29.03.1943
Neðri deild: 85. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í D-deild Alþingistíðinda. (4200)

165. mál, menntaskóli að Laugarvatni

Flm. (Sveinbjörn Högnason):

Það er alls ekki til þess að svara ræðu eins og þessari síðustu, að ég stend upp. En ég get ekki leitt hjá mér að geta þess, að hún lýsir svo átakanlega því innræti og hugsunarhætti, sem er að baki þeirri andstöðu, sem mál þetta mætir, einmitt þetta síðasta, að það sé sitt hvað, mannréttindi í Rússlandi eða á Íslandi. Það gerir víst ekkert til, þó að menn séu píndir og kúgaðir og megi ekki hafa neinar sérstakar skoðanir, af því að þar séu svo mikil mannréttindi ! Það eru víst sérstök mannréttindi að mega ekki hafa aðrar skoðanir en línan leggur fyrir. (ÞG: Þeir mega hafa hvaða skoðanir, sem þeir vilja). Ekki virtist mér nú rúmt um það að hans sögn. Þetta er svo mikið hyldýpi af rakaleysum og pólitískum átrúnaði og ofstæki, að ég hefði aldrei getað ímyndað mér, að. slíkt væri til. Það er verið hér í þingsal með fordæmingar yfir því, ef einhver snurða hleypur á þráðinn hér á Íslandi og menn fá ekki að lifa og láta alveg eins og þeim sýnist. Hins vegar eru það talin heilög réttindi í Rússlandi að kúga og pína menn og leyfa þeim ekki að hafa neina aðra skoðun en landsfaðirinn Stalin. Þetta eru talin sérstök mannréttindi og fríðindi og blessun. Ekki fæ ég skilið, hvernig yfirleitt er hægt að hugsa svona. En viðvíkjandi skoðanafrelsi álít ég algerlega ósanngjarnt að hindra nokkurn mann í íslenzkum skóla fá að hafa hvaða skoðun, sem hann vill aðhyllast. Menn eiga að fá að vera frjálsir í hugsun. vilji menn vera nazistar, verða þeir að fá það, þó að ég telji mikla bölvun að þeirri stefnu. Og ef menn vilja endilega vera eins grunnir í röksemdafærslu og skoðunum og síðasti ræðumaður, þá sé ég ekki neitt við því að gera. Það er ekki annað en persónufrelsið, sem verður að ráða. En ef þetta frelsi á að ríkja í skólunum á Íslandi, hvers vegna þá ekki í öllum heiminum, þar sem mannréttindi eru? Ég get ómögulega skilið þann hugsunarhátt, að það séu mannréttindi annars staðar, sem kallað er argasta kúgun hér á landi. Það er undravert, að menn, sem gegna opinberum stöðum og telja sig vinna að frjálsræði meðal fólksins, skuli opinbera slíkan hugsunarhátt. Annað var svipað í ræðu hv. þm., en ekki þýðir að eyða tíma í að rökræða það. Því að til þess að rökræða þurfa menn að standa að einhverju leyti á sama grundvelli um það, hvað eru rök, en ekki vera hvor í sínum hugmyndaheimi.