19.02.1943
Sameinað þing: 27. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í D-deild Alþingistíðinda. (4036)
105. mál, virkjun Lagarfoss
Jón Pálmason:
Ég kveð mér hljóðs, af því að því skaut upp hjá hv. 6. landsk. þm., að það hefði átt að heyra undir starf mþn. í raforkumálum að rannsaka skilyrði til vatnsvirkjunar víðs vegar á landinu, en svo er ekki. Það stendur í till. frá 4. sept. í fyrra: „Jafnframt ályktar Alþ. að fela ríkisstj. að láta fara fram, undir umsjón rafmagnseftirlits ríkisins, rannsókn á skilyrðum til vatnsaflsvirkjunar í fallvötnum landsins og því, hvernig auðveldast sé að fullnægja raforkuþörf landsmanna hvarvetna á landinu — — — “ og „rannsóknirnar skal hefja nú þegar og hraða þeim svo sem mögulegt er“.
Það var því einfaldasta leiðin fyrir fulltrúa hvers héraðs í sumar, eftir að Alþ. var einróma búið að samþ. þessa þáltill., að snúa sér til ríkisstj. til þess að fá þetta framkvæmt sem fyrst. En nú liggja fyrir Alþ. 5–6 till. aðrar, sem ganga í sömu átt. Ég álít þær allar óþarfar og að eigi að vísa þeim frá. Það er nóg að vísa til þál. í sumar, með því að með henni er málið leyst eftir því, sem Alþ. getur gert.