12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (596)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Pétur Ottesen:

Það var nokkuð um það rætt við 2 . umr. fjárl., að þau bæri þá öðruvísi að en venja væri til, þar sem fjvn. hefði ekki lokið athugun á tekjuhlið fjárl. og hefði einnig frestað til 3. umr. að gera till. um nokkra stóra útgjaldaliði, sem fjalla sérstaklega um framlög til verklegra framkvæmda. Því var jafnvel haldið fram, að þetta væri algerlega nýtt fyrirbæri, og af því að það hefur ekki komið nógu skýrt fram, að þessu er ekki þann veg farið, vildi ég segja um þetta nokkur orð og taka það fram, að afgreiðsla af hendi fjvn. hefur fyrr borið að með svipuðum hætti, en þá lágu til þess sérstakar ástæður eins og nú. Var nógsamlega skýr grein gerð fyrir því af hv. frsm. fjvn., í hverju þær ástæður voru fólgnar, og vil ég aðeins bæta því við, af því að mitt nafn var dregið inn í umr. í sambandi við þær athuganir á tekjuhlið frv., sem n. hefur látið fara fram, að þeim athugunum var ekki lokið, þegar málið var afgr. úr n. til 2. umr. Athugunum þessum var haldið áfram, og þær leiddu til þess, að við hv. 2. þm. N.-M., en okkur var falið að athuga þetta og gera um það tillögur til nefndarinnar, komumst að þeirri niðurstöðu, að hægt mundi að áætla tekjurnar allmiklu hærri en virtist í upphafi. Eins og hv. frsm. tók fram, lágu ekki fyrir, að því er tekju- og eignarskatt snertir, nein skattaframtöl, þegar málið kom til 2. umr., en nokkrum dögum síðar kom fram allmikið af framtölum í Rvík, og sýndu þau, að á víssum stigum skattstigans mundi tekjugrundvöllur verða allmiklu rýmri en á s.l. ári, svo að n. taldi hægt að hækka tekjuáætlunina á þessum lið til muna. Telur hún áætlun sína um þetta ekki óvarlega, þegar miðað er við þennan grundvöll. Hitt er annað mál, að innheimta skattsins fer allmjög eftir árferði í atvinnumálum á því ári, sem skattinn á að greiða. Er ekki hægt að segja fyrir fram, hvernig ástatt verður í þessum efnum né hvað ríkissjóður muni bera úr býtum í raun og veru, þegar innheimtu skattsins er lokið.

Um 2. lið á tekjuáætluninni, verðtollinn, gegnir sama máli. Við, sem störfuðum að undirbúningi þessarar áætlunar, áttum tal um málið við einn af ráðh., og sagði hann, að ríkisstj. væri ekki eins svartsýn nú og þegar hún tók við völdum, að því er snerti aðflutningsörðugleikana. Mætti því ætla, að þessi tekjustofn yrði nokkru rýmri en áætlað var.

Og að fengnum upplýsingum um þetta varð samkomulag um það í n. að áætla verðtollinn hærri og einnig vörumagnstollinn.

Ég vildi láta þetta koma hér fram til viðbótar því, er frsm. sagði, er hann gerði grein fyrir þessari breyt. af hálfu n., og mun ég ekki fara lengra út í það.

Eins og hvar annars staðar geta orðið skiptar skoðanir í fjvn. um einstaka till. Venjan er sú, að þær till., sem samþykktar eru af meiri hl. n., eru síðan bornar fram sem brtt. n. í heild, en því hafa allir nm. vitanlega óbundnar hendur við greiðslu þeirra.

Í n. er ávallt rík tilhneiging til þess, ef ágreiningur er, að þá lagi nm. sig sem allra mest hver eftir öðrum, svo að n. geti staðið sem allra bezt saman, því að á því veltur mikið um tök n. á afgreiðslu fjárl.

Þó skerst svo í odda um einstaka till., að algerlegur klofningur verður og fyrirvari er í hafður, eða klofningsins er getið í nál. eða kemur fram á annan hátt síðar við umræður.

Við höfum nú 3 nm., hv. þm. Ak., hv. þm. Dal. og ég, skrifað undir með fyrirvara að því er snertir nokkur atriði í 22. gr. Auk þess eru í sjálfum fjárlögunum nokkrar tillögur, er ég fyrir mitt leyti hefði talið mega betur fara, en ég skal nú ekki fara út í það.

