18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
Rannsókn kjörbréfa
Hermann Jónasson:
Það er augljóst mál, að þótt kæra liggi ekki fyrir, þá getur þingið frestað að taka kosninguna gilda eins og hér hefur verið stungið upp á, þangað til rannsókn hefur farið fram. Með ákvæðinu um, að kæra skuli hafa borizt, áður en þing kemur saman, á að fyrirbyggja, að kærur geti í vissum tilfellum verið að berast allt kjörtímabilið. Fram hjá því verður ekki gengið samkv. 4. gr. þingskapa, að hlutverk kjörbréfan. er þrennt: Að prófa kjörbréf, er síðar koma fram en svo, að þau verði prófuð eftir 1. gr., svo og til að rannsaka kosningar og kjörgengi, er þingið hefur frestað að taka gilt, og kærur yfir kosningum og kjörgengi, er þegar eru teknar gildar. Samkv. 140 gr. kosningal. er ákveðinn frestur fyrir kærur, sem berast, ef þær eiga að vera teknar gildar. En í næstu gr. á eftir er ákvæði um, að kæra megi til dómstólanna. Rétturinn til að kæra til þingsins er takmarkaður við þennan víssa tíma, en kærur til dómstólanna er hægt að bera fram hvenær sem er. Og ef þessi kjörbréfan., sem á að rannsaka þetta mál, telur kosningu vítaverða, á hún að bera fram till. um að vísa málinu til dómstólanna.