30.03.1943
Sameinað þing: 35. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í D-deild Alþingistíðinda. (3971)
29. mál, aðflutningstollar á efni til rafvirkjana
Frsm. meiri hl. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Meiri hl. fjvn. hefur ekki farið nákvæmlega út í efni þessarar þáltill. í áliti sínu, en aðallega látið í ljós skoðun sína um formshlið málsins. Sjö nm. eru sammála um, að réttara sé að láta till. eins og þessa, um niðurfellingu mikilvægra tolla, koma fram í frv.- formi og leita þar með samþykkis Alþ. á slíkri breytingu. Þessir nm. telja, að því fremur beri að hafa þessa aðferð sem hér er um mikla upphæð að ræða, þó að ekki verði sagt með vissu, hve mikil hún er, en eftir lauslegum áætlunum má ætla, að um sé að ræða tekjurýrnun fyrir ríkissjóð, sem nemur á 2. millj. kr. Af þessum ástæðum bar meiri hl. fram þá rökst. dagskrá, sem prentuð er á 572. þskj., og væntir þess, að hún verði samþ.