði, voru til í landinu samtals 8224 smál. af síldarmjöli til notkunar næsta vetur. Stjórn Búnaðarfélagsins telur í téðu bréfi, að þegar fullafgreiddar pantanir, um 1300 smál., hafi verið dregnar frá ofangreindri smálestatölu, þá verði til 6900 smál. upp í pantanirnar. Hér er um nokkur n misskilning að ræða. Frá ofangreindum 8224 smál. verður að draga eftirgreint síldarmjölsmagn:
1. Afgreitt að fullu hjá ríkisverksmiðjunum:
a. af fyrra árs mjöli ........... 438 smál.
b. af þessa árs mjöli ........... 1019 –
2. Afgr. að fullu frá einkaverksm. 750 –
3. Rýrnun ........................ 60 –
Samtals 2267 smál.
Samkvæmt þessu er aðeins hægt að afgreiða 6000 smál. upp í pantanirnar á 9100 smál. eða 60%–65 % .
Til þess að gæta fyllstu varúðar hefur ráðuneytið lagt fyrir síldarverksmiðjurnar að afgreiða fyrst um sinn aðeins 60% af síldarmjölspöntunum. Þá vill ráðuneytið tilkynna Búnaðarfélaginu, að ráðuneytið hefur ákveðið að gefa bændum kost á að kaupa fiskimjöl hjá fiskimjölsverksmiðjum fyrir kr. 32.00 hver 100 kg. Til þess að forða því, að einstakir kaupendur kaupi fiskimjölið umfram þarfir, telur ráðuneytið rétt, að bændur og aðrir kaupendur fiskimjöls sendi pantanir sínar til Búnaðarfélagsins og fiskimjölsverksmiðjurnar afgreiði aðeins þær pantanir, sem Búnaðarfélagið hefur samþykkt., og yrði þá höfð hliðsjón af síldarmjölspöntun hlutaðeigenda. Með skírskotun til þess, er að framan segir, vill ráðuneytið því hér með fela Búnaðarfélaginu að annast þau störf, er að þessu eftirliti lúta, og mun ráðuneytið birta tilkynningu til almennings um það.
Ólafur Thors.
Gunnl. E. Briem.
Til Búnaðarfélags Íslands.“
Jafnframt var lagt fyrir allar síldarverksmiðjur í landinu að afgreiða fyrst um sinn aðeins 60% af upphaflegum síldarmjölspöntunum.
Í ódags. bréfi til ráðuneytisins fara 6 fiskimjölsframleiðendur þess á leit að verða aðnjótandi sams konar verðuppbóta á fiskimjöl, seldu til fóðurbætis, og framleiðendur síldarmjöls, og telja þeir sig þurfa að fá 47 kr. fyrir hver 100 kg. Með bréfi dags. 17. okt. samþykkir ráðuneytið tilboð fiskimjölsframleiðendanna, og er bréf ráðuneytisins svohljóðandi:
„17. okt. 1942. Ráðuneytið hefur móttekið bréf 6 hlutafélaga, sem framleiða fiskimjöl, þar sem farið er fram á, að framleiðendur sólþurrkaðs fiskimjöls gætu orðið aðnjótandi sams konar verðuppbóta og framleiðendur síldarmjöls. Út af þessu skal hér með tekið fram, að ráðuneytið samþykkir tilboð fiskimjölsframleiðendanna um, að fiskimjöl verði selt á kr. 32.00 hver 100 kg til fóðurbætis og ríkissjóður verðbæti þetta mjölmagn með 15 kr. Til þess að forða því, að einstakir kaupendur kaupi fiskimjölið umfram þarfir vegna þessa lága verðs, telur ráðuneytið rétt, að bændur og aðrir kaupendur fiskimjöls sendi pantanir sínar til Búnaðarfélags Íslands og fiskimjölsverksmiðjurnar afgreiði aðeins þær pantanir, sem Búnaðarfélagið hefur samþykkt. Ríkissjóður mun aðeins verðbæta það fiskimjöl, sem Búnaðarfélagið hefur samþykkt afgreiðslu á.
Ólafur Thors.
Gunnl. E. Briem.
Til h/f Þórólfur, h/f Fiskimjöl, h/f Miðnes, h/f Mjöl & Bein, h/f Fiskimjöl, Ísafirði.“
Um þetta er síðan birt tilkynning til almennings svo hljóðandi:
„Tilkynning frá landbrn.
Þar sem ekki hefur verið unnt að fullnægja öllum pöntunum á síldarmjöli, hefur ríkisstj. gert ráðstafanir til þess, að fiskimjölsverksmiðjurnar selji sólþurrkað fiskimjöl til fóðurbætis á 32.00 kr. hver 100 kg fob.
Pantanir á þessu fiskimjöli skulu sendast Búnaðarfélagi Íslands fyrir 20. nóv. þ. á. og verður þá tekin ákvörðun um afgreiðslu pantananna.
Landbúnaðarráðuneytið, 20. okt. 1942.“ Um fiskimjölið hafa síðan farið á milli ráðuneytisins og Búnaðarfélags Íslands eftirgreind bréf:
„Búnaðarfélag Íslands:
Reykjavík, 23. okt. 1912. Út af bréfi hins háa ráðuneytis, dags. 16. þ. m., þar sem Búnaðarfélagi Íslands er falið að hafa úthlutun á fiskimjöli til sölu innan lands, viljum vér leyfa oss að leita upplýsinga um eftirfarandi:
Er það ekki ætlun ráðuneytisins, að Búnaðarfélag Íslands hafi fullt vald til þess að úthluta öllum þeim fiskimjölsbirgðum, sem nú eru til í landinu, án þess að leita þurfi samþykkis ráðuneytisins í hverju tilfelli?
