08.04.1943
Efri deild: 92. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í D-deild Alþingistíðinda. (3996)
160. mál, æskulýðshöll í Reykjavík
Frsm. meiri hl. (Lárus Jóhannesson):
Allshn. hefur athugað mál þetta og er sammála um, að hér sé um mikið nauðsynjamál að ræða fyrir ungmenni þessa bæjar. Hins vegar hefur meiri hl. n. komizt að þeirri niðurstöðu, að n. sú, sem stungið er upp á í þáltill., sé of stór, þannig að það muni frekar tef ja fyrir framgangi málsins heldur en flýta fyrir því, að svo stór n. hafi málið til meðferðar. En meiri hl. n. hefur orðið sammála um að afgreiða málið með rökst. dagskrá, sem er prentuð á þskj. 632.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta mál, en vil leyfa mér að mæla með því, að dagskrártill. verði samþ.