05.04.1943
Sameinað þing: 38. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í D-deild Alþingistíðinda. (3982)
29. mál, aðflutningstollar á efni til rafvirkjana
Áki Jakobsson:
Hér er farið fram á ákveðnar greiðslur úr ríkissjóði, sem eru ekki meiri en aðrar greiðslur, sem ákveðnar hafa verið með þál. Hér liggur engan veginn fyrir að breyta l., heldur er um að ræða heimild til að gefa eftir toll af umræddum vörum, ef ástæða þykir til.