06.01.1943
Sameinað þing: 13. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (3921)

20. mál, kjarnafóður og síldarmjöl

Jón Pálmason:

Það hefur verið upplýst í þessum umr., og ekki af neinum véfengt, að síldarmjöl hefur verið selt hlutfallslega lægra verði á þessu ári heldur en nokkurn tíma áður. Það hefur líka komið í ljós, að það hafi verið haldið eftir til fóðurs meira síldarmjöli á s.l. sumri heldur en nokkru sinni áður. Í þriðja lagi hefur komið í ljós í þessum umr., að fyrrv. ríkisstj. hefur í samráði við Búnaðarfél. Íslands ákveðið, hve miklu síldarmjöli ætti að halda eftir. Hér hafa tveir hv. stjórnarmeðlimir í stj. Búnaðarfélags Íslands talað, þeim ber að vísu ekki alveg saman. En undarlegt er, að þetta mál skuli vera gert að árásarefni á fyrrv. hæstv. ríkisstj., að ríthlutun síldarmjöls og pöntunum á því var hagað eins og gert var. Hitt er eðlilegt, úr því að pantanir fóru svo langt fram yfir allar áætlanir, að eitthvað raskaðist frá því, sem menn vildu vera láta.

Varðandi það, sem hv. 1. þm. Skagf. (SÞ) sagði, að ekki væri hægt fyrir verzlunarstjóra og kaupfélagsstjóra að vara sig á því, þegar ekki kom allt síldarmjölið, sem búið var að biðja um og gera ráð fyrir að senda, þá er um það það að segja, að það hefur verið lofað fiskimjöli í staðinn fyrir það síldarmjöl, sem ekki fæst, en búið var að panta. Ef það fer svo, að það mjöl fæst fyrir sama verð og síldarmjölið var selt fyrir, mega menn vel við una. En hinu hefur stj. ekki tök á að líta eftir, ef það er rétt, að mikil brögð hafi verið að því, að sumir, sem pöntuðu síldarmjöl, hafa fengið meira af síldarmjöli en þeir höfðu pantað, en sumir ekkert. (SÞ: Hún átti að standa við sín loforð).

Viðvíkjandi því, sem hv. þm. V.-Sk. (SvbH ) talaði um það, að hér hefði ekki verið að verki annað en íhaldsflokkur, og verk íhaldsins væru slæm, hvar sem væri í heiminum, þá er það að athuga um þennan hv. þm., að hann vill gera allt að flokksmálum. Um allt, sem aflaga fer, vill hann kenna pólitískum andstæðingum, án tillits til þess, hvort í þeim málflutningi sé um nokkra sanngirni að ræða.

Að öðru leyti hef ég ekki tækifæri á fimm mínútum til að fara nánar út í það, sem þó væri ástæða til að fara út í, nefnilega fullyrðingar þeirra manna, sem tala um, að fyrrv. hæstv. ríkisstj. sé ámælisverð fyrir frammistöðu sína í þessu síldarmjölsmáli.