30.03.1943
Sameinað þing: 35. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í D-deild Alþingistíðinda. (3975)
29. mál, aðflutningstollar á efni til rafvirkjana
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs aðallega út af því, sem hv. frsm. meiri hl. fjvn sagði allra síðast í ræðu sinni. Ég get upplýst hv. þm. og hv. d. um það, að þegar er farið að berast nokkuð af því efni, sem ætlað er til virkjunar Fljótaár. Ég tel það illa farið, að fjvn. hefur dregið afgreiðslu þessa máls svo lengi sem raun er á orðin, aðeins vegna þess að hún telur smáformgalla vera á flutningi þess. Og það hefur verið bent á, að taka mætti málið upp að nýju, en það er nú hægra sagt en gert, að það verði hægt, svo að það komi að tilætluðum notum. Bæði er nú það, að þegar er farið að líða allmikið á þennan þingtíma, og svo hitt, að efnið í þá rafveitu er þegar farið að berast til landsins.
Ég verð að segja það, að þegar tekið er tillit til þess, að um aðeins þrjár virkjanir virðist vera að ræða á meðan á stríðinu stendur, sem þurfa á undanþágu þessari að halda á aðflutningstollinum, og að um leið og stríðið er búið, fellur af sjálfu sér niður orsökin til þess, að veita þarf þessa undanþágu, þá virðist mér það ekki orka tvímælis, að rétt sé að verða við þessum óskum um undanþáguna. Þess vegna er það, að mér finnst þetta hæpin afgreiðsla og fjvn. ekki sæmandi. Ég held, að annað eins hafi nú verið samþ. og afgr. frá hv. Alþ., sem telja mætti vafasamara en það, sem þessi sjálfsagða og nauðsynlega till. fer fram á. En mér þykir leitt, að hv. fjvn. skuli ekki hafa skilið nauðsyn þessa máls, og ég tel það henni alls ekki sæmandi að viðhafa aðra eins afgreiðslu og hún nú hefur látið sér sæma að hafa á því máli, er hér liggur fyrir.
Um virkjunina í Víkurkauptúni er það að segja, að mér finnst óþarfi með öllu að vara þar með neinn smásálarhátt. Og yfirleitt eru þau rök hv. meiri hl. fjvn., að hér sé ekki rétt að farið, þess eðlis, að þau eru alls ekki frambærileg á þann hátt og á þeim tíma, sem þau eru fram borin.