18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (52)
Rannsókn kjörbréfa
Sveinbjörn Högnason:
Ég vil benda á, að þegar þingið hefur frestað að taka kosninguna gilda, þá skilst mér, að samkv. 5. gr. hafi þingið ekki heimild til að taka málið upp til rannsóknar á þeim grundvelli, sem meiri hl. kjörbréfadeildar leggur til. Þar stendur svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þingið getur við rannsókn þá, er ræðir um í 1. gr., úrskurðað kosningu ógilda, þótt eigi hafi hún kærð verið, og einnig frestað að taka kosningu gilda til þess að fá skýrslur. Svo er og um kosningu þingmanns, er eigi er kominn eða kjörbréf hans, þá er þing er sett.
Sama er um kjörgengi.
Að öðru leyti tekur þingið eigi upp hjá sjálfu sér að rannsaka kosningar eða kjörgengi, en gerir það því aðeins, að kært sé yfir þeim.“
Þetta stendur því skýrum stöfum, og ef þingið hefur sleppt því tækifæri, sem um hefur verið rætt, þá skilst mér, að ekki sé hægt að taka málið upp á þennan veg samkvæmt þessu ákvæði, sem stendur skýrum stöfum í 5. gr., að þingið taki ekki upp hjá sjálfu sér rannsókn á kosningu, nema kært hafi verið yfir henni.