08.01.1943
Sameinað þing: 14. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (4080)
53. mál, brúargerð á Hvítá hjá Iðu
Flm. (Eiríkur Einarsson):
Það fór sem vænta mátti, að hv. samþm. minn tekur þessu málefni vel; um það var ekki að efast, þó að hann gerði að álitamáli aðferðina til að fá þessu framgengt. Ég skal strax taka fram, að ef fjvn. fæst til að taka upp fjárveitingu til þessarar brúargerðar í fjárl., þá er mér það að vísu mjög kært og tel það öruggustu leiðina til framgangs þessu máli, og ef það verður samþ., sem ég vil vona, að megi verða, þá tel ég, að málinu sé þar með siglt í höfn, ef slík fjárveiting yrði tekin inn á fjárl. fyrir tilstilli fjvn., og þá tel ég, að till. minni sé þar með fullnægt, og get ég að því leyti tekið undir með hv. 1. þm. Árn., að þá er till. óþörf, og get ég að því leyti fallizt á, að hinkrað verði við með síðari umr., þar til séð er, hvort fjvn. fæst til að taka fjárveitinguna upp í fjárl., og í samræmi við þetta tel ég ekki nema eðlilegt, að till. verði vísað til þeirrar n. Hitt fannst mér dálítill útúrdúr hjá hv. síðasta ræðumanni, þegar hann var að tala um gömlu leiðina, að leita beint til fjárl. um aðgerðir sem þessar. Það er eins og ég hef tekið fram eðlilegasta leiðin, en hitt hefur oft við gengizt, að leiðir hliðstæðar þessari hafa verið farnar, ekl:i sízt til svipaðra aðgerða og þessara, og vil ég þar minna hv. samþm. minn á sjálfan hann og hvað hann hefur gert, og er ég sízt að ámæla honum fyrir, og get ég sagt honum, ef hann vill, hvað ég á þar við. Ef till. mín mætti verða til þess að ýta undir eða verða til þess, að fjvn. tæki upp till. um nauðsynlega fjárveitingu í þessu skyni, þá er tilgangi mínum fyllilega náð.
Ég þarf svo ekki að orðlengja um þetta meira. Ég get látið útrætt um. hvaða aðferð eigi hér að nota, því að þetta er ekki kergjumát um aðferðir, heldur er hitt aðalatriðið, sem mér og hv. samþm. mínum kemur fyllilega saman um, að það er þörf fólksins, sem verður að sinna. Hitt skiptir minna máli, hvert formið er.
Ég get svo látið lokið orðum mínum. Ég get tekið undir þau tilmæli að gefnu tilefni, að till. verði vísað til fjvn. og í því skyni, að hún fái þar þá afgreiðslu, sem til framkvæmda horfir.