29.01.1943
Sameinað þing: 17. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (461)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Forseti (GSv):

Hv. þm. hafa hingað til orðið ásáttir um að fresta útvarpsumr. um fjárlfrv., þar til á ákveðnu stigi þeirra mála, og hefur verið siður, að þar hafi farið fram áður en gengið hefur verið til atkvgr. eftir 3. umr. En forseti taldi rétt, til að taka af allan vafa um vilja þm., að leita afbrigða og leyfa, að útvarpsumr. færu fram að þessu sinni í lok 2. umr.