02.02.1943
Sameinað þing: 19. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (510)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Kristinn Andrésson:

Herra forseti. — Ég get verið mjög stuttorður. Mér þótti hv. 5. landsk. (BG) vera ærið viðkvæmur fyrir Menntamálaráði. Honum þótti hart, að talað skyldi um, að brotin hefðu verið lög á listamönnum með því að fella þá niður af 18. gr. fjárl. árið 1939. Það hefði vissulega verið réttara að orða það þannig„ að það hefðu verið rofin við þá fyrirheit, og það hefur einmitt „agiterað“ á móti þessu máli á þeim grundvelli, að Alþ. hefði þarna rofið gefin fyrirheit. Hann varð einnig ókvæða við yfir því, að minnzt skyldi á, að Alþ. hefði afsalað sér réttindum með því að fá Menntamálaráði úthlutun styrkjanna í hendur. Þá bar hann og blak af framkomu Menntamálaráðs í styrkveitingum þess. Það mál hefur nú verið svo mikið rætt, að ég gæti alveg sleppt því hér. Hann taldi og mjög fróðlegt að bera saman brtt. okkar hv. þm. Snæf. (GTh) og hv. þm. N.-Ísf. (SB) um styrkveitingar til listamanna af hálfu Menntamálaráðs, og sagði, að þar væri mjótt á mununum. Það er heldur engin furða, þótt svo sé, þar sem við höfðum til samanburðar skrá yfir þá listamenn, sem voru á 18. gr. fjárl. áður en sá liður var felldur niður af henni, og einnig núverandi styrkveitingar Menntamálaráðs.

Ég skal lýsa því yfir viðvíkjandi brtt. hv. 5. landsk. á þskj. 320, að mér þykir vænt um, að hún skyldi koma fram, og ég mun fylgja henni. Ég er honum sammála um, að það sé leiðinlegt og oft erfitt að gera mun á mönnum. Það yrði þá ef til vill heppilegast að láta jafnt ganga yfir þá alla, sem Alþ. tekur upp á 18. gr. fjárl.

Þá ætla ég að segja nokkur orð viðvíkjandi því, hvort rétt sé að taka aftur réttinn til styrkveitinga frá Menntamálaráði og fá hann Alþ. í hendur. Ég held eindregið, að það verði að gera. Ég skal nú aðeins endurtaka lítið eitt af því, sem hefur verið sagt áður um þetta mál. Þeir, sem komnir voru inn á 18. gr. fjárl., telja með rökum, að þeim hafi þar með verið gefin fyrirheit um að vera styrks aðnjótandi í framtíðinni, en að þau fyrirheit hafi svo verið rofin með því að leggja þennan lið undir Menntamálaráð. Ég held, að það komist ekki sættir á aftur fyrr en þessi liður er kominn inn á 18. gr. fjárl. aftur. Það er hins vegar mjög æskilegt, að friður komist sem fyrst á um þessi mál. Ég fagna því að þurfa ekki að ræða þetta svo mjög, þar sem ég get vísað til samþykktar Listamannaþingsins, en það var einróma áskorun þess, að styrkveitingar til listamanna skyldu teknar upp á 18. gr. fjárl. að nýju. Það er líka annað veigameira atriði í þessu sambandi. Það er mun meiri vegsauki fyrir listamenn, að Alþ. sjálft veiti þeim styrk, og það er betri auglýsing fyrir þá erlendis. Ég tek til dæmis Halldór Kiljan Laxness. Það þótti erlendis til hins mesta sóma fyrir íslenzka ríkið, að Alþ. skyldi hafa veitt honum styrk svo ungum sem hann var. Sama má segja um Gunnar Gunnarsson.

Annars vænti ég, að ég þurfi ekki að ræða þetta frekar. Það er vonandi, að hv. þm. sjái, að það sé réttlátt að draga ekki lengur að gera þessa leiðréttingu, og vænti ég, að þessi deilumál verði leiðrétt nú á þessu þingi.