01.02.1943
Sameinað þing: 18. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í B-deild Alþingistíðinda. (494)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Frsm. (Finnur Jónsson):

Herra forseti.— Umr. hér hafa aðallega snúizt um þær till. fjvn., sem enn eru eigi fram komnar, og er það miður.

Það er mjög leitt, að einn hv. nm. hefur vakið ágreining um ýmis atriði, sem eigi er búið að útkljá innan n. Það er ekl:i þinglegt, og ég harma, að slíkt skuli hafa komið fyrir. Í n. hefur orðið samkomulag um uppkast að till. um að veita meira fé til verklegra framkvæmda heldur en ráð er gert fyrir frv., og get ég þar lent hækkað framlag til hafnargerðar, 2 millj. kr., og til brúargerða, 900 þús. kr., en enn þá hefur n. ekki gengið frá því, hvað áætla megi tekjurnar, en skoðun mín er sú, að grundvöllur muni fást innan n. til þess að afgreiða fjárl. tekjuhallalaust. Það er mjög leitt, að afgreiðsla meiri hl. skuli hafa vakið slíkar deilur, sem raun ber vitni, en ég álít, að málin upplýsist ekki meir á þessa stigi, þótt þessum deilum sé haldið áfram, og ég vona, að hv. þm. ræði framvegis meir um till. fjvn., sem nú liggja fyrir, og láti umr. um þær till. n., sem eigi eru komnar fram, bíða til 3. umr. Á meðan eigi verður vitað, hvort ágreiningur verður um málin, þá finnst mér eðlilegast að láta allar ádeilur bíða þar til síðar. Ég segi þetta í því trausti, að hæstv. forseti gefi mönnum tóm til að ræða málið við 3. umr. og þá fái þm. nægan tíma til að athuga og koma fram með brtt.

Svo vil ég víkja aftur að því, sem ég nefndi áðan, að ég tel miður, að einn hv. fjvnm. hefur komið fram með till. við ýmsa liði fjárl., sem honum er kunnugt um, að n. er í raun og veru sammála um í heild að leggja fram við 3. umr. þar er þá fyrst VI. liður á þskj. 312, um brúargerðir. N. gerði drög að till. um framlög til brúargerða eftir áliti vegamálastjóra, og þó að till. vegamálastjóra og till. hv. 6. landsk. fari saman, þá er ekki rétt hjá hv. 6. landsk. að það hafi verið hann, sem hefði komizt að raun um, að þetta væru réttar upphæðir, því að þetta voru till. vegamálastjóra, en ekki till. hv. 6. landsk.

Svo er það XL liður á sama þskj., um flugmál, og get ég verið stuttorður um hann. Ég vil benda á, að n. hefur eigi tekið afstöðu til flugmála, en ákvað að geyma þau ásamt fleiru til 3. umr. Ég átti tal við hæstv. atvmrh. um þessi mál og fékk að vita skoðun hans á þeim og ætlaði að fá flugmálaráðunaut og formann flugfélagsins á fund í fjvn., en þá var annar fjarverandi, svo að eigi varð frekar gert í málinu. Það er því óviðkunnanlegt á þessu stigi málsins, að einn hv. nm. skuli leggja fram till. um þessi mál, áður en n. hefur athugað ;þau til fulls og áður en vitað er, hvort um ágreining er að ræða eða ekki. Sama máli gegnir um XlII. lið á þessu sama þskj. Það mál var óútkljáð í n., og hefði verið æskilegra, að þessi hv. þm. hefði geymt að koma með brtt. um það, þar til atkvgr. hafði farið fram um það í n. — Viðvíkjandi þessum lið, sem var styrkur til byggingar barnaskóla utan kaupstaða, þá var mér ekki kunnugt um, að hv. 6. landsk. hefði nokkra brtt. um þetta, meðan málið var í n., og sama máli gegnir einnig um framlag í íþróttasjóð, sem hv. þm. hefur nú borið fram brtt. við. Hér er um að ræða mjög óvenjuleg vinnubrögð. En ég vona, að úr þessu rætist hjá hv. 6. landsk., þegar hann hefur starfað lengur í n. hér á hv. Alþ. Hann kom vel fram innan n., meðan hún var að störfum, og það er því miður, að hann skuli hafa farið út yfir þau takmörk, sem nm. venjulega starfa eftir hér á hv. Alþ.

Viðvíkjandi framlagi til íþróttasjóðs, þá munar þar ekki nema 20 þús. kr. á till. hv. 6. landsk. og till. n., vegna þess, að ætlazt er til, að áætlað framlag til fimleikahúss á Eiðum, kr. 50 þús., verði endurgreiðsla á skuld, er skólinn stendur í við íþróttasjóð, og er fremur ástæða til að bera fram brtt. við stærri atriði og láta þetta eiga sig.