Ég ætla aðeins að minnast á till. n. um 1. lið við 16. gr. Í frv. eru veittar 200 þús. kr. til framleiðslubóta og atvinnuaukningar, en n. leggur til, að þessi liður verði hækkaður upp í 500 þús. kr. Mér þótti ekki ástæða til þessa, þar eð svo miklu fé er nú varið til verklegra framkvæmda, og ekkert, sem bendir til, að svo muni á þessu ári draga úr atvinnu. Ég get því ekki séð, að ástæða sé til að hækka þessa fjárveitingu. Atvinnuvegina skortir mjög vinnuafl, og óvenjulegar framkvæmdir ríkis og bæja eru fyrirhugaðar á þessu ári.

Þessi upphæð var fyrst veitt til atvinnubóta. Síðar varð breyting á úthlutun hennar samkv. ráðstöfun sérstakrar nefndar. En hins vegar er það svo, að miðað við núverandi kringumstæður mundu þessar 200 þús. kr. nægja til þeirra verkefna, sem nefndin beinir fénu til. Einnig er til skýrsla um það, að n. úthlutaði ekki nema hluta þeirrar upphæðar, er hún fékk til umráða á árinu 1942.

Út af þeim umræðum, sem hér hafa orðið um fjárframlög til vitabygginga, þá vil ég geta þess, að ég veit ekki betur en að upphæðin hafi verið ákveðin í samráði við vitamálastjóra og í samræmi við það, sem hann áleit hægt vera að koma í framkvæmd á árinu. Vitamálastjóri er áhugamaður um þær framkvæmdir, sem hann veitir forstöðu, og vill gjarnan fá fé til framkvæmda, en hann gerði ekki ráð fyrir, að hægt væri að framkvæma vitabyggingar fyrir hærri upphæð en þetta.

Nú vita allir, að mikið vantar á, að búið sé að lýsa upp ströndina, en hins vegar þýðir ekki um þessa hluti að miða framlag til framkvæmda við meira en það, sem í mesta lagi er hægt að láta vinna á hverjum tíma.

Því áleit ég ekki rétt að hækka þessa upphæð. Hv. frsm. tók greinilega fram fyrir hönd n., hvernig hún ætlaðist til, að úthlutað væri styrk þeim til byggingar húsmæðraskóla, er gert er ráð fyrir í brtt. n. 28. lið.

Það lágu fyrir umsóknir frá tveimur stöðum, Laugarvatni og Veggjalaug í Borgarfirði. Hann tók fram, að við skiptingu fjárins bæri að taka tillit til þess, hve langt væri komið undirbúningi verksins á hverjum stað.

Í sambandi við fyrirvara okkar, er ég nefndi áðan, vil ég minnast hér á tvær till. Önnur er 95. liður í brtt. n., stafliður 6, um að verja tveimur millj. kr. til atvinnuaukningar, ef atvinnuleysi verði á árinu, og skuli því varið til að byggja samvinnubyggðir og leggja vegi.

Með því útliti um atvinnu og með skírskotun til þess viðhorfs, er ég talaði um áðan, þar sem ríflega er nú veitt til verklegra framkvæmda, þá litum við svo á, að þessi fjárveiting sé ástæðulaus. Ef hér verður atvinnuleysi á árinu, þá er það ef því, að atvinnuvegirnir bíða hnekki. Það er vitað, að ein hætta er hér á ferðinni, og hún er sú, að tilkostnaðurinn við framleiðsluna í landinu verði í öfugu hlutfalli við verð það, sem fæst fyrir framleiðsluvörurnar á erlendum markaði. Ef reynslan sýnir, að atvinnuvegir okkar stöðvast, eða úr þeim dregur, þá leiðir af sjálfu sér, að þrengjast muni um atvinnu. En skammt hrekkur að ætla sér að laga þetta með fjárveitingu til atvinnubóta.

Það er önnur leið til í þessu máli, og hún er sú, að gera til þess ráðstafanir í landinu, að tilkostnaðurinn við framleiðsluna haldist í eðlilegu hlutfalli við það verð, sem fyrir hana fæst.

Þetta er aðalverkefni þessa þings, og úrlausn þessara mála liggur á öðru sviði en því að veita fé á fjárl. til að styrkja atvinnulaust fólk. Því að ekki verður um það deilt, að það fé verður ekki sótt annað en í hina lífrænu atvinnuvegi fyrst og fremst, sjávarútveg og landbúnað. Þetta vildi ég láta koma í ljós viðvíkjandi fyrirvara okkar.

