01.02.1943
Sameinað þing: 18. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (495)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1943
Kristinn Andrésson:
Herra forseti. — Ég get ekki stillt mig um að vekja máls á því, að það er dálítið erfitt fyrir okkur sósíalista, sem höfum allt aðra skoðun á rekstri þjóðfélagsins, hvernig hann ætti að vera, að taka þátt í afgreiðslu fjárlagafrv. eins og þessa, ef við litum t.d. á tekjuhlið fjárl. og sjáum, að allur meginhluti tekna þeirra er af sköttum og tollum, en af ríkisrekstri ekki nema um 5 millj. kr. Þetta er leiðinleg spegilmynd af þjóðfélagsrekstrinum sjálfum. Þegar við líka berum saman tekjuupphæðirnar og t.d. útflutninginn hins vegar, þá sjáum við, að það er ekki nema tiltölulega lítill hluti þjóðarteknanna, sem fer í gegnum ríkissjóðinn. Og við vitum, að á síðustu árum barst óskaplega mikill auður í þjóðarbúið, þannig að ýmsir einstaklingar hafa orðið milljónerar á stuttum tíma. Hins vegar reynir ríkisvaldið að ná til þessara peninga óbeint með sköttum og tollum. En sósíalistar sem sagt óska þess, að það væru allt aðrar leiðir farnar til þess að ná tekjustofnum til ríkisins. Ég vildi aðeins vekja máls á þessu, en fer ekki út í það að öðru leyti, heldur verð vitanlega að ræða fjárlagafrv., eins og það liggur hér fyrir til umr.
Afgreiðsla hv. fjvn. hefur, eins og bent hefur verið á, orðið á þann veg í málinu, að við sósíalistar teljum ekki viðunandi, en sjáum ástæðu til að koma fram með brtt. við fjárlagafrv. nú við þessa umr., bæði um verklegar framkvæmdir og menningarlegar framkvæmdir, til þess að það sjáist strax við þessa umr., hvaða undirtektir þær muni fá. Flestar till. mínar eru um framlög til bókmennta og lista, og vil ég víkja að þeim fyrst.
Það þarf ekki annað en líta yfir fjárlagafrv. frá ári til árs til þess að sjá, að þessir hlutir eru í nokkuð föstu og jafnvel stirðnuðu formi. Virðist því nauðsyn að staldra við öðru hverju og hugleiða, hvort þau mál þurfi ekki endurskoðunar við. Það standa á fjárl. frá ári til árs örfáar upphæðir til lista, upphæðir, sem lítið breytast. Og t.d. koma þessar upphæðir fram litið breyttar nú frá því, sem verið hefur, þrátt fyrir það að heildartekjur ríkissjóðs og upphæðir fjárl. yfirleitt hafi stórkostlega hækkað við dýrtíðina.
Og til hvers erum við að styðja bókmenntir og listir? Er það til þess að efla þessa starfsemi, af því að við teljum hana nauðsynlega fyrir þjóðfélagið, eða er það eingöngu gert í viðurkenningarskyni við einstaka menn? Eða er það gert af tómum hégómaskap eða í gustukaskyni við einstaka menn? Satt að segja ríkir hjá okkur Íslendingum furðu mikil ósamkvæmni í allri afstöðu okkar til lista. Það er ekki að efa, að þjóðin er listhneigð, hún ann skáldskap og dýrkar í raun og veru listamenn sína. Samt hefur það endurtekið sig kynslóð eftir kynslóð, að skáld og listamenn okkar hafa ekki fengið að njóta sín vegna ótrúlega þröngra lífskjara. Það er óþarfi að nefna mörg dæmi þessa. Skal ég aðeins benda á tvenn!:. Eftir Jónas Hallgrímsson liggja í raun og veru mjög fá ljóð. Það er ekki minnsti vafi á því, að miklu meira hefði orðið úr starfi hans, ef hann hefði ekki átt að stríða við skort árum saman. Ævi jafnstórbrotins skálds og Bólu-Hjálmars