Þá viljum vér leyfa oss að óska eftir, að ráðuneytið sendi oss skýrslu um, hvaða fyrirtæki hafa fiskimjöl eða hráefni í fiskimjöl til hérlendis og hversu mikið hvert fyrirtæki hefur til sölu.
Ráðuneytið hefur auglýst umsóknarfrest til 18. nóv. En ekki verður hjá því komizt að afgreiða eitthvað af fiskimjöli fyrir þann tíma, til þess að greiða fyrir flutningum á því til kaupenda.
Væntum heiðraðs svars við allra fyrstu þóknanlega hentugleika.
Virðingarfyllst.
Steingrímur Steinþórsson
Til atvinnu- og samgöngumálaráðuneytisins.“
Við þessa skýrslu er það að athuga, að fiskimjölið í Vestmannaeyjum, 25 smál.; er þegar selt til bænda í Landeyjum og Vestmannaeyjum. Þá upplýsir kaupfélagsstjórinn á Húsavík, að fiskimjölsverksmiðjan þar sé biluð og að ekki mundi vera hægt að starfrækja hana í vetur.
Ólafur Thors.
Gunnl. E. Briem.
Til Búnaðarfélags Íslands.
Ég hef þá leyft mér að lesa hér upp þau skjöl, sem liggja fyrir, og tel mig með því hafa svarað öllum þeim ádeilum, sem fram hafa komið. Ég tel ekki hægt að áfellast ríkisstj. fyrir það, að hún hagnýtti sér ráðfærslu Búnaðarfélags Íslands, hins dómbærasta aðila í þessum málum, en hitt er líka staðreynd, að ríkisstj. gekk nokkru lengra í að tryggja það, að nægar síldarmjölsbirgðir yrðu í landinu, en stj. Búnaðarfélagsins hafði talið nauðsynlegt. Ég segi þetta þó ekki til þess að áfellast búnaðarfélagið, en hitt er líka fjarri öllum sanni, að hv. þm. deili á ríkisstj. fyrir það að standa ekki sjálf í því að afhenda síldarmjölið sekk fyrir sekk. Það er næsta hjákátlegt, að þessar ádeilur skuli koma frá manni, sem er sjálfur þjónn Búnaðarfélags Íslands, þeirrar stofnunar, sem nýtur þeirrar virðingar að hafa haft forystuna í þessum málum, og ekki verður deilt á fyrir sína forustu. Og sagði í upphafi ræðu minnar, að ég mundi ekki svara hv. frsm. lið fyrir lið, það er heldur enginn vegsauki að svara rausi hans lið fyrir lið, heldur mun ég láta staðreyndirnar sjálfar tala mínu máli. Ég mun á einhvern hátt reyna að koma þessu sem skjótast á prent, og ég mun fara fram á það við landbrn., að það láti birta þessar skýrslur athugasemdalaust, og ég kæri mig ekki um, að þetta komi fram á nokkurn annan hátt en þann, að almenningur fái að vita, hvað er satt og rétt í þessu máli.
Ég mun ekki gera að umræðuefni þann lið málsins, sem lýtur að innflutningi á erlendum fóðurbæti. Ég geri ráð fyrir, að fyrrv. viðskiptamálaráðh. muni gefa skýrslu um það, þegar hann kemur, en hann hefur nú boðað veikindaforföll í dag.
Þá er bréf ráðuneytisins:
27. okt. 1942. Ráðuneytið hefur móttekið bréf Búnaðarfélagsins, dags. 23. þ. m. varðandi úthlutun á fiskimjöli til sölu innan lands. Út af þessu skal tekið fram, að ráðuneytið felur Búnaðarfélaginu fullt vald til þess að úthluta öllum þeim fiskimjölsbirgðum, sem til eru í landinu, án þess að leita þurfi samþykkis ráðuneytisins í hverju tilfelli.
Í ódagsettu bréfi, sem ráðuneytinu barst 8. þ. m. frá 5 fiskimjölsframleiðendum, er sagt, að búast megi við, að fiskimjölsframleiðslan verði um 2000 til 2500 smál. Nú hefur ráðuneytið óskað nánari upplýsinga um þetta mál, og samkvæmt upplýsingum fiskimjölsframleiðendanna eru til í landinu neðangreindar fiskimjölsbirgðir:
Framleiðendur. Hráefni og matarmjöl. Tilbúið til sölu.
1. Mjöl & Bein h/f, Reykjavík .. 80–100 smál. 60– 70 smál.
2. Miðnes h/f, Sandgerði ........ 200–225 200-225 -
3. Þórólfur h/f, Keflavík . .. ... .. 450 – 40– 50 –
4. Fiskimjöl h/f, Reykjavík ...... 550 -600 -
5. Fiskimjöl h/f, Ísafirði ........ 400 – 100 -
6. Ástþór Matthíasson, Vestm. .. 25 – 25 -
7. Kaupfélag Eyfirðinga ......... 40– 50 –
8. Kaupfélag Þingeyinga ........ 60 –
Samtals 1805-1910 mál. 420–470 smál.