Þá er 97. till. við 22. gr. Þar er lagt til að breyta orðalagi þess liðs, eins og það er nú á fjárl. er felur í sér heimild fyrir stj. til að skera niður 35% af ólögboðnum fjárveitingum, ef tekjur bresta. Meiri hl. fjvn. leggur hins vegar til að fella niður þessa heimild, en miða við annað atriði gagnstæi~s eðlis, nefnilega að fé verður afgangs. Liðurinn, eins og hann er orðaður í frv., er miðaður við ráðstafanir, sem heimilt sé að grípa til, ef ríkið bresti fé. En í brtt. er þessu snúið við og ráðstafað fé, sem afgangs kynni að verða.

Nú er ég síður en svo á móti að taka svona ákvæði upp í fjárlagafrv., og fjvn. hefur einmitt skrifað stj. um það, að það fé, sem veitt er til verklegra framkvæmda og eigi er unnið fyrir, yrði þá lagt til hliðar og geymt. Þessu eru vegamálastjóri og vitamálastjóri sammála, og það er ekkert nýtt, þótt till. um það komi fram að taka þetta ákvæði upp í frv. En það er þá engin meining fyrir Alþ., ef það vill fá þetta ákvæði tekið upp, að setja það á heimildargr. fyrir stj., heldur á þá að koma því inn í fjárl., svo að stj. sé bundin til að fara svo með þetta fé sem fyrir er lagt, þegar skilyrði skapast til þess.

Till. mín um þetta er á þskj. 419, 27. liður, og er þess efnis, að þetta ákvæði sé sett inn á sérstaka gr. í frv. og þar með sé því slegið föstu, að þetta skuli gert, ef svo stendur á sem þar um ræðir. Ég vil mæla með, að þetta ákvæði verði tekið upp í frv. og sett á réttan stað. Brtt. meiri hl. n. felur því ekkert nýtt í sér annað en það að fella niður heimildina til niðurfellingar á útgjöldum, ef tekjur bresta.

Ég held, að ég þurfi svo ekki að fara fleiri orðum um brtt. meiri hl. fjvn., og þykir mér ekki rista eða til að ræða frekar um ágreining þann, er markaður er með fyrir vara okkar.

Ég á hér, auk brtt. á þskj. 419, sem ég hef nú gert grein fyrir, tvær brtt. á þskj. 410.

Sú fyrri er um nýjan lið inn á 15. gr., 3000 kr. fjárveitingu til Önnu Bjarnadóttur til að ljúka við samningu enskunámsbóka. Anna Bjarnadóttir Sæmundssonar fiskifræðings, hins merka fræðimanns, á heima í Reykholti í Borgarfirði. Hún var lengi enskukennari hér við menntaskólann í Rvík, og er ágætum hæfileikum gædd í starfi sínu. Héraðsskólinn í Reykholti var svo heppinn, að hún fluttist þangað, þar sem hún nú kennir tungumál og fleira. Hún hefur gefið út 2 hefti af enskunámsbókum, sem sérstaklega eru ætlaðar fyrir héraðsskóla og gagnfræðaskóla. Þessar bækur þykja ágætar, og nú er hún að vinna að stíla- og orðasafni. Þetta er mikið verk og ég hef leyft mér að bera fram þá till., að hv. Alþ. styrkti hana til þessara þjóðnýtu starfa. Hjá henni fer saman mikill og staðgóður lærdómur og löng æfing í kennslu. Ég held, að það sé mikilsvert fyrir enskunámið hér, að hún hafi kringumstæður til að ljúka þessu verki, svo mikilsvert sem það er. Þetta væri bæði stuðningur við framtak hennar og viðurkenning í senn. Fræðslumálastjóri mælir eindregið með því, að aðstaða hennar verði gerð sem bezt til að ljúka þessu verki, sem hann telur mikilsvert fyrir enskunámið í landinu.