fór í raun og veru í vesalasta basl og klögumál við samtíð hans. Um áratugi og aldir höfum við séð þessa hluti endurtaka sig. Og getum við efast um, að þjóðin vildi nú hafa gefið stórfé til þess, að eftir Jónas Hallgrímsson hefði fundizt þótt ekki væri nema eitt kvæði umfram það, sem til er eftir hann. Ég held, að það þætti dýrmætt, þó að ekki hefði fundizt nema eitt kvæði í viðbót eftir hann, hvað þá hefði verið hægt að lengja líf hans, þótt ekki hefði verið nema um eitt ár. Og nú skynjar hvert mannsbarn á Íslandi, að ljóð hans eru einn dýrmætasti arfur þjóðarinnar, sem ekki verður metinn til peninga. En meðan hann lifði, var ekkert gert til þess að örfá starfsþrek hans. Ég álít, að það hafi ekki verið af neinni mannvonzku, heldur grundvallarmisskilningi á listastarfsemi og listamönnum. En af viðurkenningu þeirri, sem þessi skáld fá, löngu eftir að þau eru látin, sést, að þjóðin telur verk þeirra jafnvel verðmætust allra afreka, sem unnin eru í þjóðfélaginu. En samtímis hefur þjóðin fram á þennan dag ekki fengizt til að viðurkenna listamennina í lifanda lífi sem starfsmenn þjóðfélagsins, er séu launa verðir á við verst launuðu starfsmenn þess opinbera, svo sem presta og kennara. Það er sorglegt til þess að vita, að enn í dag þykir hæfilegt mánaðarkaup handa skáldum og listamönnum 150–250 kr., sem er lægra kaup en greitt er sendisveinum í verzlunum. Og hver er svo til viðbótar arður rithöfundanna og listamanna af verkum sínum? Eins og ástatt er í þjóðfélagi okkar er hann sára lítill og ekki hægt að meta hann meira en 2–3 þús. kr. af frumsömdum verkum. Maður getur spurt: Hvernig víkur þessu við? Ég held, að svarið sé: „Fram á þennan dag hefur það ekki komizt inn í vitund þjóðarinnar, að það krefst tíma eins og hvert annað starf að rita og skapa listræn verk:
Við tölum um hinar og aðrar starfsgreinar í þjóðfélaginu, sem nauðsynlegar séu. En hvenær tölum við um skáldskap og listir sem nauðsynleg störf í þágu þjóðfélagsins? Það er viðkvæðið, að ríkið þurfi að styðja þessa og þessa atvinnugrein eða iðngrein til þess að hún geti blómgazt. En mjög sjaldan drögum við þessa líkingu yfir á bókmenntir og listir, vegna þess að okkur er ógjarnt á að setja listir og bókmenntir í samband við fjármagn. En ég álít listastarfsemina hliðstæða við aðrar greinir starfsemi í þjóðfélaginu, er þarfnast aðstoðar ríkisvaldsins eins og þær. Og þegar við höfum gert okkur grein fyrir, að listastarfsemin er ómetanleg í þágu þjóðfélagsins, er nauðsynlegt að viðurkenna, að til þess að nokkur list geti blómgazt, þarf að skapa henni starfsskilyrði. Hún þarf í fyrsta lagi að eiga ákveðnar stofnanir. Og í öðru lagi þarf að vera launaður ákveðinn fjöldi manna, sem getur helgað sig þessari starfsemi. Það er í raun og veru þetta tvennt, sem um er að ræða. Og eins og nú standa sakir, er sérstök ástæða til þess að styrkja listastarfsemina í landinu, vegna þess að nú á þessari öld hafa skapazt hér ýmsar nýjar listgreinar, sem eru í þróun, og í öðru lagi vegna þess, hve listastarfsemin á Íslandi stendur á háu stigi á þessari öld. Við tölum um fornbókmenntir okkar, og okkur getur öllum komið saman um að dást að þeim og viðurkenna gildi þeirra. En þegar kemur að nútíma bókmenntunum, þá