11.02.1943
Sameinað þing: 24. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í B-deild Alþingistíðinda. (574)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Form. fjvn., hv. þm. Ísaf., lauk máli sínu með því að minna þm. á það, að þeim bæri nú skylda til hverjum fyrir sig að afgreiða fjárl., sem telja mætti, að væra þinginu til sóma. Hann minntist á, að það mundu vera um 9 millj. kr. þær till. sem komið hafa frá einstökum þm. og það væri svona hér um bil það sama eins og till. frá fjvn. En mig langar til í sambandi við þetta að spyrja formann fjvn. um það, hvort þetta liggi ekki að einhverju leyti í þeirri samvinnuaðferð, sem hefur verið milli fjvn. annars vegar og þm. hins vegar. Ég hef haft samvinnu, sem hv. 10. landsk. (GSv) lýsti áðan, í n., sem átti að gera till. um samgöngumál. N. tók að sér að grennslast eftir vilja allra, sem hlut áttu að máli, viðvíkjandi þörfum á samgöngum á sjó, og ég held, að allir þeir aðilar, sem hlut áttu að máli, hafi verið ánægðir með till. n., enda er mér ekki kunnugt um, að ósamkomulag hafi orðið um þær. Mér er ekki kunnugt um, að fjvn. hafi haft þennan hátt í störfum sínum. Ég veit að vísu ekki um nema það, sem að mér snýr, en það hefur verið afar erfitt að fá aðgang að þeim meiri hl. fjvn., sem ekki fylgir Sjálfstfl. um þau mál. Ég held, að það, að svona margar brtt. koma fram, sé eingöngu af því, að ekki er af sanngirni og rökum tekið nógu mikið tillit til þeirra krafna, sem gerðar eru. Ég get ekki fundið nein önnur rök fyrir því, að einstakir þm. skuli koma með svo stórfelldar brtt., en að ekki sé nægileg samvinna milli þm. og fjvn.

