10.04.1943
Sameinað þing: 40. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í D-deild Alþingistíðinda. (4019)

156. mál, Þormóðsslysið

Frsm. minni hl. (Sigfús Sigurhjartarson):

Herra forseti. - Ég hef ekki getað orðið sammála meiri hl. allshn., sem leggur til, að þessi till. um sérstaka rannsókn út af Þormóðsslysinu verði afgr. með rökst. dagskrá. Ég hygg, að allir muni vera sammála um það, að um slys sem þetta beri að láta fara fram rannsókn eins ýtarlega og möguleikar eru á og láta einskir ófreistað að upplýsa allar orsakir. Ég hygg, að allir geti verið sammála um, að þeir menn, sem rannsóknina gera, verði að njóta fullkomins trausts alls almennings. Nú virðist mér á nál. meiri hl., að tryggt sé, að sjódómurinn láti fara fram venju fremur ýtarlega rannsókn í málinu. Ég get ekki fallizt á, að neitt hafi fram komið í málinu, sem sanni, að rannsókn sjódómsins verði ýtarlegri á þessu slysi en öðrum sjóslysum. Eins og kunnugt er, fær sjódómurinn til rannsóknar öll sjóslys, sem koma fyrir, hvort sem þau eru stór eða smá, og ég hygg, að fyrir öllum almenningi líti svo út, að engin rannsókn hafi verið gerð, ef ekki fer fram ýtarlegri rannsókn og sjódómurinn einn er látinn um málið fjalla. Ég er ekki að bera fram vantraust á þá menn, sem í sjódómnum eru. Ég býst við, að þeir vinni að þessari rannsókn eins og að rannsóknum í öðrum málum, en ég veit, að í augum almennings er það engin trygging fyrir því, að sú rannsókn væri eins ýtarleg og æskilegt þætti. Ég tel því, að það skorti hér á, að sjódómurinn njóti þess trausts, sem vera þarf um hvern þann aðila, sem þessa rannsókn framkvæmir, en það er þó meginatriðið í þessu máli, að á þeirri rannsókn, sem fer fram, verði byggðar einhverjar till., sem miði að því að koma í veg fyrir slys. Slíkt er sem kunnugt er ekki verkefni sjódómsins. Ég legg því til, að við till. á þskj. 523 bætist ákvæði um það, að n. skuli, ef þurfa þykir, leggja fram breyt. á l. og reglugerðum, sem varða öryggi sjómanna og sjófarenda, sem henni þykir nauðsyn bera til eftir þeim rannsóknum, sem gerðar eru.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál. Mér sýnist rétt, að fulltrúum sjómanna sé falin þessi rannsókn og falið að byggja á rannsókninni eftir því, sem þeim þykir æskilegast.