er í raun og veru allt annað uppi, og það heyrist jafnvel nú, — þótt maður ekki tali um þau ummæli, að nú sé hvíldartími í bókmenntum hjá okkur, — að það er jafnvel mjög algengt viðkvæði, að bókmenntir okkar standi á mjög lágu stigi. Þetta álít ég vera hinn mesta misskilning. Sannarlega á það að vera ljúft hverjum Íslendingi að láta listaverk fornaldarinnar njóta sannmælis. Þau eru sígild. En síðari tímar geta líka skapað verk jafn sígild. Og hvernig vegum við og metum verk ólíkra alda? Við verðum að vega þau og meta innan þeirra takmarkana, sem hver tími setur. Og hver vildi þá t.d. taka að sér að dæma um það, svo eitt dæmi sé nefnt, eða úrskurða Einar Benediktsson minna skáld en Egil Skalla-Grímsson? Dýrkun manna á fornbókmenntunum ætti ekki að þurfa að vera svo blind, að þau séu einlægt látin varpa skugga á verk samtíðarinnar, svo að þau fái aldrei að njóta sannmælis. En ég álít, að á 20. öldinni hafi Íslendingar einmitt unnið bókmenntaleg afrek, sem þoli hvort tveggja í senn, samanburð við beztu afrek fornaldarinnar og samtíma bókmenntir erlendis. Á þessari öld er eins og Íslendingar nái sér til fulls eftir margra alda fátækt og basl, þannig að nú koma fram þeir kraftar til að skapa listaverk, sem búið hafa með þjóðinni frá öndverðu. Mér virðist nú vera ný gróska og blómgun í íslenzkri listastarfsemi, eins og ríkisstjóri komst að orði nýlega. Ég held, að kveða megi sterkar að orði: Við lifum á þessari öld mesta blómaskeið íslenzkra lista frá því á tíma fornbókmenntanna.
Ef við athugum þau skilyrði, sem íslenzk list á við að búa, þá eru þau á margan hátt mjög ömurleg. Í sambandi við listamannaþingið komu einmitt fram mjög átakanlegar lýsingar á því, hvernig háttað er lífsskilyrðum íslenzkra lista og þeim aðbúnaði, sem þær eiga á mar gan hátt. Í því sambandi má, eins og oft hefur verið gert áður, benda á þjóðleikhúsið. Leiklistin hér er húsnæðislaus, og er það í raun og veru til mjög mikillar smánar fyrir okkur, að ekki skuli hafa tekizt að koma þjóðleikhúsinu upp.
Formaður leikfélagsins, Þorsteinn Ö. Stephensen, lýsir þessu í viðtali við Morgunblaðið, 27. nóv. síðast liðinn, þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Menn, sem standa utan við starfsemina, geta ekki áttað sig á því, að leikstarfsemin er öll að kyrkjast í þessum þrengslum“. — „Ekkert pláss til æfinga. Við verðum að kúldrast í stofum og einkaherbergjum úti í bæ, hér og þar. Að leiksviðinu í „Iðnó“ komumst við oft ekki fyrr en rétt síðustu kvöldin fyrir frumsýningar. Þá verða æfingar að standa langt fram á nótt: — „Þrjú hundruð áhorfendur í „Iðnó“ gera ekki betur en borga kostnað kvöldsins. En leikendurnir bera ekki meira úr býtum en svo, að þeir verða að hafa sitt fulla starf við annað á daginn, en nota tímann á kvöldin og nóttunni til æfinga og leika þann tíma, sem aðrir hafa til hvíldar.“
Um myndlistina er svo ástatt, að ríkið hefur varið fé til þess að kaupa myndir fyrir listasafn ríkisins, en húsið yfir safnið hefur enn ekki komizt upp. Myndirnar, sem ríkið hefur keypt, eru ýmist dreifðar út um land eða þá liggja undir skemmdum í kjöllurum, og munu jafnvel sumar vera týndar. Það, sem því er aðkallandi fyrir myndlistina, er að koma upp húsi fyrir málverkasafn ríkisins.