Þá ætla ég að leyfa mér að minnast á þær till., sem ég hef borið hér fram. Við fjvn. sjálfa og við 2. umr. bar ég fram till. um stórt fjárframlag til símalagninga í Barðastrandarsýslu. Mér er kunnugt um, að fjvn. vildi ekki taka þetta til greina með þeim rökum, að ekkert væri lagt til síma. Ég get fellt mig við þessa skýringu að víssu takmarki, en svo stendur á, að þessar iínur voru samþykktar á þingi fyrir 8 árum ásamt fleiri línum, og þetta eru einu iínurnar, sem enn þá eru ólagðar, að undanskildum þeim línum, sem aldrei verða lagðar, — og hef ég þessar upplýsingar beint frá símamálastjóra. Þess vegna eru sterk rök fyrir því að láta leggja þessar línur, sem samþykktar voru fyrir 8 árum, og það er ekki hægt að vísa þessu á bug með því, að ekkert sé lagt til síma, þar sem fyrir þessu er loforð, og á þeim tíma, sem fjvn. ætlar af náð sinni að veita þm. viðtal, mun ég gera nánari grein fyrir þessu (Forseti: Ég skýrði frá því, að fjvn. hefði tíma frá 7–9, ef hún vildi athuga till. frá einstökum þm.). Það er þá á misskilningi byggt, að fjvn. ætli að hafa viðtalstíma. Þetta eru aðeins 10 þús. kr. til hvors hrepps fyrir sig til þess að hef ja verkið. Ég ætla ekki að dvelja lengur við það, en finn ástæðu til að dvelja við þau framlög, sem ætluð eru til vega í Barðastrandarsýslu. Ég hef aldrei getað skilið, hvernig fjvn. hefur getað afskipt þessa sýslu um vegi, eins og hér er gert, fyrr en nú, að form. fjvn. skýrir þetta með alveg einstökum forsendum. Hann segir, að til Vestf jarðavegar sé lagt til, að veittar verði 450 þús. kr. og þá muni Vestfjarðakjálkinn komast í samband til Bíldudals. Ef það er á þeim rökum, sem vegir í Barðastrandarsýslu eru skornir niður, skil ég það. En hvernig hugsar hann sér að tengja Patreksfjörð við þennan veg? Ég veit ekki betur en hann liggi yfir Þorskaf jarðarheiði og inn í Ísafjarðardjúp og síðan sjóleiðina með hinum ódýra bát, sem kostaði 400 þús. kr. á síðasta ári; þá taka við þrjár til fjórar heiðar, og enn liggur Arnarfjörður milli vegarins og Bíldudals. Það sjá allir, hve auðvelt er fyrir Patreksfjörð að nota þetta. Ég vænti þess, að þegar þm. hefur fengið þessa skýringu á landafræði Vestfjarða, falli hann frá því, að þetta komi undir Vestfjarðaveg. Það er annað miklu alvarlegra í þessu máli, og vildi ég mega beina því til form. n. og hv. þm. S.-Þ., af því að hér liggja sömu rök fyrir og hann færði hér fram, er hann fer fram á stórkostlega aukin vegaframlög í Suður-Þingeyjarsýslu. Á Patreksfirði er þorp með um 800 manns. Það er verið að svelta þessa menn, með því að þm. hafa ekki skilið, að þeir þurfa veg yfir fjallið. Á þessu ári hefur þorpið fengið 4500 lítra af mjólk, sem svarar 5 l. á mann á mánuði. Hinum megin við heiðina liggur Barðaströndin, einhver blómlegasta byggð á landinu. Það er líka verið að svelta þá, sem þar búa, vegna þess að þeir geta ekki komið frá sér mjólkinni. N. hefur lokað augunum fyrir þessu, og eftir að vegamálastjóri hefur lagt til, að lögð verði fram ákveðin upphæð, kr. 75000, hefur hún lagt til, að hún verði færð niður í 38000, og má þó geta nærri, að vegamálastjóri, sem hefur þótt handfastur á fé ríkissjóðs, mundi ekki hafa lagt til, að lagðar væru 75000 í þennan veg, nema til þess hafi borið brýna þörf, og þegar form. fjvn. lýsir því yfir hér, að það sé lagt nokkru hærra vegaframlag í Suður-Þingeyjarsýslu vegna nauðsynjar þess að koma frá sér mjólk, get ég ekki skilið hvernig sami form. í sömu n. getur staðið hér og lagt til, að skorið verði niður framlag til vegar, þar sem svelt er þorp með 800 manns fyrir mjólkurleysi og heil blómleg sveit svelt, vegna þess að hún kemur ekki mjólkinni frá sér. Ég ætla í viðbót að benda á það, að ef athuguð eru fjárl. frá 1942 og borin saman við till. n. nú, sést, að framlög eru hækkuð stórkostlega til hvers einasta vegar á landinu, og þetta er eina sýslan á landinu, sem ekki fær sambærilega hækkun til sinna vega. Ef þessi sýsla hefði verið búin að fá mikið af vegum áður, hefði ég getað skilið þetta. En ástandið er þannig, að það eru aðeins 14 km. í Barðastrandarsýslu, sem hægt er að skríða yfir í bíl að sumarlagi. Hvað mundu þm. segja, sem búa í héruðum, þar sem bílvegir eru heim að hverjum bæ, að heita má, ef þeir yrðu afskiptir á sama hátt, ef þeim yrði ekki skammtað stærra til vega hlutfallslega heldur en skammtað er til Barðastrandarsýslu! Og ég vil benda á það, að þessir tveir staðir, Bíldudalur og Patreksfjörður, hafa ekki greitt minna en 2 millj. kr. til ríkisins á síðasta ári. Allt þetta væri æskilegt, að form. fjvn. tæki til athugunar og segði svo, hvort það er fyrir ókunnugleika eða eitthvað annað, sem fjvn. leggur þetta til. Ég vil benda á, að fjvn. hefur lagt til, að 50 þús. kr. nýtt framlag komi til Rafnseyrarheiðarvegar. Nú er það svo, að þessi vegur tengir saman þjóðveginn annars vegar og Auðkúluhreppinn hins vegar, þar sem ekki minna en 5 beztu jarðirnar hafa lagzt í eyði á þessu ári — ekki fyrir vegaleysi, heldur af allt öðrum ástæðum. Það er undarlegt, þegar svona misskipting getur átt sér stað, og skal ég ekki segja um, hvort þetta stafar af því, að flokksbróðir hv. form. fjvn. er þar þm., en vænti, að svo sé ekki. Vegurinn til Brjánslækjar frá Patreksfirði er 55 km., og þetta er aðalvegurinn í Barðastrandarsýslu til þess að komast í samband við Suðurlandsveginn með Flóabátnum. Og það hefur sýnt sig, að það er þörf fyrir þennan veg, því að það hafa ekki færri en 1400 manns farið þessa leið á síðasta ári. Það er því ófyrirgefanlegt af þm. að ganga svo frá þessu að leggja ekki meira til þessara mála. Ég vænti, að hv. form. fjvn. og þm. fallist á að hækka þetta tillag aftur upp í 5 þús. kr., sem vegamálastj. lagði til, að lagt yrði fram,, og er þá lagt til vegarins alls kr. 100 þús. á þessu ári, og er það nægilegt til þess að tengja saman Borgarfjörð og Barðaströnd. Ég vil einnig benda á, að þegar vegurinn hefur verið lagður inn í botn Patreksfjarðar, er aðeins stutt eftir til þess að tengja aðra blómlega sveit, Rauðasandinn, við Patreksfjörð.

