02.02.1943
Sameinað þing: 19. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í B-deild Alþingistíðinda. (521)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1943
Frsm. (Finnur Jónsson):
Ég mun reyna að stytta mál mitt eins og mér er unnt.
Út af ummælum hv. 2. landsk. viðvíkjandi þeim bókavörðunum Magnúsi Ásgeirssyni, Davíð Stefánssyni og Guðmundi Hagalín, um að þeir nytu sérstöðu, þá vil ég benda á, að það er ekki rétt. Þótt þeir standi hér á fjárl., þá hafa bókasöfn þeirra ekki hærri styrk en önnur, eða aðeins kr. 2500 hvert. Það er því rangt, að stofnanir þær, sem þeir vinna við, njóti sérstakra hlunninda. Eini munurinn er sá, að framlagið til þessara bókasafna er bundið því skilyrði, að nefndir menn séu ráðnir við þau sem bókaverðir. Þegar hv. 2. landsk. er því að tala um sérstöðu þessara manna, er grunur minn sá, að honum hafi ekki þótt þeir nógu þægir ljáir í þúfu kommúnista.
Ég lýsi yfir því, að afstaða mín fer eftir því, hvort misréttið í þessari till. er leiðrétt.
Þá skal ég víkja máli mínu að hv. 2. landsk. Hann hefur nú endurtekið þau ummæli sin, að þm. muni hafa greitt atkv. móti betri vitund. Hæstv. forseti hefur ekki vítt þessi ummæli, og hygg ég það stafi af því, að honum hafi ekki þótt ásakanirnar svo þungvægar frá þessum hv. þm. Ég er ekkert undrandi, þótt ég fengi sitt af hverju frá honum. En þó hefur tal hans að þessa sinni farið svo langt út fyrir það, sem venjulegt og frambærilegt er, að það hefur alveg gengið fram af mér.
Hann gerði að umtalsefni formannskosningu mína í fjvn. Sagði, að ég hefði verið nógu blíður, meðan ég hefði verið að fá mig kosinn. Sannleikurinn er sá, að ég færðist undan því að vera kosinn og stakk upp á hv. 2. þm. S.-M. (EystJ). Ég átti tal um þetta við hann, og leyfði hann mér að stinga upp á sér. Eins talaði ég um þetta við hv. 6. landsk. (LJós) og vitna um það til hans. En bæði hv. 2. landsk. (ÞG) og hv. 6. landsk. neituðu að kjósa hv. 2. þm. S.-M. og kváðust ætla að kjósa mig, þótt ég bæðist undan því. Geti hv. 2. landsk. fengið hv. 6. landsk. til að bera annað í þessu máli en ég hef hér sagt, þá skal hann reyna. En geti hann það ekki, þá stendur hann afhjúpaður sem vera ber. Ég treysti á drengskap hv. 6. landsk., þótt ég treysti ekki á drengskap hv. 2. landsk. Ég hafði ekki búizt við að þurfa að ræða þetta mál hér opinberlega, en verð að gera það að gefnu tilefni.
Hv. 2. landsk. gerði sig hlægilegan að því leyti, er hann lýsti því, hvernig ég hefði átt að ginna hann, þennan skelegga baráttumann, til þess að gefa út allt annan fyrirvara en hann raunverulega ætlaði að gefa út. Ég aðstoðaði þá félaga við að koma fyrirvara sínum í form, það voru öll mín afskipti af þessu máli. Mér fannst það vera skylda mín sem formanns n. að leiðbeina þeim um þinglegan fyrirvara. Ég bjóst aldrei við neinu sérstöku þakklæti fyrir þetta, en að hv. 2. landsk. gerði sig eins að athlægi viðvíkjandi þessu og hann hefur gert, það datt mér ekki í hug.
Ég læt þetta nægja um þennan hv. þm. En Ég veit með vissu, að þótt deildar meiningar kunni að vera um ýmislegt í fjvn., þá mun n. öll vera á einu máli um framkomu hans nú. Eins og ég áður hef lýst yfir, þá vann þessi hv. þm. í fjvn. með drenglyndi, að ég hélt, þótt framkoma hans sé nú orðin öll önnur. Ég veit ekkert, hvað veldur þessu, en ég vil að síðustu óska Sósfl. þess, að hann megi vaxa í réttu hlutfalli við sanngirni og drengskap þessa hv. þm. (ÞG).