Um tónlistina er alveg svipað að segja. Um tónlistarskólann segir Páll Ísólfsson í sambandi við listamannaþingið í grein í Morgunblaðinu, sem ég vil, með leyfi hæstv. forseta, vitna í:
„Hann er alveg nauðsynlegur fyrir þróun tónlistar í þessu landi. Það hefur hann sýnt þau 11 ár, sem hann hefur starfað. Hann er alltaf fullskipaður. Þar eru 70 nemendur“. Og svo bætir hann við : „Hann býr við lélegri húsakynni en flestir, ef ekki allir, skólar landsins“
Ég nefni þetta sem dæmi um það, hvernig þau skilyrði eru, sem íslenzkar listir eiga við að búa á þessari öld. Sannleikurinn er, að okkur vantar bæði stofnanir til þess, að listirnar geti dafnað, og við þurfum að leggja meira fé fram þeim til styrktar á annan hátt. Og þá er að athuga: Hvað gerum við í þessum efnum, og hvað getum við gert?
Við heyrum jafnan kvartanir um það, að Alþ: skeri í þessum efnum allt við neglur sér. Og þó að við veitum tiltölulega meira til lista á fjárl. heldur en aðrar þjóðir, miðað við stærð þjóðarinnar o.fl., sem oft hefur verið sagt, þá held ég, að við getum ekki nema að mjög litlu leyti borið okkur saman við aðrar þjóðir í þessu efni. Við erum fámenn þjóð, og þeir listamenn, sem hér starfa, skáld, listamenn og aðrir, geta ekki fengið neitt líkt því fyrir verk sín eins og listamenn erlendis. Listamenn erlendis fá miklu meiri tekjur af verkum sínum en íslenzkir listamenn eiga kost á að fá. Félagsskapur og stofnanir til eflingar listastarfsemi eru erlendis miklu víðtækari en hér. Og erlendis eru ýmsir sjóðir, sem veita fé til lista, svo sem t.d. Karlsbergsjóðurinn í Danmörku. Vil ég þó sérstaklega leggja áherzlu á það, að listir og bókmenntir eru okkur margfalt meira virði en stærri þjóðum. Listir og bókmenntir eru sjálfstæðismál okkar, og bókmenntir og listir eru landvarnir okkar. Ég þarf líklega ekki að skýra þetta með mörgum orðum. Við vitum það, að í allri sjálfstæðisbaráttu okkar höfum við einmitt litið á bókmenntir okkar, og þá sérstaklega fornbókmenntirnar, sem vopn í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Og ekkert erlent ríki hefur treyst sér til að neita því, að þjóð, sem hefur skapað jafn verðmæt listaverk og Íslendingar á heimsmælikvarða, beri fullur réttur til þess að vera talin í tölu sjálfstæðra þjóða. En við megum ekki ætlast til þess, að fornbókmenntirnar geti enzt okkur endalaust í þessu efni, ef ekkert nýtt kæmi til, engin ný slík sönnunargögn, ný rök fyrir réttmæti sjálfstæðis okkar. Þess vegna álit ég það fagnaðarefni, hve bókmenntir og listir standa á háu stigi á þessari öld, þegar við enn á ný verðum að heyja sjálfstæðisbaráttu og leggja þessi gögn fram. Míg hefur tekið það sárt í þessu sambandi, að fulltrúum okkar út á við hefur láðst að nefna þetta sem skyldi. Þeir hafa stundum vitnað í fornbókmenntir okkar sem sönnun fyrir því, að við eigum að vera sjálfstæð þjóð, en þeir virðast ekki hafa skilið, að við eigum nútímabókmenntir og nútímalistir sem sönnunargögn fyrir þessu. Sendiherrar Íslands út á við ættu að nota aðstöðu sína til þess að kynna öðrum þjóðum bókmenntir okkar og listir bæði fornar og nýjar.
Þá vil ég aðeins koma að því, hve mikið það er, sem við leggjum fram til lista, eftir því fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir og litlar brtt. hafa komið við frá hv. fjvn. Þessar upphæðir, sem þar er gert ráð fyrir, að varið verði til bókmennta og lista, eru ekki margar, og er mjög fljótlegt og auðvelt að telja þær upp, sem ég vil biðja hæstv. forseta leyfis til. Styrkur til skálda, rithöfunda og listamanna er samkv.
