29.03.1943
Neðri deild: 85. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í D-deild Alþingistíðinda. (4199)
165. mál, menntaskóli að Laugarvatni
Þóroddur Guðmundsson:
Það eru aðeins nokkur orð, sem hv. þm. V.-Sk. sagði, sem ekki er hægt annað en víkja örlítið að. Hann telur hafa verið snúið út úr orðum sínum og að engin ástæða sé til þess að óttast eins og hér er látið í ljós, að það væri meiningin að gera þennan skóla þannig úr garði, að sérstakur stjórnmálaflokkur hefði aðstöðu til þess að koma þar ár sinni fyrir borð til að ala upp fyrst og fremst sína flokksmenn og gæta flokkshagsmuna sinna. Því verður þó ekki móti mælt, að Framsfl. hefur þegar trúlega gert það við þá skóla, þar sem hann hefur haft aðstöðu til. Þeir hafa reynt að beita pólitískri kúgun. Flokkurinn hefur beitt sér fyrir því að reka burt nemendur úr skólum, þar sem framsóknarmenn ráða, af pólitískum ástæðum. Og þó að hv. þm. V.-Sk. hafi sagt það með nokkurri æsingu, að menn hafi ekki verið reknir úr skólum nema fyrir truflandi starfsemi í skólanum, þá vita það allir, að þegar Ásgeir Blöndal var rekinn úr Menntaskóla Akureyrar, var það viðurkennt, að honum var ekkert gefið að sök annað en það, að hann hefði tekið þátt í pólitískri starfsemi á þann hátt, að hann skrifaði eina tímaritsgrein um stjórnmál. Það kom aldrei fram hjá skólastjóranum og þeim öðrum, sem töldu réttmætt að reka hann, önnur ásökun en þessi tímaritsgrein, — að hann hafi tekið þátt í stjórnmálastarfsemi, en það var bannað í skólanum. Það er því enginn fótur fyrir því, að það séu ósannindi, að menn hafi verið reknir úr skóla af pólitískum ástæðum. Og um héraðsskólana er það að segja, að allt of lítið hefur verið gert að því að fletta ofan af því samvizkulausa athæfi, sem framsóknarmenn hafa haft þar í frammi.
Hv. þm. V.-Sk. kvað hv. þm. Siglf. hafa blandað saman hugtökunum „sveitafólk“ og „framsóknarmenn“, en það væri kannske eðlilegt, því að eðlilegast væri, að allir sveitamenn væru framsóknarmenn, en óeðlilegt, að þeir væru sósíalistar. Það virðist nú vera svo, að framsóknarmönnum gleymist nokkuð oft, að sveitamenn og framsólmarmenn er ekki alveg það sama. Og þegar í héraðsskólunum er verið að kúga nemendur í stjórnmálasamtök Framsfl., þá er ekki nefndur Framsfl. á nafn, heldur er talað um „Vökumannahreyfingu“. Það var ekki salað um félagsskap ungra framsóknarmanna. En það veit ég, að þar réðu framsóknarmenn öllu og prédikuðu hreinræktuð framsóknarfræði. Og nemendur, sem ekki vildu ganga inn í þennan félagsskap, þeir vissu ósköp vel, að þeir voru illa séðir hjá kennurum og sums staðar beinlínis hótað. Þeir reyndu að nota hér áhrifavald sitt á allan hátt, fyrst og fremst með góðu, til þess að fá slíka nemendur til að ganga í stjórnmálasamtök Framsfl., og þegar það gekk ekki, þá með ýmiss konar leiðinlegum aðferðum. Þegar stjórnmálaflokkur hefur hagað sér þannig í skólum, þá er sannarlega ekki ástæðulaust, þó að menn óttist í sambandi við ný skólaplön, að haldið verði áfram á sömu braut. Og ef hv. þm. er ekki alveg sneyddur því að geta litið á það, sem ber við hjá honum og hans flokki, þá held ég, að hann hljóti að sjá, að það er fyllileg ástæða til þess, að menn séu mjög tortryggnir og varfærnir gagnvart flokki hans í öllum skólamálum. Og það, sem hann taldi upp, að lægi eftir Framsfl. í skólamálum, það er meira eða minna heilaspuni. Það er lítið, sem flokkurinn