Síðari brtt. mín er um nýjan lið inn í 22. gr., þess efnis að láta Íþróttafélagi Rvíkur í té lóð undir íþróttahús í Rvík til leigulausra afnota. Félagið sjálft og Í.S.Í. hafa sent erindi um þetta efni til fjvn. Þetta á að verða samkomuhús eða heimili fyrir íþróttamenn víðs vegar að af landinu. Félagið er staðbundið hér, en það er nú svo, að íþróttalíf landsins í heild á mikla stoð í íþróttastarfsemi höfuðborgarinnar. Ég flyt þessa till. einnig af því, að íþróttastarfið hér er mikilsverður þáttur í uppeldi og menningarlífi þjóðarinnar, ekki aðeins á sviði líkamsræktar, heldur eins og ekki siður á andlega sviðinu. Það er öllum vitað, að hér í Rvík eins og alls staðar í fjölmenni þróast alls konar miður hollur félagsskapur. Það eru margar freistingar, sem sitja fyrir unglingum og ungu fólki á gelgjuskeiði. Þessi félagsskapur, kaffihúsalíf, drykkjuskapur og hvers konar óregla, freistar mjög unglinganna og leiðir þá út á hættulegar brautir. Gegn þessu stendur hins vegar íþróttastarfsemin eins og sterkur varnarveggur. Íþróttaæfingarnar taka mikinn tíma. Menn verja til þeirra þeim frístundum, sem þeir fá frá vinnu sinni, og sækja þangað starfsþrótt, bæði til, líkama og sálar, og það á sér áreiðanlega stað miklu viðar og oftar en við höfum hugmynd um, að íþróttaiðkanirnar halda mönnum frá margs konar óreglu og freistingum. Það er því mjög mikilsvert að hlynna sem bezt að íþróttastarfseminni, því að hún er mjög mikilsverður liður í uppeldismálum þjóðarinnar.

Í íþróttalögunum er gert ráð fyrir, að bæjar- og sveitarsjóðir styðji þessa starfsemi og verndi og leggi henni m.a. til lóð undir íþróttahús. En nú hagar því svo til hér í Rvík, að bærinn á ekki umráð yfir neinni lóð á því svæði, sem hentugt er að reisa á íþróttahús, en það er innan Hringbrautar. Þess vegna hef ég nú að ósk félagsins borið fram brtt. um það, að Alþ. heimili ríkisstj. að láta félagið fá lóð á hentugum stað, sem ríkið á, en það á m.a. ráð á ágætri lóð í nánd við Arnarhólstúnið. Ég vil mæla með þessu, og ég er þess fullviss, að með þessum stuðningi við íþróttastarfsemina sé verið að hlynna að mjög þörfu málefni. Þessi starfsemi byggist á áhuga og atorku þeirra manna, sem beita sér fyrir þessu góða málefni, en það er sýnilega mikill stuðningur við þessa menn, að þeir fái slíka viðurkenningu og uppörvun af hálfu hins opinbera, og það mun verða þeim hvatning og brýna heilbrigðan metnað, sem er mikilsvert fyrir íslenzku þjóðina að halda í.

Ég skal ekki minnast hér á brtt. einstakra þm.. en þó aðeins geta þess, að hv. þm. Barð. flytur hér brtt. á þskj. 410, um aukið framlag til byggingar á ríkisjörðum. Fjvn. tók þetta upp sem nýjan lið og lagði til að veittar yrði 100 þús. kr. til þessa, en háttv. þm. Barð. leggur til, að það verði hækkað upp í 200 þús. kr. Fyrir 2–3 árum var tekin upp í fjárl. 100 1W s. kr. fjárveiting til þess að standa straum af jarðeignum ríkisins. Þessi liður stendur enn í fjárl. og er í raun og veru meðgjöf með jarðeignum ríkisins. Þannig er, að jarðakaupasjóður hefur keypt allmikið af jörðum nú á síðustu árum. Ríkið var að taka við þessum jörðum með þeim skuldbindingum, sem á þeim hvíldu, svo sem fasteignaveðslánum, en afgjöld jarðanna eru aðeins 3% af fasteignamatsverði þeirra, þannig að ríkissjóður hefur orðið og verður að gefa með þessum jörðum, og hafa þessar 100 þús. kr. verið veittar í því skyni. Nú er það svo, að til byggingar á jörðum ríkisins má taka veðlán út á þær, en í þessari dýrtíð hrekkur það mjög skammt. Sú upphæð, sem fjvn. lagði til, að tekin yrði inn í fjárl. og hv. þm. Barð. leggur til, að verði hækkuð um helming, er ætluð til þess að bæta nokkuð úr þessu.