Ákvörðun Menntamálaráðs :
kr.
100000.00
Til leikfélags Reykjavíkur
–
12000.00
Til leiklistarskóla Lárusar Páls-
sonar og Soffíu Guðlaugsdóttur,
1200 kr. til hvors,
–
2100.00
Til Leikfélags Akureyrar
–
1500.00
Til Leikfélags Ísafjarðar
–
800.00
Til Tónlistarskólans
–
6500.00
Til Hljómsveitar Reykjavíkur
–
2000.00
Til Hallgríms Helgasonar til út-
gáfu á þjóðlagasafni
–
2500.00
Til Sambands Íslenzkra karlakóra
–
6000.00
Til Landssambands blandaðra kóra
og kvenkóra
–
2500.00
Til Einars Jónssonar og listasafns
hans
–
7500.00
Til Bandalags íslenzkra listam.
–
1200.00
Samtals
kr.
144900.00
Heildartekjur ríkissjóðs eru hins vegar áætlaðar á fjárl. rúmar 48 millj. kr., þannig að þetta, sem við samkv. þessu fjárlagafrv. leggjum fram til bókmennta og lista, er um það bil nákvæmlega 3 kr. af hverju þúsundi króna, sem gert er ráð fyrir að ríkissjóður hafi í tekjur. Og ég vil halda fram, að slíkt framlag til bókmennta og lista sé ekki neitt til að gorta af fyrir okkur. Því að þó við séum fámennir og fátækir, þá höfum við að öðru leyti allt aðra aðstöðu heldur en ýmsar stærri þjóðir. T.d. þurfum við ekki að kosta neinn her, en flestar aðrar þjóðir verða að kosta her til landvarna og verja stórfé til vígbúnaðar, sumar þeirra jafnvel 50–75% af öllum þjóðartekjunum. Og ef við viljum hafa þann skilning, að bókmenntir og listir séu okkar landvarnir, þá finnst mér ekki óeðlilegt að fara fram á, að þessir styrkir til bókmennta og lista verði hækkaðir mjög mikið. Mér finnst ekkert mikið, þótt við legðum fram 5% af tekjum ríkissjóðs til bókmennta og lista, sem mundi, eftir tekjuáætlun fjárl. nú, gera 2 millj. og 400 þús. kr. Við vitum nú, að tekjurnar fara miklu hærra. Ég vil segja, að með þessari upphæð gætum við gerbreytt skilyrðum íslenzkra lista á örfáum árum. Fyrir þessa upphæð gætum við fullgert þjóðleikhúsið og sennilega líka komið upp listasafni ríkisins og styrla tónlistarskólann meira en við gerum og gert hann að ríkisskóla. Og fyrir þessa upphæð, 5% af þjóðartekjunum, mundum við geta styrkt, ég segi t.d. 80 íslenzka listamenn: 20 rithöfunda, 20 myndlistarmenn, 20 tónlistarmenn og 20 leikara með 5 þúsund kr. hvern á ári. Það mundi gera 400 þús. kr., og þá væri eftir um 2 millj. kr. til annarrar listastarfsemi. — Ég nefni þetta til dæmis, og ég tel, að við hefðum vel ráð á að veita þennan hundraðshluta af ríkistekjunum til listastarfsemi. Ég álít, að við gætum gert þetta, en legg það ekki til að vísu.
Ég skal þá koma að brtt. sjálfum.