hefur að hæla sér af í þeim málum. Um það, hvort þarna sé um að ræða að koma á jafnrétti milli sveitamanna og kaupstaðabúa í þessum skólamálum, þá er það svo hlægilegt, og geri ég ráð fyrir, að búið sé að benda á það, en ég var því miður ekki við umr. áðan. Þó að komið sé upp einum menntaskóla í sveit, er ekki þar með búið að koma því í kring, að sveitamönnum sé alls staðar á landinu sköpuð betri aðstaða til þess að láta ungt fólk ganga í menntaskóla. Það er náttúrlega ekkert skemmra fyrir sveitamenn á Norðurlandi hingað og þangað að senda nemendur að Laugarvatni en til Rvíkur, að ég ekki tali um til Akureyrar. Ef á að fara að stuðla að því, að miklu fleiri stúdentar geti útskrifazt en nú, þá held ég það sé alveg öfug aðferð að koma upp menntaskóla í sveit einhver s staðar. Það er tvímælalaust miklu réttari leið að athuga heldur möguleikana fyrir því að breyta gagnfræðaskólum í kaupstöðum í menntaskóla, t.d. á Siglufirði, Ísafirði eða Vestmannaeyjum, eða fleiri kaupstöðum. Ef menn vildu gera sveitamönnum hægara að senda börn sín í menntaskóla, þá mætti um leið og skólarnir eru stækkaðir, gera heimavist, þar sem aðkomunemendur fengju að vera fyrir lítið eða kannske ekkert verð. Það er kannske hægt á þennan hátt að gera efnalitlum unglingum hingað og þangað úr sveitum kleift að ganga í skóla. Og unglingar í sveit hafa tvímælalaust gott af því að ganga í skóla í kaupstöðum, sveitaskólarnir eru mjög einangraðir. Og það er enginn efi, að það yrðu lélegri stúdentar og ekki eins vel mannaðir og menntaðir, sem útskrifuðust af skóla í sveit, heldur en þeir, sem eru í skóla í kaupstað. Unglingar í sveit hafa margfaldlega gott af því að sækja skóla í kaupstað. Ef menn óttast, að skólavera þeirra í kaupstað yrði til þess, að þeir vildu ekki í sveit vera á eftir, þá er samt engin ástæða til að hindra þá í að sækja skóla í kaupstað, heldur yrði að fara þá leið að gera lífið í sveitunum þannig, að fólkið megi sjá eitthvað annað fyrir sér án þess að vilja heldur allt annað en vera sveit.
Ég held það hafi átt að vera eitthvert grín hjá hv. þm. V.-Sk., þegar hann sagði, að ekki mundi Stalín í Rússlandi leyfa að reka pólitíska starfsemi í skólum, svo sem ef prédikaður væri nazismi eða aðrar skoðanir, sem ekki pössuðu í kramið. Ég veit ekki, hvort hv. þm. er svo skyni skroppinn að vita ekki, að hér er alls ekki hliðstæðu saman að jafna. Það vita allir, að sami verknaðurinn unninn á tveimur mismunandi stöðum getur verið alveg tvennt ólíkt. Það getur verið, að verk, sem unnið er á Íslandi, sé lítils eða einskis virði til eða frá, en sé glæpur, sé það unnið á öðrum stað. Hugsum okkur einfalt dæmi: Ef maður er með vatn í könnu og kastar því í þvottaskál, þá er hér nóg vatn til. En ef einhvers staðar er hópur manna vatnslaus, þá er það glæpur að kasta úr könnunni. Sami verknaður undir mismunandi skilyrðum er ólíkur. Það er ekkert við því að segja, að ekki sé leyft að prédika nazisma í skólunum í Rússlandi. En það er mjög svívirðilegt að reka menn úr skólum á Íslandi fyrir þess háttar, og að ekki megi reka hv erja pólitíska starfsemi sem er. Í Rússlandi eru komin á víðtæk réttindi, og þar þurfa menn ekki að halda á pólitískum flokkum eins og þar, sem stéttirnar eru hver gegn annarri. Þar þarf ekki þetta stéttatæki, hina pólitísku starfsemi. Og það er leiðinlegt að þurfa á Alþingi að upplýsa menn um eins einfaldan hlut eins og þetta.