Þá vildi ég minnast dálítið á brúarl. Ég sé, að fjvn. hefur tekið til athugunar till. vegamálastjóra um að leggja til 35 þús. kr. til brúar á Haukabergsá, sem er á þessari leið, en á þskj. 410 hef ég lagt til, að sama upphæð verði lögð til brúar á Litlueyjará í Bíldudal. Þessarar brúar er mikil þörf, en það mundi kosta ríkissjóð minna að brúa þetta á sama ári, vegna þess að þá mætti nota sama steyputimbur og sömu menn til að vinna verkið, svo að þetta yrði miklu hagkvæmara heldur en ef unnið er að brúnum hvorri fyrir sig. Þá óska ég eftir, að Laxá í Reykhólahreppi, sem er á leiðinni til Vestf jarða, verði tekin upp á brúarlög og að það verði tekin upp ný fjárveiting til þessarar brúar, svo að hún verði ekki lengur farartálmi á þessari leið, sem nú er svo fjölfarin og verður fjölfarnari. Þá hef ég einnig óskað eftir, að samþykktar verði 35000 kr. til hvorrar brúar á Móru og Arnarbýlisá á Barðaströnd. Suðurfjarðarhreppur er fús til þess að leggja eins mikið og hægt er til þess að gera þarna veg, en þessi farartálmi er á leiðinni, og það er ekki hægt að halda áfram við veginn, vegna þess að áin er ekki bílfær, og án þess að vegur sé bílfær, er hann alveg árangurslaus. Það er þess vegna, sem óskað er eftir, að þessi fjárveiting verði

samþykkt, svo að hreppurinn geti haldið áfram vegarlagningu sinni um sveitina og þannig komizt í vegasamband við þá menn, sem framleiða mjólkina fyrir þá 600mnenn, sem búa á Bíldudal.

Þá hef ég óskað eftir, að tillagið til ræktunarvegar í Flatey verði hækkað úr 1500 kr. upp í 3000 og vil gefa hv. fjvn. og þm. þá skýringu á þessu máli, sem þeim er ókunn. Þetta fé var lagt fram á sínum tíma til þess að bjarga atvinnuleysi í þorpinu. Nú er aftur verið að byggja höfn í Flatey, sem kostar upp undir millj. kr., og það hefur ekki verið óskað eftir neinni fjárveitingu úr ríkissjóði til þess, þótt ýmsir hreppar fái upp undir 50 þús. kr. til lendingabóta samkv. þessu frv. Þessi vegur mundi vera lagður frá verzlunarstaðnum út að þeim stað, sem hefur af sérfræðingum verið valinn sem lendingarstaður og mundi skapa mjög mikla möguleika fyrir Breiðafjörð í framtiðinni. Ég vænti því, að þm. meti það, að Flateyjarhreppur er að reyna að koma upp höfn án þess að leita um meira en þetta litla framlag til ríkissjóðsins fyrir veginum, sem liggur þangað. Ég hef einnig borið fram brtt. til hækkunar við brtt. fjvn. um eftirlaun Sigríðar Snæbjörnsen og legg til að hækka þau úr 400 kr. í 500 kr. Hún hefur verið í þjónustu landsímans nærri 40 ár og slitið þar kröftum sínum og fengið þá viðurkenningu að hafa rækt starf sitt einna bezt af öllum símastjórum vestan lands að öðrum ólöstuðum. Hún á skilið, að henni sé sýndur sómi.