Ég ætla þá að víkja að þeim. brtt., sem ég hef flutt hér. Það er fyrst till. um styrk til þjóðleikhúsbyggingarinnar. Ég þarf ekki að ræða þetta mál mikið. Það hefur komið fram á þingi þáltill. um að endurgreiða þjóðleikhússjóði skemmtanaskatt þann, sem frá honum hefur verið tekinn, og önnur þáltill. um að skora á stj. að fá þjóðleikhúsið rýmt og smíði þess lokið. Till. um endurgreiðsluna hefur enn ekki verið afgr. og því ekki sýnt, hvernig um hana fer. Þessi till. er borin fram til þess að fá úr því skorið, hvað þingheimur ætlar sér í þessu máli. Ég legg til, að veittar verði 500 þús. kr. í þessu skyni. Eins og hv. þm. vita, er gersamlega óverjandi að láta þjóðleikhúsið standa þannig ónotað, þegar til þess hefur verið varið jafnmiklu fé og gert hefur verið og til mikilla leiðinda fyrir þjóðina, að þetta hús, sem á að vera eitt af veglegustu og myndarlegustu húsum í bænum, skuli vera pakkhús fyrir erlenda setuliðið. En mér skilst, að einhver hreyfing muni vera komin á þetta mál og ekki vanta nema herzlumuninn til að leikhúsið verði rýmt, og þyrfti þá þegar á þessu ári að ljúka smíði þess, svo að það geti tekið til starfa.
Þá ber ég hér fram ásamt hv. þm. N.-Ísf. till. um, að styrkur til listamanna, sem áður var í 18. gr., verði aftur tekinn upp í fjárl. Það er gersamlega óþarft fyrir mig að rekja sögu þessa máls; hún er ekki aðeins þingkunn, heldur landskunn. Með litlum atkvæðamun voru þessir menn felldir út af 18. gr. á þinginu 1939, en upphæðin sett til menntamálaráðs til útbýtingar. Um þetta hefur staðið hinn mesti styr, og hafa komið fram almennar kröfur frá listamönnum og fjölda annarra manna um, að Alþ. sjálft ráðstafi þessum styrkjum og það sé miklu meira virði fyrir þá að fá hann veittan frá þinginu en að menntamálaráð sé látið úthluta honum. Hins vegar er ekki farið fram á, að styrkurinn í 15. gr. komi aftur til þingsins. Ein aðalröksemdin fyrir að taka þetta út úr þinginu var sú, að svo mikið þvarg væri kringum þingið af mönnum. sem vildu komast inn í fjárlögin eða fá styrk, en á það má benda, að það var einmitt í kringum styrkinn í 15. gr., sem mest þvargið stóð, ef hægt er að tala um þvarg í þessu sambandi. Ég held, að það sé almenn skoðun hv. þm., að styrkurinn til skálda og listamanna eigi að vera framvegis í höndum þingsins. Hins vegar er ekki víst, að menn séu sammála um það, hversu rúm þessi 18. gr. eigi að vera, hve marga menn eigi að taka þar inn. Í þessari till. okkar var fyrst fylgt þeirri reglu að taka aftur inn í 18. gr. styrk til þeirra manna, sem voru þar árið 1938 og eru lifandi nú, og það er mikill meiri hl. þeirra manna, sem eru upp taldir í brtt. Við álitum þetta réttlátt, af því að það var talið, að ef einhver maður hafði einu sinni fengið veittan styrk í 18. gr., þá ætti það að gilda sem skuldbinding af hálfu þingsins um, að þessir ættu að fá þennan sama styrk ævilangt upp frá því. Það hefur því verið talið, að með þessu væri brotinn réttur á öllum þeim mönnum, sem áður fengu styrk í þessari gr. Þess vegna viljum við halda okkur við það, að þeir, sem voru áður í þessari gr. og eru lifandi, verði settir þar inn á ný. Hins vegar höfum við bætt við nokkrum mönnum, sem ég býst við, að flestum muni að athuguðu máli koma saman um, að eigi þar heima. Eru það í fyrsta lagi nokkrir rithöfundar, sem áður voru í 15. gr., eins og Tómas Guðmundsson, Jóhannes úr Kötlum og ef til vill örfáir aðrir, enn fremur Gunnar Gunnarsson, sem flutzt hefur heim síðan. Enn fremur höfum við tekið 2–3 tónlistarmenn, sem ekki voru þar áður, Sigvalda Kaldalóns, sem hefur verið í 15. gr., og Árna Thorsteinson. Þá höfum við enn fremur tekið þrjá gamla viðurkennda leikara, Friðfinn Guðjónsson, Gunnþórunni Halldórsdóttur og Guðrúnu Indriðadóttur. Ég held, að það séu ekki öllu fleiri, sem við leggjum til, að bætt verði við. Við viljum sérstaklega með þessu koma því „principi“ á, að það sama sé látið gilda um alla leikara og um skáld og hljómlistarmenn. Viðvíkjandi þeim nýju mönnum, sem bætt hefur verið við, höfum við farið eftir þeirri reglu, að þetta væru viðurkenndir menn.