Hér hefur verið gerð að umtalsefni tekjuáætlun ríkissjóðs. Fjvn. skipaði tvo menn til þess að athuga það atriði, og þeir hafa lagt grg. fyrir u., en enn þá hefur eigi verið tekin afstaða til hennar. N. hefur í síðustu viku borizt ýtarlegri upplýsingar um tekjuöflun ríkissjóðs I943, sem gefa vonir um, að tekjurnar verði hærri en geit hefur verið ráð fyrir, þannig að óhætt sé að áætla eigi minna fé til verklegra framkvæmda en fjvn. hefur gert ráð fyrir.

Ég vil leiða athygli hæstv. ríkisstj. að því, að fjvn. hefur ekki tekið í till. sínar áætlun um grunnlaunahækkun síðari hluta ársins 1942 og verðlagsuppbót á henni, vegna þess að hæstv. ríkisstj. hefur ekki lagt til við Alþ. að fá þessa heimild framlengda, en hún gildir aðeins til 1. júlí 1943. Enn fremur hefur fjvn. frestað að gera till. um nokkur önnur atriði, t.d. framlag til fiskveiðasjóðs, en frv. um það efni hefur geng;ð í gegnum hv. Nd., en er eigi enn komið úr n. í hv. Ed. Ef frv. það yrði samþ. eins og það liggur fyrir, þá gæti það breytt gjaldaáætluninni um 2 millj. kr. til hækkunar.

Hv. 3. þm. Reykv. minntist á hina áætluðu dýrtíðaruppbót á 19. gr. Um hana er það að segja, að engin sundurliðuð áætlun var til um hana í stjórnarráðinu, fyrr en núv. hæstv. fjmrh. setti einn starfsmann í stjórnarráðinu í það milli jóla og nýjárs að reikna hana út, og kom þá í ljós, að hún var vanreiknuð um hvorki meira né minna en 1200000 kr. Fjvn. hefur eigi haft aðstæður til að endurskoða þennan útreikning, því að hann barst svo seint, og er þessi áættun því öll á ábyrgð fjmrn. Ég get því vel skilið, að hv. 3. þm. Reykv., sem er fyrrv. fjmrh., hafi komið þessi upphæð allkynlega fyrir sjónir, þar sem um verulega vanrækslu virðist vera að ræða í hálfu þess ráðuneytis, sem hann veitti forstöðu. Hv. 3. þm. Reykv. sagði enn fremur, að sér fyndist það eigi vera að vinna gegn dýrtíðinni að ausa fé í opinberar framkvæmdir, heldur mundi það auka dýrtíðina. Ég er ekki á þessari skoðun. Ég tel ekki, að um neinn austur sé að ræða, þótt fylgt sé till. fjvn. Hins vegar tel ég, að atvinnuástandið sé svo ótryggt, að alveg óforsvaranlegt væri, ef Alþ. legði eigi meira fé en venjulega til verlægra framkvæmda, ef svo færi, að atvinnuleysi yrði næsta sumar, — og því miður horfir eigi vel, hvað það snertir. — Í þessu sambandi skal ég geta þess, að fjvn. hugsaði sér að geyma fjárveitingar til verlægra framkvæmda til síðari tíma, ef svo færi, að eigi þyrfti að nota þær á þessu ári. Yrðu þær þá lagðar til hliðar til þess að vinna hin sömu verk og nú er gert ráð fyrir, en eigi notaðar í öðru skyni.

Hv. 3. þm. Reykv. minntist og á aukauppbætur úr ríkissjóði til farkennara. Ég geri ekki ráð fyrir, að þær verði taldar eftir, því að þessi stétt þjóðfélagsins hefur verið illa launuð, en annað mál er það, að viðkunnanlegra er að leita heimilda fyrir þeim greiðslum, heldur en greiða þær án heimilda. Um aukauppbætur til lækna og presta, sem þessi hv. þm. minntist á, var fjvn. sammála um, að þær séu óviðkunnanlegar, meðan þær eru teknar í heimildarleysi.

Hv. 3. þm. Reykv. fannst réttara, að n. tæki ýmsar hækkunartill. sínar aftur til 3. umr. óg geymdi þær eins og hinar, sem geymdar voru. Ég tel þetta óráðlegt, því að mér finnst meira en nóg að geyma þær till. til 3. umr., sem geymdar eru, þótt reynt væri að afgreiða nú þessar till., sem hér liggja fyrir.