01.02.1943
Sameinað þing: 18. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (499)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1943
Barði Guðmundsson:
Það var meining mín að víkja nokkrum orðum að hv. 7. landsk. þm. (KA), en hann er nú farinn úr d., svo að ég get verið fáorður. Þó neyðist ég til þess að minnast nokkuð á mál, sem hann ræddi um. Hann sagði, að Menntamálaráð hefði brotið lög á listamönnum, sem fyrrum nutu launa á 18. gr. fjárl., því að það hefði verið gengið út frá því, að ekki mætti í neinu breyta kjörum þeirra frá því, sem Alþingi einu sinni hafði ákveðið. Þetta er vitaskuld ekki rétt. Það gæti verið að háttv. 7. landsk. hafi óvart sagt „að brjóta lög“, því að vitanlega er enginn lagabókstafur fyrir því, að þeir listamenn, sem laun þágu á 18. gr. fjárlaga, skuli að staðaldri hljóta sömu laun af opinberu fé. Í Menntamálaráði var eitt sinn rætt um það, hvort ráðið væri á nokkurn hátt bundið af 18. grein svo sem hún var áður en menntamálaráði var fengin í hendur úthlutun listamannalaunanna. Við litum svo á Menntamálaráðsmenn, að slíkt gæti verið álit hins háa Alþingis, þar sem það hefur látið 18. greinarmenn og 15. greinarmenn fá hið sama hlutskipti, sem sé falið menntamálaráði úthlutun til beggja. Það er og augljóst, að annars hefði það ekki verið aðeins óþarfi, heldur beinlínis hlægilegt að fela 18. greinarmenn forsjá menntamálaráðs.
Svo er rétt að ég leiðrétti misskilning, sem gert hefur vart við sig og notaður hefur verið í áróðri gegn Menntamálaráði, en hann er sá, að Menntamálaráð hafi öldungis umturnað venjum Alþingis um skiptingu listamannalauna og þá einkum á milli gömlu 18.-greinarmanna. Það er síður en svo, að þær ásakanir séu réttar. Að vísu tel ég, að mistök hafi átt sér stað, er Menntamálaráð lækkaði laun Halldórs K. Laxness úr 5000 kr. í 1800 kr., sem auðvitað jafngilti því að svifta þetta öndvegisskáld öllum skáldalaunum. Það var ekki við því að búast, að skáldið tæki við 1800 kr., svo sem í pottinn var búið. Ég viðurkenni fúslega, að það sé ástæða til að gera aths. út af þessu, enda hef ég gert það áður. Að þessu eina dæmi undanskildu er mér ekki kunnugt um, að nokkur mistök hafi átt sér stað við úthlutun Menntamálaráðs á listamannalaunum, og getur hv. 7. landsk. áreiðanlega sparað sér það að þrástagast á slíku.
Mér skildist af ræðu hv. 7. landsk., að till. sú, sem borin er fram af honum ásamt hv. þm. Snæf. (GTh) og hv. þm. N.-Ísf. (SB), um að taka 32 listamenn og skáld á 18 gr. fjárl., hafi einmitt komið fram vegna þess, að Menntamálaráði væri ekki treystandi til réttsýni. Nú skulum við athuga þessa brtt. ofurlítið. Það er fróðlegt að bera saman þau nöfn, sem hv. þm. hefur tekið í þessari brtt. sinni á þskj. 312 við síðustu veitingar Menntamálaráðs, sein lesa má um í grg. á þskj. 141. Þegar bornir eru saman nafnalistarnir á þskj. 141 og 312, þá munu menn fljótt veita því eftirtekt, að munurinn er furðulega litill á styrkveitingum Menntamálaráðs og Alþingis.
Ég sé, að þeir, sem hafa verið í hæsta flokki í veitingum Menntamálaráðs og hlotið 3000 kr. hver, eru t.d. allir með tölu teknir upp af 7. landsk. í brtt. við fjárl. En svo tekur maður eftir því, að það er þó gerður nokkur munur á launum úrvalsrithöfundanna. Hv. 7. landsk. og þeir, sem fluttu brtt. með honum, hafa hér í hæsta flokki 4 skáld: Kristmann Guðmundsson, Halldór Kiljan, Guðmund Kamban og Gunnar Gunnarsson. Ég býst við, að allir séu sammála um, að þetta séu öndvegisskáld, sem undir öllum kringumstæðum eigi að vera í 1. flokki. Þessir menn, að undanskildum H. K. Laxness, eru einnig í 1. flokki hjá Menntamálaráði. Svo hafa flm. séð einhverja ástæðu til þess að reka út úr 1. flokki og setja skör lægra en þessa rithöfunda nokkra menn, sem ég held, að ekki orki tvímælis um, að eigi heiður skilið í líkingu við þá 4 útvöldu. T.d. Tómas Guðmundsson, sem ég býst við, að þm. séu sammála um, að sé framúrskarandi ljóðskáld og standi með þeim fremstu á sviði íslenzkra bókmennta. Hann á samkv. brtt. að fá 4000 kr., l þús. kr. minna en hinir 4 úrvalsmennirnir. Davíð Stefánsson á einnig að hafa 4000 og er því settur skör lægra en Kristmann, Laxness, Gunnar og Kamban. Svo er einnig um Guðmund Hagalin, sem er einhver mikilvirkasti og sérkennilegasti rithöfundur þjóðarinnar nú. Sama máli greinir um Magnús Ásgeirsson. Hann fær ekki heldur að vera í 1. flokki. Þó mun hann sérstæður í íslenzkum bókmenntum og ég hygg, að ekki einn einasti maður, sem hefur vit á bókmenntum, dragi í efa, að hann sé mesti snillingur í ljóðaþýðingum, sem þjóðin hefur átt. Við verðum að athuga það, að starf þessa manns hefur ekki lítið bókmenntalegt gildi í heild sinni. Hann hefur opnað íslenzku þjóðinni nýtt útsýn yfir það fegursta, sem skapað hefur verið í germanskri ljóðagerð.
Af þessum sökum m.a. höfum við, hv. 4. þm. Reykv. og ég, leyft okkur að bera fram brtt. við XXVII. tölulið á þskj. 312 um, að þessir 4 menn, sem ég nefndi nú síðast, Davíð Stefánsson, Guðmundur Hagalín, Magnús Ásgeirsson og Tómas Guðmundsson, séu allir færðir upp jafnhátt þeim, sem hæst eru settir í brtt. hv. 7. landsk. og félaga hans. En þetta gerum við í öryggisskyni nú þegar við 2. umr. fjárl., ef svo skyldi fara, að brtt. hv. 7. landsk., hv. þm. Snæf. og hv. þm. N.- Ísf., yrði samþ. Annars liggur það í hlutarins eðli, að höfuðsnillingar á bókmenntasviði þjóðarinnar verða ekki auðveldlega bornir saman og sagt um einn eða annan, að hann sé meiri en hinn. En almenningsálitið hefur þó skipað bókmenntasnillingunum nokkuð í flokka. Og ég býst við, að mönnum, sem ekki beinlínis vilja vera hlutdrægir, heldur gera hið bezta og réttasta, muni þykja svo sem vel fari á, að þessir í menn, sem um hefur ver ið rætt, séu settir á sama bekk, þegar þjóðin vill heiðra þá með fjárveitingum.