Ég skal taka fram, að tala þeirra, sem nú yrðu á 18. gr., er tveimur lægri en áður var. Við gerum till. um 32 menn, en í fjárlögum 1938 voru þeir 36, en þar af voru tveir aldrei felldir burt. Heildarfjárhæðin var áður rúm 70 þús., en nú 86 þús., svo að þar munar litlu.
Ef til vill vilja sumir hv. þm. hafa þetta nokkru þrengra, en ég er ekki víss um, að það væru sterk rök fyrir því. Mér finnst, að í 18. gr. eigi fyrst og fremst að vera þeir, sem eru viðurkenndir listamenn og hafa stundað listastarfsemi sem sitt aðalstarf, eru sem sagt „professional“ listamenn. Ég mundi jafnvel vilja bæta nokkrum fleirum við. Hins vegar héldi menntamálaráð áfram að veita styrk til þeirra, sem enn þá eru óráðnari, styrk, sem væri óákveðinn frá ári til árs. Ég held, að ég þurfi að svo komnu máli ekki að segja fleira um þetta.
Þá er enn fremur lagt til, að styrkur til skálda og rithöfunda samkv. ákvörðunum menntamálaráðs verði hækkaður úr 100000 kr. í 250000 kr. Ég skal geta þess, að þessi till. er að nokkru leyti flutt til vara, þannig að ég mundi fallast á, að þessi styrkur mætti vera nokkru lægri, svo framarlega sem till. mín verður samþ. við 18. gr., en yrði hún ekki samþ., þá finnst mér þessi upphæð ekki mega vera minni en 250000 kr.
Þá er brtt. við 15. gr., nýr liður: Styrkur til listamanna til náms erlendis samkvæmt ákvörðunum menntamálaráðs að fengnum till. frá félögum Bandalags íslenzkra listamanna, 48000 kr. Ég veit ekki fyrir víst, hvernig skilja á brtt. frá fjvn., þar sem hækka á styrkinn til námsmanna erlendis úr 12500 kr. í 100000 kr. Ég veit ekki með víssu, hvort hann á líka að vera handa listamönnum, eða hvort hann á aðeins að vera handa stúdentum í erlendum háskólum. Ef hann er einnig ætlaður listamönnum, mundi ég geta fallið frá þessari till. aftur, en ég vildi þá í sambandi við þennan styrk, að alveg væri dregin markalína, hvað væri ættað listamönnum og hvað stúdentum. Listamannaþingið fór þess á leit við Alþ., að veittur yrði styrkur til að kosta einn mann frá hverri deild Bandalags íslenzkra listamanna á ári hverja. Deildirnar eru fjórar, og þessar 48000 kr. eru miðaðar við, að veittar séu 12000 kr. til eins manns árlega. En ef upphæðin skyldi vera jafn há, sem fengist úr þessum 100000 kr., sem fjvn. hefur lagt til, þá get ég fallið frá þessari till.
Þá hef ég ásamt hv. þm. Snæf. lagt til, að hækkaður yrði úr 1200 kr. í 3600 kr. styrkurinn til leikskóla Lárusar Pálssonar. Hann hefur áður í 15. gr. haft jafnan styrk Soffíu Guðlaugsdóttur, 1200 kr. Nú hefur fjvn. lagt til, að þriðja manninum, Jóni Norðfjörð, verði bætt inn í, einnig með 1200 kr., en við leggjum til, að framlagið til Lárusar Pálssonar verði 3600 kr. Skóli Lárusar hefur starfað í þrjú ár, og hafa þar verið 15 nemendur á ári. Auk Lárusar hafa verið tveir kennarar við skólann. Kennslutímar hafa verið 7–8 á viku. Margt af því fólki, sem hefur lært í þessum skóla, er þegar farið að koma fram á leiksviði. Þarf ekki að lýsa því fyrir hv. þm., hversu efnilegur leikari Lárus er, og er ég víss um, að þeir bregðast vel við að styrkja skóla hans eins og hér er lagt til.
