10.02.1943
Efri deild: 53. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í B-deild Alþingistíðinda. (414)
132. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1943
Frsm. minni hl. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. — Ég get að mestu leyti látið nægja að vísa til nál. minni hl. á þskj. 395, þar sem lagt er til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. Það leikur ekki á tveim tungum, að það er mjög óheppilegt að slíta Alþ. nú, þegar störf þess eru í miðjum klíðum, og setja svo nýtt þ., þar sem leggja yrði fram fjárlfrv. Allir hljóta að játa, að það er ógerningur, ef nokkurt vit á að vera í fríi. Frestunin er því eigi síður í þágu Alþ. en ríkisstj. Einu frambærilegu rökin gegn frestun Alþ. eru þau, að með því fengi stj. möguleika til að slíta þessu þ. strax og búið er að afgreiða fjárl. og stjórna síðan með bráðabirgðal. til 1. okt. Ég hef aldrei vænt hæstv. ríkisstj. um slíkar einræðishneigðir og því ekki tekið þessar ásakanir í hennar garð alvarlega, enda liggja nú fyrir skýrar upplýsingar frá hæstv. ríkisstj. um það, að það sé algerlega á valdi þessa þ. að ákveða, hversu lengi það situr. Þessi ótti er því með öllu ástæðulaus. Ég sé ekki ástæðu til að óttast einræði hæstv. ríkisstj. eins og hv. meiri hl. n. virðist gera og tel sjálfsagt að samþykkja þetta frv. eins og það liggur fyrir. Þetta er mín skoðun á málinu. Hins vegar kysi ég heldur en að frv. yrði fellt að fylgja brtt. þeirri, sem hv. 9. landsk. kvaðst mundu bera fram. En í því sambandi vil ég gjarnan, að okkur, sem í minni hl. allshn. erum, gefist tími til að athuga þessa brtt. og taka endanlega afstöðu til hennar.