26.03.1943
Neðri deild: 84. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í D-deild Alþingistíðinda. (4191)
165. mál, menntaskóli að Laugarvatni
Einar Olgeirsson:
Ég vil lýsa ánægju minni yfir því, hvað hv. þm. V.-Sk. talaði hjartnæmt um jafnrétti. Það var ekki til einskis kjördæmabreytingin, ef hún hefur valdið því, að þessi hv. þm. heimtar nú jafnrétti. Ég vil líka lýsa ánægju minni yfir því, að till. er komin fram um það að byggja skóla í sveit. Það er aðeins mánuður síðan þm. Sósfl. fluttu till. um að byggja barnaskóla í sveitum, og barnakennarar landsins hafa lýst yfir því, að það vantaði 7 millj. kr. til þess að byggja barnaskóla í sveitum til þess að fullnægja áratuga kröfum um það, að gefa sveitunum jafnrétti við bæina. Ég vil líka lýsa ánægju minni yfir því, að þessi hv. þm. hefur flutt till. um að byggja nýjan menntaskóla uppi í sveit, en ekki farið inn á það að flytja menntaskólana burt úr kaupstöðunum eins og áður kom fram till. um. Ég vil lýsa ánægju minni, vegna þess, að ég álít, að þetta sé einmitt leiðin til þess að skapa samhug landsmanna um það að byggja nýja menntaskóla, barnaskóla og æðri skóla bæði í kaupstöðum og sveitum. Enn er það svo, að meiri hl. af æskulýð Íslands er útilokaður frá því að komast í æðri skóla, og ég held, að það væri búið að koma upp fleiri skólum í sveitum, ef ekki hefðu komið sífelldar till., t.d. frá framsóknarmönnum, um það að flytja skólana sem mest upp í sveit. Ég álít, að það gerði ekkert til, þó að hver einasti maður væri stúdent. Hvaða ástæða er til þess að hafa á móti því, að fólkið fái að menntast? Það er þess vegna ánægjulegt, að fram skuli komin till. um það að bæta við einum menntaskóla. En ég vil vænta þess, að um leið og framsóknarmenn leggja til, að komið verði upp menntaskóla að Laugarvatni, þá standi þeir ekki á móti því, að afnumin verði takmörkunarákvæðin, sem nú eru um inngöngu inn í menntaskólann. Ef þeir álíta húsnæðisskort standa fyrir þrifum í þessu efni, þá á að bæta úr því með því að reisa nýjan menntaskóla í Reykjavík. Ég get ekki skilið það, að húsnæðið í menntaskólanum eins og það er núna, eigi að ráða því, hversu margir stúdentar séu útskrifaðir í Reykjavík. Auðvitað verður að bæta ár þessu á þann hátt að byggja nýjan menntaskóla hér í Rvík í stað þess að setja þröng takmörkunarákvæði um inntöku í menntaskólann.
Ég álít, að það þurfi ekki að deila sérstaklega um þetta mál. Ég álít, að um leið og farið er að athuga, hvernig hægt sé að uppfylla kröfur sveitaalþýðunnar, þá eigi að sjá til þess, að verkamannabörnin í kaupstöðunum séu ekki útilokuð frá því að geta sótt menntaskólann. Ég álít, að það væri réttlátt, að um leið og menntamn. athugaði þessa till., þá athugaði hún jafnframt, hvernig bezt yrði séð fyrir þörfum kaupstaðaalþýðunnar í þessum efnum.
Ég vonast líka til þess, eftir þessa hjartnæmu ræðu hv. þm. V.-Sk., að framsóknarmenn hætti þeirri útilokunarstefnu, sem þeir hingað til hafa beitt sér fyrir í kaupstöðunum í þessum málum, þ.e. að útiloka fátækt fólk frá því að geta sótt menntaskólana. Ég ætla svo ekki að orðlengja um þessa till. frekar að þessu sinni, en vil aðeins lýsa ánægju minni yfir þeirri stefnubreytingu, sem mér finnst að hljóti að liggja á bak við þessa þáltill.