Þá hef ég lokið máli mínu um það, sem snertir hagsmuni héraðsins sjálfs, og vildi því næst minnast á brtt. við 15. gr. um að hækka styrkinn til bygginga á ríkisjörðum úr 100 þús. kr. í 200 þús. Ég veit ekki, hvort nokkur maður í fjvn. þekkir þau híbýli sum, sem ríkið leyfir sér að byggja landsetum sínum. Ég hef komið í þessi híbýli, og sum hafa ekki verið skepnum bjóðandi, hvað þá mönnum. Í því er ekkert samræmi að deila um, hvort betra sé, að ríkið eigi sem flestar jarðir eða einstaklingarnir, en ríkið skeyti ekki um að húsa þær jarðir, sem það á, svo að því sé ekki stórkostlegasta skömm að eiga þær í þessu ástandi. Þar eru íbúðir með þakjárnið bert að innan, yfir íveruherbergjunum. Þess eru þar dæmi, að fólkið verður að flýja norðurendann í norðanveðri og suðurendann í sunnanveðri, því að vindur, snjór og vatn eiga þar inngang. Þetta á sér stað á glæsilegri jörð, sem ég gæti nefnt. Ríkið verður að koma þessum jörðum sínum í sæmilegra ástand, og það verður ekki gert með einum 100 þús. kr. Mikil ástæða er til að skora á búnaðarfél. að kynna sér þetta mál. Ég veit ekki, hvort formaður þess, hv. þm. Mýr., hefur skriðið inn í marga þessara bæja, en mér væri ánægja að skríða með honum inn í þá sem flesta, ef það gæti vakið skilning hans. Ég get fullyrt, að í minni sýslu er byggingin yfirleitt langsamlega lélegust á ríkisjörðunum.

Að öðru leyti vildi ég minnast á það við hv. þm., hvort ekki sé ástæða til að athuga nánar allt það fé, sem fer til mæðiveikivarna. Þegar farið er að greiða 21/2 millj. kr. til þeirra, væri a.m.k. ekkert að því, að þm. ættu aðgang að fullum upplýsingum um það mál. Þar er bæði veittur styrkur til þess að slátra fé og styrkur til þess að ala upp, og vonandi eru það ekki sömu kindurnar, sem þannig er hjálpað til að koma upp og farga svo. Það væri e.t.v. ekki minni ástæða til að setja þingkjörna n. til að rannsaka þetta en til að rannsaka ýmislegt hjá öðrum atvinnuvegum, eins og sumir hafa mikinn áhuga á.

Mér er persónulega kunnugt um, að það var stórkostlegt slys, kannske ekki af vanrækslu, heldur af mistökum, að ekki tókst að frelsa allan Vestfjarðakjálkann frá mæðiveikinni. Hvað sem það hefði kostað og þótt þurft hefði að gera steinsteypugarð með glerbrotum ofan á milli Bitrufjarðar og Gilsfjarðar, hefði borgað sig að gera það í tæka tíð, sem þurfti, til þess að Vestfjarðavarnirnar biluðu ekki og þar mætti ala upp ósýktan fjárstofn handa öðrum héruðum á sínum tíma. Ef allur sauðfjárstofn dræpist á Vestfjörðum, verður ekki komið þar upp kúabúum í staðinn eins og í Borgarfirði og austan fjalls. Ég álít að rannsaka beri skilyrðin, sem eru til að ala upp fjárstofn vestra.

Viðvíkjandi læknisvitjanastyrkjum vil ég taka fram, að ég gerði eins og flestir ráð fyrir, að sama yrði látið ganga yfir alla. Ýmsir þm. hafa þó borið fram till. um hækkun á styrkjum. Ef þær brtt, verða samþ. vænti ég þess fastlega, að styrkirnir verði hækkaðir að sama skapi um allt land.

Enn vildi ég drepa á till. fjvn. að heimila 150 þús. kr. til að stofna hrossaræktarbú á Bessastöðum. Ég held, að þeir, sem þessu ráða, og það virðist vera Búnaðarfélag Íslands, þekki þá lítið til á Álftanesi. Með þessu er verið að eyðileggja beit Álftnesinga í Bessastaðanesi (BÁ: Þeir eru hættir að beita þangað). Nei, þeir eru ekki hættir því. Hitt er aftur spurning, hvort ekki væri rétt að setja svo og svo margar þúsundir í það að stífla ósinn framan við Bessastaði. Þá fengist mikið töðugæft land fyrir tiltölulega litið fé og fyrirhöfn.

Ég vænti þess enn, að mér gefist tækifæri til að tala við fjvn. um hækkun á styrk til þessara vega, sem menn verða að viðurkenna þörfina á, og þegar stórfé er lagt til annarra vega, þar sem aka má með allt að 100 km. hraða að sumarlagi, er ekki sanngjarnt að afskipta svo þessa vegi.