Ég er ekki í vafa um það, að þetta fyrirkomulag hjá ríkinu, að seilast eftir jörðum einstakra manna og binda sér skuldbindingar með því, sé óþarft og miður heppilegt. Það er líka vitað, að eftir lit með þessum jörðum ríkisins úti um land er alls ekkert. Reynslan hefur sýnt það áður, að menn litu allt öðrum augum á umbætur á leigujörðum en þeim, sem voru í sjálfseignarábúð. Þetta eftirlitsleysi er líka farið að segja til sín í margs konar niðurníðslu á þessum jörðum og það versnar æ meir, eftir því sem lengra líður. Ég vildi hér aðeins koma að þessum aths. um þetta mál. Búnaðarþing í fyrra gerði ráðstöfun til þess að kjósa n. til að athuga l. um erfðaábúð og óðalsrétt, og munu nú vera lagðar fyrir búnaðarþing brtt. við þau lög, sem miða að því að gera mönnum auðveldara að gera jarðir sínar að ættaróðulum og greiða fyrir því, að menn fái keyptar ríkisjarðir. Ef búnaðarþing bæri gæfu til þess að beina málinu inn á þá braut og Alþ. tæki það upp, þá tel ég, að hér sé um heppilega stefnubreytingu að ræða.

Þá er það að lokum ein brtt., sem hv. þm. Mýr. minntist á, sem ég vil einnig gera að umtalsefni, en það er brtt. um að koma á bifreiðaferju yfir Hvalfjörð og heimild til ríkisstj. að verja allt að 50 þús. kr. til þessa. Nú á síðasta sumarþingi var safnað undir skriftum meðal þm. um að skora á ríkisstj. að láta rannsaka þetta mál. Þessi áskorun var svo send vegamálastjóra, sem hefur hafið rannsókn á þessu í samráði við herstjórnina, sem hefur tekið í sínar hendur öll yfirráð yfir Hvalfirði innan dreginnar línu í fjarðarmynninu. Þetta álit vegamálastjóra held ég, að hafi enn ekki borizt, en það mun útilokað á meðan Hvalfjörður er hernuminn að fá setta upp slíka ferju á þeim atað, sem menn helzt höfðu augastað á. Ég hef einnig hlerað, að vegamálastjóri telji aðra úrlausn heppilegri. Ég vil benda á það sem dæmi þess, hve algerlega þetta mál er óhugsað, að þessir menn gerðu ráð fyrir, að ferjan tæki aðeins einn bíl í hverri ferð. Nú er það svo, að þótt aðalferðamannastraumurinn liggi um sjóleiðina til Akraness eða Borgarness, þá fóru þó í júlí í sumar að meðaltali 40 bílar á dag fyrir Hvalfjörð. Þótt þessi ferja kæmist upp er Hvalfjörður verður leystur úr hernámi, þá er aldrei hægt að gera ráð fyrir því, að hver ferð taki minna en eina klukkustund. Þá er það sýnt, hve lítilsverð lausn það yrði á þessu máli að koma þarna upp ferju fyrir einn bíl. Auk þess verður kostnaðurinn geysimikill. Ég veit ekki, hvað ferjan sjálf kostar, en þær lendingarbætur, sem þarf að gera báðum megin fjarðarins, verða geysidýrar, því að þarna er mikill munur flóðs og fjöru auk þess sem útfiri er mjög mikið, einkum að sunnanverðu. Einnig er oft allþungur sjór á firðinum og auk þess svipvindasamt vegna hinna háu og bröttu fjalla, sem að honum liggja. Þess vegna verður allur umbúnaður að vera mjög traustur. Það kemur ekki annað til mála en að ferjan geti alltaf rennt að bryggju og bílarnir geti ekið viðstöðulaust í hana og af henni. Þetta virðist því óhagkvæm lausn, enda liggur lausnin í allt öðru. Það þarf fyrst og fremst að koma upp góðu og hraðskreiðu skipi, sem getur flutt marga bíla í senn, er gengi á milli Rvíkur og Akraness og Borgarness. Einnig þarf að koma á góðum akvegi inn fyrir Hvalfjörð. Það eru margir, sem vilja heldur fara landleiðina inn Hvalf jörð, enda er þar víða mikil náttúrufegurð. Auk þess er mikil byggð meðfram firðinum, sem þarf hvort sem er að sjá fyrir vegasambandi. þótt ferjunni yrði komið upp, þarf því bæði að halda uppi greiðum samgöngum á sjó við Akranes og Borgarnes og einnig að leggja góðan veg inn fyrir fjörðinn, svo að ferjan yrði alger aukaliður. Þetta vildi ég láta koma fram. Ég er kunnugur báðum megin fjarðarins og get gert mér þess glögga grein, hvað það mundi kosta að gera fullnægjandi lendingarbætur fyrir ferjuna.

Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta, en ég vænti góðra undirtekta við þær brtt., sem ég hef hér talað fyrir.