09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í D-deild Alþingistíðinda. (3935)

20. mál, kjarnafóður og síldarmjöl

Skúli Guðmundsson:

Allshn. hefur haft þessa þáltill. til meðferðar, og leggur meiri hl, n. til, að hún verði afgr..með rökst. dagskrá, sem er prentuð á þskj. 226. Í þeirri rökst. dagskrá kemur fram, að til þess er ætlazt, að hæstv. ríkisstj. geri ráðstafanir til þess, að kjarnfóður verði keypt og flutt til landsins, sem er út af fyrir sig gott og sjálfsagt. En hins vegar hefur meiri hl. hv. n. ekki nema að mjög litlu leyti tekið undir kröfur flm. þáltill. um rannsókn á úthlutun síldarmjöls á s.l. hausti. Í dagskrártill. er að vísu getið um rannsókn á því, hvort til sé í landinu síldarmjöl, sem ætlað sé til annars en fóðrunar búpenings. Ég vil benda á, að þrátt fyrir það að slík rannsókn færi fram að tilhlutun hæstv. ríkisstj., þá tel ég það út af fyrir sig alls ekki fullnægjandi. Vel getur verið, að einstakir menn hafi fengið óþarflega og óhóflega mikið síldarmjöl á síðasta hausti, þótt þeir lýsi yfir, að þeir ætli að nota það eingöngu til skepnufóðurs. Hafi það komið fyrir, að einstakir menn hafi fengið það mikið af þessari vöru, að nægi í fleiri vetur fyrir þann búpening, sem þeir hafa, þá er það óviðunandi með öllu, ef aðra bændur vantar fyrir það fóður fyrir fénað sinn á þessum vetri.

Það hafa nú þegar orðið miklar umr. um þetta mál. Og þótt rannsókn á úthlutun síldarmjöls á síðasta hausti hafi ekki enn farið fram, þá vita það allir, að mikil mistök hafa átt sér stað við dreifingu mjölsins. Og ég tel einkennilegt, að meiri hl. allshn. skuli ekki vilja láta fara fram athugun á því máli, og einnig undarlegt, ef meiri hl. Alþ. vill ekki láta rannsaka það, svo að það liggi sem ljósast fyrir. Ég á erfitt með að skilja andstöðu gegn því. Og ég tel því aðeins hægt fyrir flm. till. að sætta sig við þá rökst. dagskrá, sem fyrir liggur, að samþ. verði sú brtt. við hana, sem flutt er af þeim hv. 2. þm. N.-M. og hv. 1. þm. Skagf., því að athugun á því, hvernig unnt sé að bæta úr því misrétti, sem fram hefur komið við síldarmjölsúthlutunina, hlýtur að byggjast á rannsókn á skiptingu síldarmjölsins á síðasta hausti. Og ég get ekki skilið, að nokkur hv. þm. geti haft á móti því, að sú athugun fari fram.