18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (45)

Rannsókn kjörbréfa

Gísli Sveinsson:

Herra forseti. – Ég mun ekki blanda mér í þetta mál, nema til þess að taka það fram, að það er engan veginn skylt, og forseti getur ekki skyldað þm. til að koma fram með skrifl. till., ef till.- menn vilja hafa hana munnlega. Ég vil vísa til 4. gr. þingskapanna að málinu verði vísað til rannsóknar samkv. henni.