10.04.1943
Sameinað þing: 40. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í D-deild Alþingistíðinda. (4020)
156. mál, Þormóðsslysið
Frsm. meiri hl. (Gísli Sveinsson):
Herra forseti. — Það er vegna þess, að ég er frsm. meiri hl. og ekki af öðrum ástæðum, sem ég kveð mér hljóðs. Ég gat þess í ræðu minni á dögunum út af þessu máli og með tilvísun til þess nál., sem meiri hl. stendur að, að n. virðist þetta mál á þeim rekspeli nú, að við mætti hlíta. Ég er sammála minni hl. um það, að það hljóti að vera sameiginlegt áhugamál allra þeirra, sem nærri þessu máli koma, að rannsóknin verði sem nákvæmust og gefi þann árangur, sem allir ætlast til, en eins og fram kom, er einmitt sú rannsókn yfirstandandi, og gagnvart því, sem hún gat um, að sú stofnun, sem færi með þessa rannsókn, yrði að hafa traust alls almennings, skil ég ekki, að nokkur geti hnekkt því, að sjódómurinn hafi það með því hlutverki, sem honum er falið af ríkisstj. og Farmanna- og fiskimanna sambandi Íslands. Það er gert ráð fyrir, að rannsóknin fari fram hér í Rvík og annars staðar eflir því, sem við verður komið, og það er ekki nokkur þörf á að hafa tvær rannsóknir í gangi í einu, því að það yrði með þessu móti. Vitanlega héldi sjódómurinn áfram sinni rannsókn, og eins og þm. vafalaust hafa tekið eftir, þá er sjódómnum í þessu tilfelli falið víðtækara hlutverk en venjulega. Þannig er, eins og meiri hl. gefur til kynna, í þessu efni farið eftir óskum frá fulltrúastofnun allra sjómanna, því að ég verð að álíta, að hér á þ. hafi ekki komið fram plagg, sem meira hefur rekið á eftir þessu en bréfið, sem Farmanna- og fiskimannasamband Íslands skrifaði ríkisstj. og stj. hefur svarað. Mér er ekki kunnugt um það, hver er dómbær á þetta af meira viti heldur en Farmanna- og fiskimannasambandið. Það eru þá einhverjir, sem minni hl. hefur í pokahorninu. Ég get ekki álitið, að skoðun minni hl. sé á rökum byggð, því að ég veit, að það allt er fyrir hendi, sem stj. Farmanna- og fiskimannasambands Íslands tekur fram: að rannsóknin er gerð bæði í Rvík og annars staðar og af sérfróðum mönnum bæði um siglingar og skipabyggingar. Hér virðist því vera svo um búið, að varla sé hægt að bæta um af okkur, þótt við værum allir af vilja gerðir.
Hitt er annað mál, sem minni hl. talaði um, að af þessu ætti að leiða, að till. til að fyrirbyggja slík slys kæmu fram. Öryggisráðstafanirnar eru aðalatriðið, en ég fæ ekki séð, að sú rannsókn, sem yfir stendur, geti ekki gefið fullt eins góðar upplýsingar um það, hvaða leið skuli fara í þessu máli, eins og rannsókn, sem gerð er af hinum og öðrum óviðkomandi mönnum. Það er enginn kominn til að segja, hverjir það eru og hvort þeir eru færir um að framkvæma rannsóknina. Ég held, að þeir menn, sem hafa rannsóknina með höndum, séu líklegastir til að gera till. til úrbóta, eftir því sem þurfa þykir. Ég veit, að minni hl. getur ekki neitað því með rökum, að allt, sem þessi fulltrúastofnun sjómannanna fer fram á, er tekið með í þetta, auk þess sem sjódómurinn er æskilegastur til að rannsaka þetta, því að hann er skipaður sérfróðum mönnum, og hann er ekki einasta skyldaður til þess, heldur er honum skipað að taka sérfræðinga til hjálpar. Það er ekki verið að tala um eins manns dóm. Hér er verið að tala um þann öruggasta dóm, sem hægt er að fá, skipaðan sérfræðingum, og dóm, sem hefur skipun um að kalla til alla, sem betur mættu vita.
Ég vil endurtaka það, sem ég sagði í fyrri ræðu minni, að ég tel málið bezt afgreitt með því, að samþ. verði rökst. dagskráin á þskj. 614.