Þá er enn ein till., sem líka heyrir til menningarmála. Hún er um að hækka framlag til bóka- og handritakaupa til Landsbókasafnsins. Þessi upphæð hefur verið 50000 kr., en ég legg til, að það verði hækkað upp í 250000 kr. Safnið hefur m.a. vegna fátæktar litið getað keypt rif bókum og því ekki getað fylgzt nærri því svo vel sem skyldi með nútímanum. Það er oft, að menn í ýmsum vísindagreinum geta ekki fengið þar þau rit, sem þeir þurfa. Nú eigum við miklar innieignir í Englandi, og tel ég því, að nú sé réttur tími til að gera safnið fullkomnara, og legg ég því til, að veittar verði til þess 250000 kr.
Þá hef ég borið fram þrjár till. um verklegar framkvæmdir. Sú stærsta er um, að framlag til hafnargerðar á Húsavík verði hækkað upp í 250000 kr. Ég þykist viss um, að hv. þm. séu sammála um, að þetta sé verk, sem vinna þurfi. Á síðasta þingi var samþ. að reisa síldarverksmiðju á Húsavík, en hana er ekki hægt að reisa, fyrr en hafnargarðurinn er kominn þar upp. Ég hygg, að fjvn. hafi ætlað að koma með till. um fjárveitingu til þess hafnargarðs, en ósamkomulag hafi frekar verið um, hvort hægt væri að byrja að byggja hann strax og hvað mikið fé ætti að veita á þessu ári. Ég vil eindregið styðja, að þegar sé byrjað á þessu verki og að til þess sé ætluð allrífleg fjárhæð nú á þessu ári. Og samkv. viðtali við vitamálastjóra veit ég, að hann telur, að það sé tiltölulega ódýrara með svona framkvæmdir að byrja á þeim í nokkuð stórum stíl. Og mundi einmitt vera hæfilegt að veita á þessu ári 250000 kr. til þessa fyrirtækis.
Þá er hér annað mál, sem ég hef verið beðinn fyrir úr kjördæminu og ég sé ekki neitt um hér á fjárl. og ég veit ekki, hvað hv. fjvn. ætlar að gera við. Það er till. um framlag til þess að lengja bryggju á Flatey á Skjálfanda. Þeir, sem þar eiga heima, vilja fá þessa bryggju lengda um 30–40 metra. Hún var byggð árið 1940 og er algerlega ónóg. Þar á eynni eru 15 býli, og 120 manns eiga þar heima. Og það er orðið þröngt fyrir þá 12 báta, sem þarna eiga heima, að leggja upp við þá bryggju. Ég hef lagt til, að 50 þús. kr. verið v arið á fjárl. til þessarar bryggju.
Annað mál flyt ég líka brtt. um í sambandi við Flatey á Skjálfanda, og það er, að styrkur til þess hrepps til læknisvitjana sé hækkaður úr 200 kr. upp í 500 kr. Þessi brtt. er komin fram vegna þess, að það stendur nú alveg sérstaklega á um Flatey. Það er afskaplega óþægilegt fyrir þá þar að ná í lækni, m.a. vegna þess, að þeir mega ekki, sem stendur, nota talstöð, sem þar er. Þeir þurfa að sækja lækni til Húsavíkur, og vegna þess, hve símasambandið er ónothæft, þurfa þeir að fara fleiri ferðir til þess en þeir annars þyrftu. — Og er í raun og veru fleira í sambandi við þennan stað, sem þyrfti að taka hér sérstaklega fyrir, þó að ég hafi ekki gert það.
Þá held ég, að ég hafi nú talað nokkur orð með flestum þeim brtt., sem ég hef borið fram, og mun ég því ekki hafa mál mitt lengra.